Skessuhorn - 10.05.2017, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201728
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Undanfarna daga hef ég reynt að
átta mig á neikvæðum umsögn-
um um leiðina Þórustaðir-Hall-
steinsnes sem Vegagerðin velur til
lagningar vegar um Gufudalssveit.
Leiðin er búin að vera á svæðis-
skipulagi Reykhólahrepps í tæp 20
á en á aðalskipulagi frá árinu 2009.
Þar var tekið fram að veglína yrði
ákveðin af Vegagerðinni enda var
vegamálastjóri Snæbjörn Jónsson
með í ráðum. Skipulagsstofnun
neitaði að samþykkja aðalskipulag-
ið sem Svandís Svavarsdóttir sam-
þykkti. Það var með ótrúlegum við-
hengiskláfa sem ég tel orka tvímælis
að standist lög. Sveitarfélagið mátti
t.d. ekkert gera án þess að borið
væri undir Skipulagsstofnun.
Þverun Gilsfjarðar var
góð framkvæmd
Það sem einstaklingar segja um
skaðsemi vegarins er yfirleitt raka-
laus þvættingur og því ekki til um-
ræðu. En þegar skipulagsstjórinn
rökstyður neikvæða afstöðu sína
þá blöskrar manni. Nú er sjón-
um beint að lífríki í fjörum og sjó
og allt talið í voða. Athugið setlög-
in, sandur og leir í fjörum, hvaðan
eru þau komin? Á hverju vori vaxa
árnar og rífa niður mold og aur og
bera til sjávar. Síðan myndast set-
lög sem næra lífríkið. Það er fárán-
legt að halda að grugg sem verð-
ur til við framkvæmdir tímabund-
ið valdi einhverjum spjöllum á líf-
ríki fjarðarins. Þegar Gilsfjörður
var þveraður heyrðust ramakvein.
Örn og rauðbrystingar taldir í stór-
hættu. Rannsóknir nárrúrufræðings
fyrir og eftir þverun sýna m.a. að á
meðan framkvæmdir stóðu og eft-
ir þær komur ernir upp mun fleiri
ungum en áður bæði í Gilsfirði og
Króksfjarðarnesi. Rauðbrystingar á
nálægum svæðum hafa aldrei verið
fleiri en eftir þverun. Allt tal um að
þverun Gilsfjarðar sé umhverfisslys
er órökstutt. Þær breytingar sem
orðið hafa á náttúrunni eru flest-
ar til bóta. Margfalt fleiri ferkíló-
metrar lands þorna nú á fjöru utan
vegar en fóru undir sjó innan vegar.
Utan vegar og á garðinum þar sem
áður var sjór vex nú þang. Hraunin
á Skálanesi og vegurinn inn Kolla-
fjörð fer víða með fjörum og fell-
ur vel að landi og sjó. Klettsháls
er veðravondur farartálmi. Gróð-
ur og kjarr í Skálmardal og Vatt-
ardal eru vaxin upp á vegarbrún.
Vegurinn yfir Mjóafjörð og Kjálka-
fjörð er til fyrirmyndar og í fjörum
í sama verndarflokki og Þ-H leið
sem Vegagerðin vill fara í Gufu-
dalssveit.
Sannleikanum hagrætt
Afstaða Skipulagsstofnunar er stór-
furðuleg. Ásdís Hlökk, forstjóri
Skipulagsstofnunar, var í viðtali á
Rás 1 skömmu fyri páska. Hún full-
yrti að dómur Hæstaréttar bann-
aði lagningu vegar eftir Þ-H leið-
inni. Þarna er sannleikanum hag-
rætt, samkvæmt öllum gögnum
Vegagerðarinnar er fullyrt að Jón-
ína Bjartmarz hafi ekki mátt nota
(skv. dómnum) orðin „meira um-
ferðaröryggi“ á vegi á láglendi. Í
sama viðtali fullyrðir Ásdís Hlökk
að Reykhólahreppur þurfi að gera
og auglýsa nýtt skipulag sem tæki
a.m.k. sex mánuði. Svona stjórn-
sýsla á engan rétt á sér og er ein-
göngu ætluð til þess að tefja og
koma í veg fyrir framkvæmd-
ir. Þarna er lítið hugsað um skóla-
börnin, fluningabíla og fólkið sem
sækir vinnu til Reykhóla og fer um
erfiða hálsa daglega. Þau bíða eftir
mannsæmandi vegi.
Vegagerðin hefur ákveðið að
hanna allar þrjár brýr yfir firð-
ina 20-30 metra lengri en áður
var áformað. Brúarop verða stærri,
straumur minni og setlagarof því
hverfandi lítið.
Veglínan á Þ-H leið er gjörólík B
leið. Reynt er að fylgja sveitavega-
slóðum að Gröf og farið yfir melinn
um 100 m frá forna bæjarstæðinu.
Síðan eftir gróðursettu klettabelti á
sveitavegslóða sem liggur að sumar-
húsi eiganda Teigsskógar. Farið er
yfir land Teigsskógar rétt neðan við
símalínu á landamerkjum við Hall-
steinsnes, þaðan eftir gróðurlitlum
klettum niður og út yfir Greni-
trésnes. Þaðan farið um klettavoga
að vegi sem þverar Djúpafjörð.
Engar efnisnámur verða á Þ-H leið
út að Hallsteinsnesi. Ég vil spyrja
hvaða fornminjar eru í hættu á
þeirri leið sem ég hef nú rekið og er
kölluð Þ-H leið sem merkir Þóris-
staðir-Hallssteinsnes?
Hafa beðið
eftir þessum vegi
Ég á ekki von á öðru en Vegagerð-
inni takist að hanna og leggja vegi
og brýr þannig að sómi verði að.
Þeir sem eru hræddir um annað
ættu að fá sér bíltúr vestur í Flóka-
lund og taka vel eftir hvað vegir eru
vel hannaðir og frágangur til fyr-
irmyndar. Eigendur Flókalundar
myndu taka vel á móti ykkur. Þau
hafa beðið eftir þessum vegi í ára-
tugi eins og fjölmagir aðrir á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Nú lang-
ar mig að segja frá því hvað fólkið
í minni gömlu Gufsu er að bauka.
Fjárfjöldinn er mín ágiskun og ekki
nákvæmur. Fólkið, mest þriðja kyn-
slóð frá því við bjuggum í Gufudal,
býr við sömu vegi frá 1953 en þjón-
ustan er betri. Við vorum lokuð
inni eins og rakkar í búri frá hausti
til vors. Flug og sjóferðir björguðu
málunum.
Á Skálanesi búa fullorðin hjón,
konan sækir vinnu á Reykhóla með
sauðfjárbúi með um 200 kindur. Í
Gufudal búa hjón með fjögur börn,
maðurinn fer til vinnu á Reykhóla
í Þörungaverksmiðjuna, ásamt
fjárbúi sem telur 400-450 kindur. Í
Fremri Gufudal búa þrjár fjölskyld-
ur, eldri hjón sem eru oftast með
börn í fóstri fyrir Reykjavíkurborg
og sinnir maðurinn þar eftirliti og
snjómokstri á Kletthálsi. Eiga þessi
hjón tvær dætur sem þarna búa með
fjölskyldum sínum. Önnur fjöl-
skyldan er með þrjú börn og stund-
ar eiginmaðurinn tamningar en eig-
inkonan starfar við félagsmál unga
fólksins í sveitarfélaginu. Hin fjöl-
skyldan er með eitt barn og keyr-
ir maðurinn flutningabíl, Tálkna-
fjörður - Reykjavík. Öll reka þau
svo félagsbú með sauðfé sem telur
800-1000 kindur. Veiðfélag er um
Gufudalsá og á það 100 fermetra
veiðihús. Áin er leigð stangveiði-
félagi. Í Djúpadal búa hjón með
tvö börn. Maðurinn sér um snjó-
mokstur og hálkuvarnir á Hjalla
og Ódrjúgshálsi. Þar er heitt vatn
og sundlaug ásamt ferðaþjónustu,
sauðfé er 400-450. Skólabíll sækir
börnin bæði í leik- og grunnskóla.
Bílstjórinn er traustur og gætinn,
snarræði hans forðaði a.m.k. einu
sinni að stórslys yrði, þegar vind-
hviða feykti bílnum út af í hálku og
roki á hættustað.
Ekkert fuglalíf í hættu
Allt tal um hættu fyrir örn er órök-
stutt komi til vegagerðar. Í fyrsta
lagi hefur örn ekki orpið á svæðinu
í 6-8 ár. Kristinn Haukur merkti þá
unga í Gróuneshólma. Ég man ekki
til þess að nokkurn tímann hafi örn
orpið á Hallsteinsnesi. Vegalengdir
frá veglínu eru rúmur einn km að
gamla hreiðurstæðinu en um hálf-
ur km að hólmanum. Mesti skað-
valdur fyrir allt fuglalíf er þegar
Kristinn Haukur kemur á flugvél
í lágflugi í 10-20 hæð, æðarkollur
fljúga í ofboði út á á sjó og svart-
bakur notar tækifærið og rífur upp
æðarkolluhreiðrin (Heimild: æðar-
bændur).
Sums staðar gengið vel
Nefna má dæmi um vegagerð þar
sem vel hefur gengið. Berum sam-
an tvær leiðir: Eiði, Mjóifjörður,
Kjálkafjörður og Kinnarstaðir –
Kraká. Báðar leiðirnar eru á náttúr-
minjaskrá og lög um vernd Breið-
arfjarðar gilda um báða veghlut-
ana. Umhverfismat og undirbún-
ingur fyrir vestan tók líklega jafn-
margar vikur og árin hér að aust-
anverðu. Orsökin er fyrst og fremst
á ábyrgð þeirra sem eiga að stjórna
og greiða fljótt og vel úr málunum
eins og gerðist fyrir vestan. Þar á
líklega hlut að máli sveitarfélagið
Vesturbyggð.
Gagnrýni á D2 leið
Þorskafjörður er þveraður rétt utan
við raflínu og óþarfi að skerða tún-
in á Þórisstöðum. Þau eru nýtt til
beitar og heyskapar að sumri, það
eru bændur frá Djúpadal að nýta
jörðina.
Þar sem jarðgöng eru áformuð
virðist margt benda til að þarna sé
móberg. En niður við sjó er hent-
ugt berg. Basaltlög sem eru 25-35
m að þykkt. Í mýrarlandi verða um-
talsverðar breytingar og sker hár
vegur og há brú sig úr í þessu fal-
lega landi.
En mér líst illa á sneiðinginn
og ég hef áður gert alvarlegar at-
hugasemdir og þær eru að engu
hafðar. Talsverður langhalli er á
sneiðingnum. Þar þarf því hálku-
varnir. Sprengja verður fyrir veg-
inum alla leiðina, líklega 1-2 kíló-
metra að lengd. Eftir að vinnu lík-
ur verður hátt berg að ofan tugir
metra að hæð, fyrir neðan verður
urð og grjót. Berjalautir og birki-
kjarr hverfur.
Þetta er lang snjóþyngsta leiðin
sem lögð hefur verið til. Til dæm-
is kom þarna úr hlíðinni stórt flóð
í janúar 1995 (Grund). Einn eða
tveir rafstaurar brotnuðu, fólkið í
Gufudal varð að hýrast í kulda og
myrkri á aðra viku.
Óhemju magn af efni þarf í háls-
gilið. Farið er með veginn í gegn-
um birkikjarr frá efst á Ódrjúgs-
hálsinum að Gufufirði. Þar er farið í
jaðri Hjálparvakar yfir miðjan fjörð-
inn þar sem lífríki er einna mest. Í
landi Hofsstaða er ekki verið að víla
fyrir sér að skemma sem mest fyrir
bændum. Landið er skáskorið, beiti-
land og tún. Jarðeigendur í Gufudal
í samráði við eigendur Hofsstaða
nytja landið til beitar og sláttar. Er
svo komið að Melanesi þar sem veg-
ur verður byggður upp að slitlagi
utan við Kraká.
Að lokum
Ég tek undir með Einari Kristni ,frá-
farandi alþingismanni, sem sagði:
„Þetta mál er löngu hætt að snúast
um náttúrvernd og hefur aldrei gert.
Þetta er meinbægni (illgirni)“.
Ég fullyrði að stjórnsýsla skipu-
lagsmála tilheyrir nú þeim flokki
með neikvæða afstöðu til Þ-H leið-
ar. Það er eins og Ásdís Hlökk hjá
Skipulagsstofnun sé að vinna fyrir
andstæðinga Þ-H leiðar, a.m.k. frá
árinu 2006 þegar Skipulagsstofnun
neitaði að samþykkja aðalskipulag-
ið. Það er bagalegt. Fólkið á sunn-
anverðum Vestfjörðum þarf veg um
Gufudalssveit og þótt fyrr hefði ver-
ið.
Kristinn Bergsveinsson.
Pennagrein
Frá Kristni í Gufudal:
Um vegagerð á Þ-H leið í Gufudalssveit
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304