Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201712 Stjórn HB Granda hf. ákvað í síð- ustu viku að ganga til samninga við spænsku skipasmíðastöðina Astille- ros Armon Gijon, S.A. um smíði á nýjum frystitogara. Samið er við spænsku stöðina í kjölfar tilboðs um smíðina sem hljómar upp á um fimm milljarða króna. Áætlað er að gangi samningar eftir muni skipið verða afhent árið 2019. Togarinn er hannaður af Rolls Royce í Noregi og er 81 m langur, 17 m breiður og hefur lestarrými fyrir um þúsund tonn af frystum afurðum á brett- um. mm Spánverjar smíða nýjan frystitogara fyrir HB Granda Tölvugerð mynd af togaranum. Fyrirtækið Hreinsitækni ehf. hófst handa í vikunni við að fóðra að inn- an holræsalagnir í Sæbóli í Grundar- firði. Lagnirnar í götunni voru orðn- ar lélegar og liggja undir skemmd- um. Það var annað hvort að rífa upp alla götuna og skipta þeim út eða þessi lausn sem Hreinsitækni ehf. býður upp á. Fyrri valmöguleikinn er margfalt dýrari og mun tímafrek- ari aðgerð og því var þessi lausn ofan á. Starfsmenn Hreinsitækni áætla sér um eina viku í verkið en þá ættu allar lagnirnar í Sæbólinu að vera sem nýjar. Þetta er byltingarkennd aðferð þar sem gömlu lagnirnar eru fóðraðar að innan með fljótharðn- andi plastefni. Aðferðin kallast in- situform en hægt er að lesa sér til um hana á vef fyrirtækisins. tfk Framkvæmdir hefjast við Sæbólið Strandveiðar hófust eins og kunn- ugt er 2. maí síðastliðinn. Veðrið var afleitt til veiða fyrstu tvo daga tímabilsins og raunar vart sjóveður fyrir litla báta. Engu að síður voru nokkrir sem sættu lagi. Meðfylgj- andi myndir sýna að aðstæður hefðu getað verið betri. Um fimmtíu bátar af ýmsum stærðum voru á veiðum á Breiðafirði síðastliðinn fimmtudag, á þriðja degi strandveiðitímabils- ins. Um 320 bátar höfðu þá virkjað strandveiðileyfi sín þegar öll veiði- svæði við landið voru með talin. Alfons Finnsson, fréttaritari Skessuhorns, rær á bátnum Sæfinni HF. Fonsi var á tíunda tímanum síð- astliðinn fimmtudagsmorgun stadd- ur um fjórar mílur norðaustur af Ólafsvík þegar slegið var á þráðinn til hans. Þá stundina var skítabræla á miðunum og erfitt að athafna sig. „Það er fiskur hérna, það vantar ekki, en það er mikið rek og færið eins og þvottasnúra. Því er spáð að lægi heldur þegar líður á daginn og maður verður bara að bíða þolin- móður eftir því,“ segir Alfons. Síð- degis kom Fonsi síðan með um 650 kíló til löndunar. Aflann segist hann hafa fengið þegar dúraði á miðun- um í smástund eftir hádegið. Strandveiðibátar frá Ólafsvík náðu sumir reytingi en nokkrir náðu að fylla dagsskammtinn. Verð fyrir aflann var fremur lágt í síðustu viku, en á miðvikudaginn var með- alverðið á markaði um 170 krónur fyrir slægðan þorsk. Þrátt fyrir rysjótta tíð verður að segja að strandveiðarnar hafi geng- ið vel á Snæfellsnesi. Skessuhorn ræddi um hádegisbil á mánudag- inn við Albert Guðmundsson sem rær á Kríu SH. Var hann þá kominn með 550 kíló frá því um morgun- inn en eftir það hafði veiðin dottið niður. „Það er mikið rek og leiðin- legt við þetta að eiga, en það voru sumir komnir að landi strax klukkan tíu í morgun,“ segir Albert og bætti við að aðrir hafi bara ekki verið að fá neitt. „Svona er þetta bara, það er ekki á vísan að róa í þessu frek- ar en öðru,“ sagði Albert sem hélt áfram að reyna að ná síðustu hundr- að kílóunum í dagsskammtinn. mm/af Mikið rek og færið eins og þvottasnúrur Guðlaugur Gunnarsson á Hilmi SH réri á miðvikudaginn í skíta- brælu. Aflinn var um 170 kíló. Ljósm. af. Krían SH á veiðum á Breiðafirði á fimmtudagsmorguninn. Eins og sést er veðrið ekki upp á það besta. Símamynd: af. Telja mátti um 50 báta á veiðum á Breiðafirði á fimmtudaginn samkvæmt MarineTraffic. Á fyrsta degi strandveiðanna, þriðjudaginn 2. maí kom upp bilun í Valdimar SH. Haukaberg SH 20 dró bátinn til hafnar. Ljósm. sk. Börkur Árnason rær á Ás SH. Hér er hann á miðunum síðastliðinn fimmtudagsmorgun. Hér kemur einn báturinn inn til hafnar í Grundarfirði eftir túr á miðvikudaginn í liðinni viku. Hressilega pusaði yfir hann í briminu. Fjær liggur Hringur SH við bryggju. Ljósm. tfk. Það eru ekki allir dagar eins á strandveiðum. Suma dagana gengur allt að óskum, aðra ekki. Vélarbilun kom upp í Hugrún RE á mánudaginn og því var kallað á aðstoð Hafdísar RE sem tók Hugrúnu í tog til hafnar í Ólafsvík. Bátarnir höfðu verið á veiðum í Grundarfjarðarbrúninni. Ljósm. af.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.