Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201726
„Sumarið leggst vel í mig, ekki
spurning. Það er alltaf spenna sem
fylgir því að byrja mótið,“ seg-
ir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA,
í samtali við Skessuhorn. ÍA mæt-
ir Tindastóli í fyrsta leik sumarsins
í 1. deild kvenna föstudaginn 12.
maí. Helena segir undirbúninginn
hafa gengið vel. „Liðið verður klárt
og er í raun alveg tilbúið nú þeg-
ar,“ sagði Helena þegar rætt var við
hana um miðja síðustu viku. „Stelp-
urnar eru spenntar fyrir sumrinu
rétt eins og þjálfararnir. Við fórum í
góða æfingaferð til Spánar þar sem
við gátum æft á grasi í góðu veðri
og erum nýlega byrjaðar að æfa á
grasi hérna heima. Við erum svolít-
ið eins og beljurnar á vorin, spennt-
ar að byrja að spila á grasinu og það
verður æðislegt að byrja mótið,“
segir Helena létt í bragði.
Sterk deild
Aðspurð segir Helena markmið
sumarsins fyrst og fremst vera að
gera vel í deildinni. „Við vitum að
við erum í hörku deild, nú er 1.
deildin í fyrsta sinn í mörg ár með
þessu sniði; alvöru deild þar sem
tvö lið fara upp en ekki riðlar eins
og síðustu ár. Fyrir vikið munu
gæðin aukast. Það var orðin bið eft-
ir þessu og ég er sannfræð um að
þetta verður lyftistöng fyrir íslenska
kvennaknattspyrnu,“ segir hún. „Ef
við skoðum önnur lið í deildinni
þá blasir við að þetta verður hörku
keppni og getur farið á alla vegu.
Liðin sem við spilum á móti eru öll
að styrkja sig með erlendum leik-
mönnum. Við erum ekki þar, ætl-
um að treysta á okkar unga og efni-
lega hóp og ég hef miklar vænting-
ar til stelpnanna. Ég vil að við verð-
um í baráttunni um að komast upp.
Síðan verður bara að komast í ljós
hve tilbúnar við erum í það. Ekkert
lið er í 1. deildinni bara til að vera
þar og við viljum fara upp,“ segir
Helena en bætir því við að til þess
þurfi liðið að spila vel í allt sumar,
enda samkeppnin hörð.
„Maður finnur að til dæmis hjá
HK/Víkingi, sem mistókst að fara
upp í fyrra, verður allt lagt í söl-
urnar í sumar. Síðan hafa lið eins
og Keflavík fjárfest í erlendum leik-
mönnum og þar er krafan að fara
upp. Þá er ég fullviss um að Sel-
foss, sem féll úr Pepsi deildinni í
fyrra, ætlar sér bara að vera eitt ár
í 1. deild. Öll Pepsi deildar liðin
hafa verið að styrkja sig fyrir tíma-
bilið og það smitast niður í 1. deild
sem styrkist fyrir vikið. Þannig að
við munum mæta mörgum sterkum
liðum í sumar,“ segir hún.
Búum til
heimavallarvígi
Aðspurð um styrkleika liðsins
segir Helena hann ekki síst fel-
ast í liðsheildinni. „Það er göm-
ul klisja að segja þetta, en mér
fannst í gegnum vorleikina skína
í gegn hvað liðsheildin er sterk.
Við gefumst ekkert upp þótt á
móti blási. Kannski er það tilkom-
ið vegna þess að stelpurnar hafa
spilað lengi saman, þekkjast bet-
ur en almennt á öðrum stöðum.
Ég held að það hjálpi alltaf til,“
segir hún. Auk þess telur hún að
heimavöllurinn geti orðið liðinu
mikill styrkur í sumar, með góð-
um stuðningi áhorfenda. „Ég hvet
Skagamenn til að vera duglega að
mæta á Akranesvöll í sumar, fal-
legasta völl landsins, til að hvetja
stelpurnar og reyna að búa til
sterkt heimavallarvígi,“ segir Hel-
ena Ólafsdóttir að lokum.
kgk
„Það verður æðislegt að byrja mótið“
- segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA
Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA. Ljósm. úr safni.
Skagamenn munu treysta á ungan og efnilegan hóp og kveðst Helena bera miklar
væntingar til leikmanna sinna. Ljósm. úr safni/ gbh.
„Þetta leggst ágætlega í mig, 1.
deildin í ár verður líka alvöru
deild, ekki riðlar eins og undan-
farin ár. Það var algjörlega kom-
inn tími til að breyta fyrirkomu-
laginu og sumarið verður ansi
krefjandi fyrir ungan hóp,“ segir
Björn Sólmar Valgeirsson, þjálfari
Víkings Ó, í samtali við Skessu-
horn. „Hópurinn er mjög ungur,
við erum með sjö stelpur í hópn-
um sem eru enn í grunnskóla. Það
er eiginlega allt of ungt lið,“ segir
Björn og hlær við, „en það er mun
betra en að vera ekki með lið,“
segir hann. Ekki þarf að fara langt
aftur í tímann þegar sú var raunin
og Víkingur sendi ekki meistara-
flokkslið til keppni í Íslandsmóti
kvenna. „Þetta er fjórða keppnis-
tímabilið okkar síðan liðinu var
komið á fót fyrir fimm árum síð-
an. Liðið og kvennaknattspyrnan í
Ólafsvík hefur vaxið síðan og nú er
allt í blóma í yngri flokka starfinu.
Það eina sem vantar er að Ólsar-
ar búi til fleiri börn, það hafa hlut-
fallslega mun færri stelpur fæðst
hér undanfarinn ár,“ segir Björn
léttur í bragði og hvetur Ólsara til
að láta til sín taka og reyna að búa
til fleiri stelpur.
Mikið breyttur hópur
Víkingur leikur sinn fyrsta leik
gegn liði Hamranna á útivelli laug-
ardaginn 13. maí næstkomandi.
Fyrsti heimaleikur liðsins verð-
ur gegn Selfossi tæpri viku síð-
ar, föstudaginn 19. maí. Aðspurð-
ur um markmið liðsins í deild-
inni í sumar segir hann það einfalt.
„Stóra markmiðið hlýtur að vera
að halda liðinu uppi, það er númer
eitt, tvö og þrjú. En að sama skapi
að gefa okkar ungu og efnilegu
stelpum möguleika á að bæta sig
og styrkja leik sinn. Það er nefni-
lega mikill skóli fyrir unga leik-
menn að spila í 1. deildinni. Við
munum keyra þetta á þeim og sjá
hvernig gengur,“ segir hann minn-
ugur þess að vel hafi gengið síð-
asta sumar. „Liðið gerði ótrúlega
vel í fyrra og komst í undanúrslit-
in eftir riðlakeppnina. Það gekk
nánast allt upp og árangurinn fór
fram úr fremstu væntingum,“ segir
hann. Lið Víkings hefur hins veg-
ar breyst töluvert mikið frá síð-
asta ári. „Við erum búin að missa
níu leikmenn frá því í fyrra af ým-
iss konar ástæðum. Þrjár reynslu-
miklar hættu vegna aldurs og ann-
ríkis og síðan eru aðrar brottflutt-
ar vegna skóla og jafnvel farnar í
önnur lið,“ segir þjálfarinn.
Stelpurnar
vilja bæta sig
„Þannig að það er þungt högg
fyrir okkur að missa svona marga
leikmenn en til að vinna á móti því
fáum við erlenda leikmenn sem
eru væntanlegir bara fyrir helgina.
Þær koma til með að styrkja hóp-
inn,“ segir hann. Þar er um að ræða
Samira Suleman og Janet Egyr,
sem léku með liðinu á síðasta ári,
auk nýs leikmanns sem kynntur
verður á næstunni. „Að mínu viti
er mjög sterkt að geta fengið sömu
erlendu leikmenn og léku með lið-
inu á síðasta ári. Við þekkjum þær
og þær vita að hverju þær ganga,“
segir hann.
Aðspurður telur Björn helsta
styrkleika liðsins felast í ungu og
fersku liði sem sé tilbúið að læra og
bæta sig. „Ásamt því að fá erlenda
leikmenn sem við þekkjum þá held
ég að vilji leikmanna til að læra og
bæta sig sé helsti styrkleiki liðsins.
Vilji til að læra og bæta sig er ótrú-
lega mikill, stelpurnar eru alltaf að
óska eftir aukaæfingum og meira
krefjandi. Það er ótrúlega gam-
an að þjálfa svoleiðis leikmenn,“
segir hann ánægður. „Sjáum hvort
við náum að nýta þennan drifkraft
stelpnanna strax, það kemur í ljós,“
bætir hann við.
Að lokum vill þjálfarinn hvetja
alla til að leggja leið sína á völl-
inn. „Ég vonast til að sjá sem flesta
á öllum leikjum, bæði karla- og
kvennaleikjum í Ólafsvík í sumar
og hvet fólk til að standa við bakið
á liðunum,“ segir Björn Sólmar að
lokum.
kgk/ Ljósm. úr safni.
„Stóra markmiðið að halda liðinu uppi“
- segir Björn Sólmar Valgeirsson, þjálfari Víkings Ó
Ungir og efnilegir leikmenn munu
mynda burðarás Víkingsliðsins í
sumar og meðal þeirra sem verða
í eldlínunni er Birta Guðlaugs-
dóttir, einn efnilegasti markvörður
landsins.
Samira Suleman, sem hér skorar í
leik með Víkingi á síðasta ári, mun
einnig leika með liðinu í sumar, sem
og Janet Egyr. Þá er von á einum
erlendum leikmanni til viðbótar.