Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 21 Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar SK ES SU H O R N 2 01 7 Félagsþjónusta Borgarbyggðar auglýsir lausa stöðu félags- ráðgjafa. Um er að ræða 100% starf. Helstu verkefni og ábyrgð: o Greining og meðferð barnaverndarmála o Félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð o Þjónusta og ráðgjöf við fólk með fötlun o Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu o Forvarnarstarf og fræðsla Menntun og hæfniskröfur: o Starfsréttindi sem félagsráðgjafi o Reynsla á sviði barnaverndar æskileg o Lipurð í mannlegum samskiptum o Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi o Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félagsráðgjafafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 1. júní 2017. Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsráðgjafi í síma 433 7100, netfang: vildis@borgarbyggd.is og Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 840 1522, netfang: annamagnea@borgarbyggd.is „Framkvæmdirnar eru búnar að ganga þokkalega þó það hafi ver- ið svolítið strembið að halda settri áætlun. Engu að síður sýnist mér á öllu að það muni takast og við stefnum að því að opna hér 20. maí samtals 50 herbergi, þar af 30 sem hafa verið endurgerð frá grunni,“ segir Ólafur Sæmundsson bygging- arstjóri í samtali við Skessuhorn á fimmtudag. Framkvæmdirnar sem um ræðir eru stækkun Fosshót- els Reykholts, en þær hafa stað- ið yfir síðan í haust. „Það var allt rifuð úr þessum herbergjum sem verða opnuð í vor, þau bara gerð fokheld og endurnýjuð frá grunni. Þá var hannaður nýr matsalur, eld- hús, sett lyfta og komin ný mót- taka þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja,“ segir Ólafur. „En næsta stóra einstaka verkefnið á dagskrá er frágangur á bílaplaninu. Það á að malbika það í næstu viku samhliða áframhaldandi vinnu innan stokks og utan,“ segir Ólafur. Stækkun hótelsins er mikil fram- kvæmd, en áætlað er að þær kosti um 1,3 milljarða króna og lýsir það e.t.v. best umfangi verksins. „Þetta er búin að vera heljarmikil framkvæmd. Hér hafa að meðal- tali verið um 20 manns við ýmis störf á degi hverjum síðan í októ- ber,“ segir hann. „Þegar þessum hluta er lokið verður farið í að reisa viðbyggingu með 30 herbergjum austan megin við húsið. Þau verða kláruð í haust eða vetur og opnuð fyrir næsta sumar. Þar verður spa og fleira. Þetta verður algjört lúx- ushótel með heitum laugum bæði úti og inni,“ segir Ólafur og nefnir þar á meðal Snorralaug. „Það verð- ur hlaðin laug, eitthvað mótuð eft- ir þeirri sem fyrir er hér í Reyholti. Munurinn verður sá að við verðum með Snorralaug sem má fara í,“ segir hann léttur í bragði. Þegar framkvæmdum við stækk- unina verður að fullu lokið fyrir næsta sumar verða samtals 85 her- bergi á Fosshótel Reykholti. „Þetta verður eitt af stærstu og flottustu hótelum landsins,“ segir Ólafur Sæmundsson byggingarstjóri að lokum. Jarðvinnan gengið vel Þorsteinn Guðmundsson verktaki á Fróðastöðum í Hvítársíðu sér um alla jarðvinnu við hótelið. Var hann að vinna við drenlögn á bílaplaninu fyrir framan hótelið þegar blaða- mann bar að garði. Sér til halds og trausts hefur hann Einar Ólafsson á Gilsbakka. Steini hafði orð á því í léttum dúr að Einar fengi nú lít- ið greitt fyrir störf sín. Einar greip boltann á lofti og sagði bæði gef- andi og skemmtilegt að sinna sjálf- boðavinnu. Það var létt yfir bæði Steina og Einari þennan blíðviðris- dag í Reykholti. Jarðvinnan við hótelið hófst síð- asta haust og sögðu þeir Steini og Einar hana hafa gengið vel á fram- kvæmdatímanum. Þeir reiknuðu með því að ljúka lagnavinnunni daginn eftir og loka planinu því næst. Síðan yrði planið sléttað og heflað og gert klárt fyrir malbikun, en til stóð að malbika í byrjun þess- arar viku eins og Ólafur bygginga- stjóri minntist á hér að ofan. kgk Stækkun Fosshótels Reykholts á áætlun Nýr inngangur hefur verið steyptur framan á Fosshótel Reykholti. Þegar komið er inn fyrir hússins dyr mætir gestum rýmið þar sem móttakan verður. Þar er orðið hátt til lofts og vítt til veggja enda var gólfið úr hæðinni fyrir ofan fjarlægt. Þorsteinn Guðmundsson (t.h.) verktaki á Fróðastöðum sér um alla jarðvinnu við hótelið. Sér til halds og trausts hefur hann Einar Ólafsson á Gilsbakka. Fór vel á með þeim félögum. Bílastæðið fyrir framan hótelið hefur verið stækkað um sem nemur sirka tíu metrum til norðurs. Til stóð að malbika planið í byrjun þessarar viku.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.