Skessuhorn - 10.05.2017, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 20178
Hópferðafyrir-
tæki gjaldþrota
BORGARBYGGÐ: Frétta-
vefurinn mbl.is greindi í síð-
ustu viku frá því að ekkert
hafi fengist upp í 120 milljóna
króna kröfur í þrotabú hóp-
ferðafyrirtækisins Sæmundur
Sigmundsson ehf. Félagið var
í eigu samnefnds fyrrum sér-
leyfishafa í Borgarnesi. Haft
er eftir skiptastjóra að það hafi
verið sýslumaðurinn á Vest-
urlandi sem fór fram á gjald-
þrotaskipti vegna ógreiddra
opinberra gjalda. Rekstur
rútubíla Sæmundar hefur síð-
an árið 2013 verið í höndum
félagsins Hópferðabílar Sæ-
mundar ehf.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 29. apríl - 5.
maí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 17 bátar.
Heildarlöndun: 35.554 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 10.339
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 24 bátar.
Heildarlöndun: 39.686 kg.
Mestur afli: Lea RE: 3.196 kg
í tveimur löndunum.
Grundarfjörður 28 bátar.
Heildarlöndun: 548.427 kg.
Mestur afli: Snæfell EA:
179.424 kg í einni löndun.
Ólafsvík 45 bátar.
Heildarlöndun: 527.269 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
127.171 kg í fjórum löndun-
um.
Rif 32 bátar.
Heildarlöndun: 334.426 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
49.116 kg í þremur löndun-
um.
Stykkishólmur 17 bátar.
Heildarlöndun: 191.434 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
156.477 kg í fjórum löndun-
um.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Snæfell EA - GRU:
179.424 kg. 1. maí.
2. Anna EA - GRU:
74.281 kg. 1. maí.
3. Hringur SH - GRU:
67.210 kg. 2. maí.
4. Anna EA - GRU:
55.952 kg. 5. maí.
5. Tjaldur SH - RIF:
52.096 kg. 2. maí.
-grþ
Framhaldsaðalfundur Hollvina-
samtaka Borgarness verður haldinn
í kvöld, miðvikudag 10. maí, klukk-
an 20 á Sögulofti Landnámsset-
ursins í Borgarnesi. Hollvinasam-
tök Borgarnes eru grasrótarsamtök
íbúa og geta allir sem vilja vinna að
góðum málum fyrir Borgarnes tek-
ið þátt. Eitt aðalverkefni samtak-
anna fram að þessu er að standa fyr-
ir Brákarhátíðinni í Borgarnesi sem
undanfarin átta ár hefur verið hald-
in síðasta laugardag í júní. Í ár hef-
ur Borgarbyggð styrkt hátíðina sér-
staklega í tilefni af 150 ára versl-
unarafmæli bæjarins. Geir Kon-
ráð Theódórsson hefur tekið að
sér að vinna að skapandi verkefn-
um með nemendum grunnskólans
og Menntaskóla Borgarfjarðar sem
mun afraksturinn verða sýnilegur á
hátíðinni.
Hollvinasamtökin hafa einnig í
samstarfi við Borgarbyggð og með
styrk frá Framkvæmdasjóði ferða-
þjónustunnar komið að göngustíga-
gerð í Borgarnesi. Þau hafa stað-
ið að útgáfu á sérteiknuðu korti af
bænum, sem nú stendur til að end-
urprenta, unnið að hreinsunarátaki
í Brákarey og margt fleira.
Á fundinum í kvöld á meðal ann-
ars að ræða undirbúning Brákarhá-
tíðar, greina frá stöðu mála við end-
urgerð Borgarneskortsins og full-
trúar sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar munu kynna ákvörðun Byggð-
arráðs um úthlutun lóða í bænum.
„Engin félagaskrá er í Hollvina-
samtökunum og eru allir velkomn-
ir sem láta sig málefni í Borgarnesi
varða,“ segir í tilkynningu frá Holl-
vinasamtökum Borgarness.
mm/ Ljósm. hlh.
Framhaldsaðalfundur Hollvina-
samtaka Borgarness er í kvöld
Ársreikningur Eyja- og Mikla-
holtshrepps fyrir árið 2016 var
tekinn til fyrri umræðu á fundi
hreppsnefndar í gær, fimmtudag-
inn 4. maí. Þar kemur fram að
reksturinn var jákvæður um 22,1
milljón króna. Er það betri niður-
staða en áætlað hafði verið fyrir í
fjárhagsáætlun, en þar var áætlað
að rekstur samstæðunnar myndi
skila 86 þúsund króna afgangi.
Rekstrartekjur A og B hluta
námu 140,6 milljónum króna á síð-
asta ári. Þar af námu tekjur A hluta
140,3 milljónum. Rekstrargjöld A
og B hluta voru 121,1 milljón og
rekstrarniðurstaða samstæðunnar
22,1 milljón, að teknu tilliti til af-
skrifta, fjármagnstekna og -gjalda.
Þar af var niðurstaða A hlutans já-
kvæð um 23,9 milljónir.
Álagningarhlutfall útsvars var
14,48% en það er hámarksútsvar.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts
í A flokki var 0,5% en hámarkið
er 0,625%. Í B flokki var hlutfallið
1,32% sem er lögbundið hámark
en í C flokki var hlutfallið 0,5% en
hámarkið er 1,65%.
Eigið fé sveitarfélagsins í árs-
lok 2016 var 220,5 milljónir króna
samkvæmt efnahagsreikningi A og
B hluta. Þar af nam eigið fé A hluta
nam 223,1 milljón. kgk
Jákvæð rekstrarniðurstaða Eyja- og Miklaholtshrepps
Grunnskólabörn í Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Ljósm. úr safni.
Ungliðahreyfingar nær allra þing-
flokka hafa tekið höndum sam-
an og skipulagt opinn málfund
um framtíð háskólanna á Íslandi,
undir yfirskriftinni „Uppþorn-
un viskubrunnsins“. Fundurinn er
haldinn þvert á flokkslínur, annars
vegar til að sýna í verki að stuðn-
ingur við menntun sé okkur öll-
um mikilvægur og hins vegar í
von um að þannig verði hægt að
þrýsta á þingið að hlúa betur að
þessari stoð samfélagsins en gert
hefur verið undanfarin ár. Fund-
urinn verður haldinn á Kex hostel
í Reykjavík, í kvöld, miðvikudag-
inn 10. maí, kl. 20:00. Frú Vigdís
Finnbogadóttir verður sérstakur
heiðursgestur á fundinum. Fram-
sögu halda Jón Atli Benediktsson,
rektor HÍ, og Ragna Sigurðardótt-
ir, formaður Stúdentaráðs HÍ. Eft-
ir framsögur verða panelumræður
þar sem í panel munu sitja Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður
allsherjar- og menntamálanefnd-
ar, Steinunn Gestsdóttir, fulltrúi í
Vísinda- og tækniráði, Davíð Erik
Molberg, formaður Landsam-
taka íslenskra stúdenta, Steinunn
Knútsdóttir, deildarstjóri sviðs-
listadeildar Listháskóla Íslands,
og Guðrún Hafsteinsdóttir, for-
maður stjórnar SI og fráfarandi
varaformaður SA. Stjórn fundar-
ins verður í höndum Maríu Rut-
ar Kristinsdóttur, sérfræðings hjá
dómsmálaráðuneytinu og fyrrver-
andi formanns Stúdentaráðs.
Meðal þeirra spurninga sem
leitast verður við að svara á fund-
inum er hvort á Íslandi skorti
framtíðarsýn og hvort líkur séu á
því að við munum í náinni fram-
tíð standa höllum fæti gagnvart
öðrum þjóðum á sviði menntunar,
rannsókna og nýsköpunar.
mm
Háskólanemar. Ljósm. úr safni.
Ungliðar ætla að ræða framtíð háskólanna