Skessuhorn - 10.05.2017, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201720
Í sumar munu Skagahjónin Guðrún
Sigríður Gísladóttir og Guðmundur
S. Jónsson hjóla um 1.300 kílómetra
leið á einni viku, frá Kaupmanna-
höfn til Parísar, þegar þau taka þátt í
einu stærsta samnorræna góðgerða-
verkefni Norðurlandanna;Team
Rynkeby. Um samhjól er að ræða
en ekki keppni, þar sem allir þátt-
takendur hjóla alla leiðina. Ferðin er
krefjandi hjólreiðaferð en liðin hjóla
yfirleitt á 25-27 kílómetra hraða á
klukkustund. Þetta er í fyrsta sinn
sem Ísland verður með þátttöku-
lið í verkefninu. Í íslenska liðinu eru
33 hjólreiðamenn og átta aðstoðar-
menn.
Safnað í hverju landi
fyrir sig
Team Rynkeby er góðgerðaverk-
efni sem hófst árið 2002 þegar ell-
efu starfsmenn danska safafram-
leiðandans Rynkeby Foods ákváðu
að hjóla til Parísar til að hreyfa
sig og fylgjast með lokum Tour de
France. Fyrirtækið var aðalstyrkt-
araðili ferðarinnar, en önnur fyr-
irtæki studdu hana einnig. Svo vel
gekk að safna styrkjum að hagnað-
ur varð, sem starfsmennirnir gáfu
til barnakrabbameinsdeildar sjúkra-
hússins í Odense og þar með skap-
aðist sú hefð. Team Rynkeby hef-
ur farið fram árlega síðan og hefur
stækkað ár frá ári og safnar hvert lið
fyrir félag krabbameinssjúkra barna
í sínu heimalandi. Í ár taka þátt um
1.750 reiðhjólamenn og 400 manna
aðstoðarlið í 44 liðum. Liðin hafa
nýtt veturinn í undirbúning og æf-
ingar fyrir ferðina en þau stefna öll
að sömu markmiðum; að safna pen-
ingum fyrir krabbameinssjúk börn
í hverju landi fyrir sig og til rann-
sókna á þessum banvæna sjúkdómi
og að koma þátttakendum í það
gott form að þeir geti hjólað þessa
vegalengd til Parísar og notið þess.
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir sína
þátttöku, bæði fyrir ferðir og allan
búnað.
Valið í liðin
Guðrún segir í samtali við Skessu-
horn að þau hjónin hafi frétt af við-
burðinum í gegnum blaðaviðtal í
fyrravor. „Þar var talað við íslensk
hjón sem voru að undirbúa þátt-
töku sína með dönsku liði, sem var
forsenda til að stofna íslenskt lið í
framhaldinu. Eftir það fórum við að
fylgjast með verkefninu á netinu og
sóttum í framhaldinu um þátttöku.
Okkur þótti þetta strax mjög spenn-
andi þar sem okkur hefur lengi lang-
að að hjóla erlendis. Síðan er þetta
gríðarleg áskorun um að koma sér
í gott líkamlegt form og frábært að
geta samhliða þessu styrkt gott mál-
efni,“ segir Guðrún. Alls sóttu rúm-
lega 70 manns um að fá að taka þátt
fyrir Íslands hönd og voru 33 vald-
ir úr þeim hópi eftir m.a. einstak-
lingsviðtöl. ,,Það er m.a. leitast við
að hafa aldursbil þátttakenda sem
breiðast og kynjahlutfall sem jafn-
ast,“ útskýrir Guðrún. Íslenska lið-
ið er skipað fólki víðsvegar af land-
inu en Guðrún og Guðmundur eru
einu Vestlendingarnir í liðinu. Fyrir
áhugasama bendir Guðrún á að nú
þegar er hægt að sækja um þátttöku
vegna ferðarinnar 2018 á heimasíðu
verkefnisins www.teamrynkeby.is.
Finnur mest
fyrir setunni
Guðrún og Guðmundur hafa aldrei
tekið þátt í neinu sambærilegu við
Team Rynkeby en þau hafa verið að
hjóla í um það bil fimm ár. Hún seg-
ir þau aldrei hafa hjólað jafn mik-
ið og nú. „Við höfum bara verið
venjulegir hjólarar og hjólað Hval-
fjörðinn einstaka sinnum. Ég fékk
brjósklos fyrir fimm árum og veit að
hjólreiðarnar gera mér gott, ég nota
þær m.a. til að halda mér við.“ Til að
geta tekið þátt í Team Rynkeby þarf
að æfa stíft. Verkefnið framundan er
krefjandi og krefst talsverðrar þjálf-
unar. Íslenska liðið hefur því und-
irbúið sig í allan vetur og hafa Guð-
rún og Guðmundur æft tabata fjóra
morgna í viku. Auk þess hafa þau
verið á hjólaæfingum, á spinning-
hjólum þrisvar í viku. Nú fara hjóla-
æfingarnar allar fram úti. „Það eru
allir þátttakendur á eins racerhjól-
um og í eins fatnaði, fyrir utan aug-
lýsingarnar á fötunum sem eru mis-
munandi eftir liðum. Við fengum
hjólin afhent í lok mars og síðan þá
höfum við bara hjólað úti. Við þurf-
um að hafa hjólað 2.500 kílómetra
á þessum hjólum áður en við för-
um af stað í júlí, til að þjálfa okkur
og venjast setunni á hnakknum. Það
er eitt af því erfiðasta við þetta, að
sitja á hnakk í sex til tíu tíma á dag,
dag eftir dag,“ segir Guðrún. Hjón-
in æfa tvisvar í viku með liðinu en
hjóla sjálf þess á milli.
„Um síðustu helgi hjólaði lið-
ið Hvalfjörðinn og við enduðum á
Akranesi. Hvalfjörðurinn er um 75
km og við hjóluðum svo um Akra-
nes og nágrenni þar til við vorum
komin í 100 kílómetra.“ Guðrún
segist finna mikinn mun á sér eft-
ir allar æfingarnar. Áður hafi henni
þótt ótrúlega langt að hjóla 30 kíló-
metra en núna sé lítið mál að hjóla
50-80 km. „Við hjóluðum til dæmis
rúmlega 50 kílómetra á föstudags-
kvöldið, 100 á laugardaginn og yfir
40 á sunnudaginn. Bara um helgina
voru þetta um 200 kílómetrar. Þetta
tekur aðeins í lærin en maður finnur
mest fyrir setunni.“
Allt að 190
kílómetrar á dag
Ferðin hjá Team Rynkeby Ísland
hefst laugardaginn 8. júlí næstkom-
andi, þegar liðið hjólar af stað frá
Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn.
Að sögn Guðrúnar er áætlað að vega-
lengdir á dag verði frá 82 km á síðasta
degi upp í rúmlega 190 km. „Öll lið-
in koma á svipuðum tíma til Parísar
laugardaginn 15. júlí. Þá hjóla öll
44 liðin saman um 15 km leið í lög-
reglufylgd um París sem endar síð-
an á sameiginlegum stað.“ Á meðan
á ferðinni stendur gista þátttakendur
á hótelum. Liðin fara því mismun-
andi leiðir, þar sem ekki gista allir á
sömu hótelum. „Það er hjólað af stað
milli sjö og átta leytis á morgnanna.
Svo er tekið kortérs kaffi þar sem er
stoppað, hálftíma hádegismatur og
svo aftur kortérs hlé í kaffitímanum.
Eftir það er hjólað þar til komið er
á hótel.“ Guðrún segir íslenska liðið
vera frábæran hóp en hún og Guð-
mundur þekktu engan í hópnum fyr-
ir. „Við höfum kynnst alveg ótrúlega
flottum einstaklingum, jákvæðum og
skemmtilegum. Þetta er spennandi
verkefni en stundum þegar maður
er alveg að gefast upp og skilur ekki
hvað maður er búinn að koma sér út
í, þá hugsar maður um málefnið og
það hvetur mann áfram.“
Enn er hægt að styrkja
verkefnið
Að sögn Guðrúnar hefur íslenska
Team Rynkeby liðinu gengið
ágætlega að safna styrkjum. ,,Við
höfum hingað til aðallega ver-
ið að leita til fyrirtækja, varðandi
styrki og auglýsingar á liðsfatnað.
Allir geta lagt málefninu lið, t.d.
með því að fara inn á heimasíðu
verkefnisins, www.team-rynkeby.
is/styrkur eða haft samband við
okkur. Allir styrkir renna óskert-
ir til Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna á Íslandi. Einnig höf-
um við verið með aðrar fjáraflan-
ir svo sem bíósýningu fyrr í vet-
ur og verðum með styrktargolf-
mót í samstarfi við Golfklúbbinn
Leyni á Garðavelli á Akranesi 27.
maí næstkomandi, en frekari upp-
lýsingar um mótið eru á www.
golf.is. Liðið mun líka æfa saman
þann dag á Akranesi og í nágrenni.
Það eru því mjög spennandi vik-
ur framundan við áframhaldandi
æfingar, safnanir og undirbúning
fyrir ferðina.“ segir Guðrún að
lokum.
grþ
Ætla að hjóla 1.300 kílómetra til
styrktar krabbameinssjúkum börnum
Guðrún og Guðmundur í hjólafatnaðinum sem þau munu nota á ferð sinni frá
Danmörku til Frakklands.
Liðin þurfa að æfa stíft fyrir sumarið.
Hluti íslenska liðsins sem tekur þátt í Team Rynkeby í sumar. Myndin er tekin á æfingu síðastliðna helgi en þá var hjólað í Hvalfirði og á Akranesi.