Skessuhorn - 10.05.2017, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201722
Messað var í Ólafsvíkurkirkju síð-
asta sunnudag. Í þessari messu var
þó mjög gestkvæmt því vígslu-
biskupinn í Skálholti, séra Krist-
ján Valur Ingólfsson, var að vísitera
prestakallið dagana 7. og 8. maí.
Af því tilefni prédikaði hann við
þetta tækifæri. Hann var þó ekki
eini gesturinn sem tekið var á móti
þennan dag því safnaðarfélagar úr
Víðistaðakirkju voru einnig á ferð-
inni. Sóknarprestur kirkjunnar, séra
Bragi Ingibergsson, þjónaði fyrir
altari ásamt séra Óskari Inga Ósk-
arssyni staðarpresti. Kór Víðistaða-
kirkju ásamt Kór Ingjaldshólskirkju
og Kirkjukór Ólafsvíkur sungu.
Fyrir messuna hittust kórnarir til
að æfa saman og njóta góðs hádeg-
isverðar sem gestagjafakórarnir sáu
um. Að messu lokinni bauð sóknar-
nefnd Ólafsvíkurkirkju upp á kaffi í
safnaðarheimilinu. Messa þessi var
einn af viðburðum afmælisársins en
Ólafsvíkurkirkja er 50 ára á þessu
ári. þa
Fjölmenni í messu
í Ólafsvík
Hótel Bifröst, sem er í eigu Há-
skólans á Bifröst, verður selt í opnu
söluferli auk nokkurra annarra
eigna. Hótelinu tilheyra 51 her-
bergi og 170 manna veitingasalur í
fullum rekstri. Auk þess fylgja tvær
fasteignir með samtals 48 litlum
íbúðum. Hægt er að gera tilboð
í allar eignirnar eða hluta þeirra.
Fjárfestum býðst einnig til kaups
fjölbýlishús á svæðinu með sam-
tals 88 herbergjum. Í boði er að
kaupa eignirnar að hluta eða öllu
leyti og því eru þær verðmetnar á
bilinu 1,5 til 2,5 milljarðar. Færi
svo að einn kaupandi myndi fjár-
festa í öllum eignunum gætu allt að
239 herbergi orðið hluti af endur-
bættum hótelrekstri á Bifröst. Yrði
það langstærsti hótelrekstur á Vest-
urlandi og þó víðar væri leitað.
Vegna fækkunar
staðnema
Vilhjálmur Egilsson, rektor Há-
skólans á Bifröst, segir í tilkynningu
að nokkur áhugi hafi þegar ver-
ið sýndur eignum skólans. „Gangi
salan upp í samræmi við áætlanir
skólans mun það gera okkur kleift
að greiða stóran hluta skulda okk-
ar. Það mun hafa gríðarlega jákvæð
áhrif á fjárhagsstöðu skólans,“ seg-
ir Vilhjálmur. Salan eignanna er
að sögn rektorsins til komin vegna
fækkunar í staðnámi við skólann,
en um 80% nemenda við skólann
eru fjarnemar. „Kennslan við Há-
skólann á Bifröst byggist á fjar-
námi en staðnám er einnig í boði.
Undanfarin ár hefur staðnemum
fækkað og íbúðir og herbergi því
verið lítið nýtt. Þess vegna hóf-
um við hótelrekstur árið 2013 sem
gekk vel en núna er von okkar að
öflugur aðili taki við keflinu og
haldi uppbyggingunni áfram svo
við getum einbeitt okkur að rekstri
skólans,“ segir Vilhjálmur.
Capacent hefur umsjón með
söluferlinu og verður sala eign-
anna í höndum löggiltra fasteigna-
sala. Tilboð skulu berast til Capa-
cent eigi síðar en kl. 14 fimmtu-
daginn 8. júní næstkomandi.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Hótel og húseignir á Bifröst til sölu
Félagar í Hestamannafélaginu
Dreyra á Akranesi og Hvalfjarðar-
sveit fögnuðu 70 ára afmæli félags-
ins með því að sýna sig og sjá aðra í
veðurblíðunni á Akranesi síðastlið-
inn laugardag. Fóru Dreyramenn
miðbæjarreið frá hesthúsahverf-
inu við Æðarodda kl. 14 og riðu
sem leið lá niður á Akratorg. Vakti
uppátæki þeirra forvitni og ánægju
meðal vegfarenda. Þegar komið
var að Akratorgi var áð á blettin-
um neðan við Suðurgötu þar sem
gestum og gangandi var boðið að
virða hestana fyrir sér, klappa þeim
og jafnvel bregða sér á bak. Vakti
uppátæki Dreyramanna ekki síst
lukku meðal yngstu kynslóðarinn-
ar, en börnin voru mörg hver ólm
í að klappa hestunum og himinlif-
andi þegar teymt var undir þeim.
Ekki var annað að heyra á Dreyra-
mönnum sjálfum að þeir væru
ánægðir með miðbæjarreiðina í
tilefni afmælisins, enda afar góð
þátttaka meðal félagsmanna. Sitt-
hvað fleira er á dagskrá félagsins.
Meðal annars hópferð á Löngu-
fjörur í næsta mánuði.
kgk
Riðið um Skagann á sjötugsafmælinu
Dreyramenn ríða fylktu liði niður Skagabrautina.Hestarnir vöktu mikla athygli gesta og gangandi við Akratorg, enda ekki á
hverjum degi sem hestar sjást innanbæjar.
Ánægjan í fyrirrúmi. Það er ekki alltaf sem bílar nema staðar fyrir hestum sem teymdir
eru yfir gangbrautina.
Fallegt er vinasamband hests og knapa.
Uppátæki Dreyramanna vakti mikla lukku meðal yngstu kyn-
slóðarinnar.
Börnin fengu að bregða sér á bak. Teymt var undir börnunum.