Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 20172
Um komandi helgi er spáð kólnandi
veðri og má því gera ráð fyrir hálku
eða hálkublettum á vegum í lands-
hlutanum. Förum því varlega í um-
ferðinni, fylgjumst með færð á veg-
um áður en við förum af stað og nú
er góður tími til að setja vetrardekkin
undir bílana ef það er ekki búið.
Á morgun verður vestlæg átt 5-13
m/s og él, en bjartvirði á Suðaustur-
landi og Austfjörður. Vægt frost víða
um land en hiti rétt ofan við frostmark
með ströndinni. Á föstudag eru horf-
ur á norðvestan 15-23 m/s um land-
ið austanvert en hægari vindur á vest-
anverðu landinu. Snjókoma eða él á
Norður- og Austurlandi og léttskýjað
á sunnanverðu landinu. Forost 0 til 6
stig, kaldast í uppsveitum suðvestan-
lands. Á laugardag er útlit fyrir norð-
an 5-10 m/s en 10-15 m/s með aust-
urströndinni. Él á norðanverðu land-
inu og léttskýjað syðra og áfram kalt
í veðri. Á sunnudag stefnir í breyti-
lega átt 3-8 m/s og léttskýjað og kalt
í veðri víða um land, vaxandi suðaust-
anátt og hlýnandi veður með kvöldinu
á vestanverðu landinu. Á mánudag má
gera ráð fyrir sunnanátt með rigningu
eða slyddu á láglendi og snjókomu til
fjalla, hiti 1-6 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Eiga konur að stefna að sér-
stökum kvennaframboðum?“ Flestir
svarenda, eða 65% svöruðu „Nei, alls
ekki.“ „Nei, líklega ekki“ sögðu 13%, en
„Já, ekki spurning“ sögðu 10%. Hlut-
lausir voru 7% og „Já líklega“ sögðu
4%.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða vikudagur finnst þér
skemmtilegastur?
Vestlendingar vikunnar að þessu sinni
eru félagar í björgunarsveitum sem
stóðu vaktina í sölu á Neyðarkallinum
í vikulokin en héldu svo í beinu fram-
haldi af því í björgunarstörf þegar
fyrsta vetrarlægðin gekk yfir á sunnu-
daginn.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Halda
sameiginlegt
bocciamót
AKRA-BORG: Íþrótta-
nefnd félaga eldri borgara
í Borgarfirði og Akranesi
gengst fyrir árlegu einmenn-
ingsmóti í boccia sunnu-
daginn 19. nóvember næst-
komandi í Íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. Mót-
ið hefst klukkan 10:00 og
gert ráð fyrir að mæting í
hús sé hálftíma áður. Keppt
verður í 4/5 manna riðlum
og ræðst riðlafjöldi af þátt-
töku. Keppt verður í flokk-
um kvenna og karla. Hver
leikur er fjórar lotur með sex
boltum. Sigurvegari í hverj-
um riðli leikur síðan til und-
anúrslita/úrslita. Þátttöku
skal tilkynna til Flemmings
Jessen, flemmingj@sim-
net.is eða í síma 868-1008
í síðasta lagi 10. nóvember
kl. 20.00. Þátttökugjald er
3000 krónur og skal greiða
það inn á: 0326-13-110900
kt. 481298-2029 um leið og
skráning er tilkynnt. Innifal-
ið er þátttökugjald og veit-
ingar.
-fréttatilk.
Tíu þræðir
úr sögu
Borgarness
BORGARNES: Fimmtu-
daginn 16. nóvember klukk-
an 20 fer fram annar fyrir-
lestur vetrarins í fyrirlestra-
röð Safnahúss Borgarfjarðar
í Borgarnesi. Þar mun Heið-
ar Lind Hansson, sagnfræð-
ingur og annar af tveim-
ur höfundur bókanna um
Sögu Borgarness, flytja fyr-
irlestur sem hann nefnir Tíu
þræðir úr sögu Borgarness.
„Ég mun draga fram tíu at-
riði sem sem mér finnst vera
rauði þráðurinn eftir skrif
okkar frændanna um 150 ára
sögu bæjarins,“ segir Heiðar
Lind.
-mm
SÍÐASTI PÖNTUNARDAGUR ER TIL
MIÐNÆTTIS Á MIÐVIKUDÖGUM.
AFHENDING ER Á ÞRIÐJUDEGI Í KOMANDI VIKU.
GSM: 865-2580
SMIÐJUVÖLLUM 17
300 AKRANES
SÍMI: 431-2580
WWW.SANSA.IS BORGARNES OG NÁGRENNI:
VIÐ MINNUM Á AÐ SANSABÍLLINN ER Á PLANINU HJÁ
GEIRABAKARÍ, DIGRANESGÖTU 6 BORGARNESI Á
ÞRIÐJUDÖGUM FRÁ KL. 17:00 - 18:00
- ÞÚ SÆKIR
Kíktu inná SANSA.IS
1 32
Veðurstofa Íslands kynnti síðastlið-
inn miðvikudag til leiks nýtt viðvör-
unarkerfi. „Með nýju kerfi er leitast
við að auka þjónustu við almenning
og hagsmunaaðila. Helstu breyt-
ingar í útgáfu viðvarana verða þær
að nýja kerfið tekur meira tillit til
aðstæðna hverju sinni. Stakir veð-
urfarsþröskuldar verða úr sögunni,
en það eru viðmið sem Veðurstofan
hefur notað, svo sem 20 m/s fyrir
vind og 100 mm úrkoma á 24 klst.
Þau víkja nú fyrir viðmiðum sem
taka tillit til árstíðar og aðstæðna í
hverju tilviki fyrir sig,“ sagði í til-
kynningu. Ekki þurfti lengi að bíða
að reyndi á nýja kerfið, en fyrir síð-
astliðinn sunnudag gilti appelsínu-
gul viðvörun sem varaði við storm-
inum sem þá gekk yfir mestallt
landið.
Nýja viðvörunarkerfið byggir á
alþjóðlegum staðli sem kallast CAP
(Common Alerting Protocol) og er
stafrænt snið fyrir miðlun neyðar-
tilkynninga og viðvarana um nátt-
úruvá. Útgefin skeyti eru á þekktu,
stöðluðu formi sem gerir alla miðl-
un viðvarana samræmda yfir mis-
mundandi samskiptaleiðir og miðla.
Hvert CAP skeyti inniheldur upp-
lýsingar um þá náttúruvá sem var-
að er við, landshluta sem viðvörun-
in nær til, gildistíma og mat á því
hversu mikil áhrif umrædd vá get-
ur haft á samfélagið. Fyrsta útgáfa
kerfisins nær eingöngu til viðvar-
ana vegna veðurs, en áætlað er að
innan örfárra ára muni kerfið ná til
allrar náttúruvár sem Veðurstofan
vaktar.
Viðvaranirnar verða í litum; gul-
um, appelsínugulum og rauðum lit
í samræmi við alvarleika væntan-
legs veðurs. Litirnir eru að erlendri
fyrirmynd (meteoalarm.eu) og hafa
fjölmargar evrópskar veðurstofur
tekið þá í notkun. Rauðar viðvar-
anir eru hæsta stig og boða mikil
samfélagsleg áhrif af veðri; gular
viðvaranir eru lægsta stig þar sem
annað hvort samfélagsleg áhrif eru
takmörkuð þó miklar líkur séu á
veðrinu, eða minni líkur á áhrifum
mikils veðurs lengra fram í tímann.
Viðvörunarlitur ákvarðast af
mati sérfræðinga á væntanlegum
áhrifum veðursins og líkum á því
að spáin gangi eftir. Samfélagsleg
áhrif geta verið mismunandi, s.s.
truflanir á samgöngum, eignatjón,
skemmdir á mannvirkjum og líkur
á slysum, jafnvel mannskaða. Við-
bragðsaðilar verða hafðir með í
ráðum um útgáfu viðvarana á efri
stigum og má þar nefna Almanna-
varnadeild Ríkislögreglustjóra og
Vegagerðina. Veðurfræðingar gefa
frekari lýsingu á atburðinum í texta
sem fylgir viðvöruninni.
mm
„Ég vona að bílstjóri flutninga-
bílsins sem tók framúr að minnsta
kosti fimm bílum í Hvalfjarðar-
göngum í morgun um klukkan
07:15 komist heill á húfi á leið-
arenda. Hann reyndi sitt til að ég
kæmist ekki til Reykjavíkur í morg-
un. Ég hélt að mitt síðasta væri að
renna upp þarna undir sjávarmáli
í Hvalfirðinum,“ skrifaði ökumað-
ur bíls á suðurleið í Hvalfjarðar-
göngum síðastliðinn miðvikudag.
Viðkomandi var mjög brugðið og
vakti máls á aksturslagi flutninga-
bílstjórans á samfélagsmiðlum.
Marinó Tryggvason er öryggis-
stjóri Spalar sem rekur Hvalfjarð-
argöngin. Hann segir í samtali við
Skessuhorn að öryggismyndavél-
ar fari sjálfkrafa á upptöku ef eitt-
hvað óeðlilegt sé við akstur í göng-
unum, meðal annars ef ekið er yfir
miðlínu eða þegar eitthvað fer
úrskeiðis. Marinó segir að víða í
göngunum sé ekki óbrotin miðlína
en engu að síður stutt á milli strik-
anna. Slíkt þýðir að framúrakstur
er ekki óheimill en engu að síð-
ur óæskilegur nema ökumenn sjái
að greinilega sé svigrúm til fram-
úrakstur án þess að skapa hættu.
„Um akstur í gegnum jarðgöng
sem og annars staðar á þjóðvegum
gildir að hann byggi á heilbrigðri
skynsemi ökumanna. Ef flutninga-
bíll fer fram úr fimm bílum í jarð-
göngum, eins og þetta atvik lýsir,
er augljóslega um vítaverðan akst-
ur að ræða. Framúrakstur er alltof
algengur í göngunum en ef hann
er þar sem miðlínan er brotin eru
ökumenn strangt til tekið ekki að
brjóta lög og því getum við fátt
gert í slíkum tilfellum. Við mun-
um engu að síður skoða þetta til-
tekna atvik,“ segir Marinó.
Því má bæta við að eftir að frétt
þessa efnis birtist á vef Skessuhorns
í síðustu viku voru þrír vegfarend-
ur um Hvalfjarðargöng sem höfðu
svipaða sögu að segja um glæfra-
legan akstur ökumanna stórra bíla
um göngin, einkum framúrakstur
þar sem aðstæður leyfa slíkt ekki.
mm
Vítaverður framúrakstur flutninga-
bílstjóra í Hvalfjarðargöngum
Veðurstofan kynnir
nýtt viðvörunarkerfi
Áhrifatafla mun fylgja útgefinni við-
vörun á vef Veðurstofunnar.
Hér má sjá appelsínugula viðvörun
sem gefin var út vegna hvassviðrisins
síðastliðinn sunnudag.