Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 13 Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is. Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna www.skessuhorn.is þar sem boðið er upp á helstu stærðir vefborða. Nánari upplýsingar í síma 433-5500. VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir vönduðum sumar húsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á lands byggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2017. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði: - Lýsing á eign og því sem henni fylgir - Ástand íbúðar og staðsetning - Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár - Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í annað sinn í Bíó- höllinni á Akranesi helgina 10.-12. nóvember. „Það var mjög góð stemning í fyrra,“ segir Ársæll Rafn Erlingsson, hátíðarstjóri í sam- tali við Skessuhorn. Von er á fjölda gesta á hátíðina í ár, bæði erlendum og íslenskum. Alls verða fjörutíu stuttmyndir sýndar á hátíðinni að þessu sinni, þar af eru fimmtán ís- lenskar og tuttugu og fimm erlend- ar. Frítt er inn á alla viðburði há- tíðarinnar. „Við fengum styrk frá Menningarráði Vesturlands til að gera þetta mögulegt,“ segir Ársæll og bætir við að styrkurinn hafi ver- ið hækkaður töluvert síðan í fyrra. Hann vonast til að Vestlendingar kíki við á hátíðinni þar sem frítt er inn á viðburðina. „Við viljum gefa svolítið til baka því það hafa allir verið svo hjálplegir og tilbúnir að gefa af sér.“ Ársæll og konan hans, Lovísa Halldórsdóttir, standa fyrir hátíð- inni í sameiningu. Þau eru bæði út- skrifuð úr Kvikmyndaskóla Íslands. „Við vorum í forvalsnefnd fyrir há- tíðina og horfðum á um 250 stutt- myndir og völdum úr þeim þessar fjörutíu sem verða í sýningu á há- tíðinni.“ Ársæll segir að Lovísa hafi alltaf haft mikinn áhuga á hryll- ingsmyndum og þaðan komi hug- myndin. Hann hafi aftur á móti þróað seinna með sér áhugann. Þau fundu fyrir því að það vantaði vett- vang til að sýna hryllingsmyndir og ákváðu því að skapa hann sjálf. „Við vorum með þrjár stuttmyndir á hátíðinni í fyrra,“ segir Ársæll. Áhugi á hryllingmyndum hef- ur aukist mikið á síðustu árum. „Það er svona vakning í þessu inn- an Kvikmyndaskólans. Þegar við byrjuðum fyrir tveimur eða þrem- ur árum var minna um hryllings- myndir. Við erum með myrkrið og þjóðsögurnar, það vantaði bara vettvanginn.“ Hátíðin verður sett á föstudags- kvöldinu 10. nóvember í Bíóhöll- inni á Akranesi með sýningu á myndinni The Circle sem er bresk hrollvekja með íslensku leikkon- unni Sesselju Ólafsdóttur í aðal- hlutverki. Sesselja og Peter Cal- low, leikstóri myndarinnar, svara spurningum áhorfenda að lok- inni sýningu. Húsið verður opnað klukkan sjö en sýning myndarinnar hefst klukkan átta. Eftir sýninguna verður hryllings pub quiz í Dular- fullu búðinni við Skólabraut. klj Hryllingsmyndahátið á Akranesi um næstu helgi Gestir á hátíðinni í fyrra fylgjast spenntir með framvindu einnar stuttmyndar- innar. Dagskrá hátíðarinnar í ár. Bluetooth heyrnarhlífar við vinnuna Heyrnarhlífar með útvarpi og bluetooth tengingu við síma. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. •PÁSKATILBOЕ Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.