Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 201716 „Þegar við komum í febrúar þá hafði gert mikla snjókomu og all- ir vegir voru lokaðir. Það var um það bil tveggja feta snjóþekja yfir öllu saman. Mjög fallegt um að lit- ast en kom aðeins flatt upp á okk- ur,“ segja Rachel Stroud og Niall Tierny í samtali við Skessuhorn. Niall er Íri en Rachel er ensk og bæði starfa þau sem fuglafræðing- ar. Síðan í febrúar hafa þau dvalið á Hvanneyri og unnið að heildarút- tekt á fuglalífi friðlandsins í Anda- kíl. Hlutu þau styrk til rannsókn- arinnar úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar og Landbúnað- arháskóli Íslands útvegaði þeim húsnæði. Skessuhorn hitti Rachel og Niall að máli á heimili þeirra á Íslandi, sem er lítil íbúð á Hvann- eyri, og ræddi við þau um rann- sóknina, fuglana og þau sjálf. Heildarúttekt á fugla- lífinu í Andakíl „Við höfðum komið til Íslands áður í fríum, bæði saman og sitt í hvoru lagi og líkaði alltaf vel. Fyr- ir nokkru síðan vorum við að leita að tilbreytingu í starfi og skrifuð- um meðal annars Landbúnaðarhá- skólanum hér og fundum í sam- starfi við skólann verkefni sem væri gagn að hér og okkur þætti áhuga- vert að vinna,“ segir Niall. „Í stuttu máli snýst verkefnið um að rann- saka og fylgjast með fuglalífinu í friðlandinu við Andakíl í eitt ár. Við fylgjumst með og skrásetjum hvaða fuglar koma hingað að vori, hvaða tegundir koma við og líka hvaða fuglar dvelja hér sumarlangt til að fjölga sér og síðan hvaða fuglar snúa aftur frá norðlægari slóðum að hausti,“ útskýrir Rachel. „Á þessum tíma ársins fylgjumst við síðan með brottför nær allra fuglanna, þeir eru mjög fáir eftir. Við vildum geta lýst og skrásett fuglalífið allt árið um kring,“ bætir hún við. „Þetta er að sumu leyti eins og að gera vörutaln- ingu í búð,“ segir Niall og brosir. „Það er verið að afla með skipu- lögðum hætti upplýsinga um hvaða fuglar eru hér á þessu svæði allt árið um kring. Í framtíðinni verð- ur hægt að nýta okkar rannsókn til samanburðar, ef einhverjum skyldi detta í hug að rannsaka fuglalífið á þessu svæði í framtíðinni,“ bætir hann við, en athugun sem þessi hef- ur ekki verið gerð áður í Andakíl. Alltaf haft áhuga á fuglum Það þarf ekki að ræða lengi við Ni- all og Rachel til að merkja að þau hafa virkilega ástríðu fyrir sínu fagi. Þegar fuglar eru til umræðu læðist ánægjubros yfir andlit þeirra og vilja glöð tala um hvaðeina sem tengist dýrunum. En hvað varð til þess að þau lögðu fuglafræðina fyr- ir sig? „Fuglafræðin er mér nánast í blóð borin,“ segir Rachel. „Fað- ir minn er fuglafræðingur og þegar ég fór í frí með fjölskyldunni sem barn þá var hann alltaf að benda okkur á hinar og þessar tegund- ir og fræða okkur. Ég gat líklega ekki komist hjá því að leggja þetta fyrir mig. Mér finnst það frábært því ég hef mikla ánægju af því sem við gerum og ber mikla virðingu fyrir starfi föður míns,“ bætir hún við. Niall kveðst sömuleiðis hafa haft dálæti á fuglum alla tíð. „Sem barn hafði ég alltaf mikinn áhuga á fuglum en ég man ekki eftir því að neinn í fjölskyldunni hafi deilt þeim áhuga. Einhvern tímann fékk ég fuglabók að gjöf og í gegnum alla mína skólagöngu var ég mjög áhugasamur um náttúruna og um- hverfið, en aðallega fuglana,“ seg- ir hann. Hefðu þau ekki lagt fag- ið fyrir sig eru þau fullviss um að bæði væru þau miklir fuglaáhuga- menn í dag. „Fuglaskoðun er mjög þægilegt áhugamál. Fuglar eru svo aðgengilegir, þeir eru alls staðar. Hvar sem er í heiminum er hægt að fara út og fylgjast með fuglun- um,“ segir Niall. Gott að starfa úti og inni Því varð úr að þau lærðu bæði til fuglafræðings og hafa starfað sem slíkir um nokkurt skeið. Bera þau starfi fuglafræðings vel söguna þó það sé ekki alveg eins og þau höfðu ímyndað sér í upphafi. „Starfsferill okkar beggja hefur fram til þessa snúist að mestu um að gera mæl- ingar og þess háttar vinnu. Fyrstu árin eftir að ég útskrifaðist vann ég nær eingöngu með gögn, að- stoðaði þá sem söfnuðu gögnum á vettvangi við að halda utan um þau og vinna úr þeim. Mér fannst því mjög gott að komast aftur út í vettvangsrannsóknir, sem eru stór hluti af rannsókn okkar hér,“ seg- ir Rachel. „Ég held að draumurinn sé alltaf, hjá fólki eins og okkur, að vera ekki á skrifstofunni 40 klukku- stundir á viku heldur viljum við gegna starfi þar sem við fáum að fara út. Maður heldur að þetta feli í sér að geta verið úti allan tímann í góðu veðri að fylgjast með falleg- um tegundum í fögru umhverfi, en raunveruleikinn er allt annar. Maður ver um það bil þriðjungi tímans við vettvangsrannsóknir og afgangurinn er við tölvu að vinna úr gögnunum,“ segir Niall. Hann segir rannsóknina í Andakíl í raun dæmigerða fyrir starf fuglafræð- ings sem vinnur bæði á vettvangi og við úrvinnslu gagna. „Þegar við vinnum á vettvangi skiptum við svæðinu upp í hluta, teljum alla fuglana og skrásetjum. Það tekur kannski klukkutíma eða tvo og síð- an færum við okkur í næsta hluta svæðisins. Að því loknu snúum við aftur á skrifstofuna þar sem hver einasti fugl sem skráður hefur ver- ið þarf að fara inn í gagnagrunn- inn. Síðan þarf að fara yfir gögn- in, kanna hver heildarfjöldi fugla er og að lokum þarf alltaf að skila skýrslu um rannsóknina. Þannig er ferlið í stuttu máli,“ segir Niall. „Mann dreymir alltaf um að verja öllum sínum tíma á vettvangi en í raun má maður vera þakklátur fyr- ir að fá þó allavega hluta vinnu- dagsins utandyra,“ segir hann og brosir. „Andakíll er einstakur staður“ Fuglafræðingarnir hafa orð á því að þeim þyki mikið til friðlandsins í Andakíl koma. „Andakíll er ein- stakur staður. Hér eru 63 fugla- tegundir sem við höfum skráð það sem af er ári,“ segir Rachel. „Það er töluvert mikið. Samanbor- ið við önnur lönd eru tiltölulega fáar tegundir á Íslandi, einfaldlega vegna þess að það er eyja og langt frá öðrum löndum. Þrátt fyrir það eru stofnar flestra fugla sem hér hafast við frekar stórir,“ segir Ni- all. Þá segja þau fjölbreytni svæð- isins afar mikla. „Í friðlandi Anda- kíls, sem er um tvö þúsund hektar- ar að stærð, er mikil flóra og það er vegna þess að innan friðlandsins er að finna mörg og mismunandi bú- svæði; árósinn, ræktað land, gras- lendi, votlendi, grófari heiðarlönd og fleira. Fjölbreytni búsvæða ger- ir það að verkum að hér er að finna mjög fjölbreyttar fuglategundir,“ segir hann. „Í Andakíl er því mjög mikil fjölbreytni á tiltölulega smáu svæði,“ bætir Rachel við. „Það hef- ur líka verið mjög gaman að rekast á fugla sem við höfum merkt ann- ars staðar hér í Andakíl. Núna höf- um við séð fugla sem við merktum sjálf í þremur löndum; Grænlandi, Ísland og Bretlandi, sömu einstak- lingana. Það er mjög skemmti- legt,“ segja þau. Fuglar og menn á förum Um þessar mundir hefur fjöl- breytnin í fuglalífinu þó minnkað, einfaldlega vegna árstíðarinnar. „Núna eru flestir fuglarnir farnir og tegundin sem við höfum hvað mestan áhuga á, blesgæsin, er far- in síðan um síðustu helgi. Fram- undan er því minni vettvangsvinna en verið hefur því tegundirnar eru mikið til horfnar á braut,“ seg- ir Niall. „En það verður meira en nóg að gera hjá okkur við að vinna úr rannsókninni í vetur. Það eru stífar vikur framundan við að vinna úr gögnum, skrifa skýrslur og kynna niðurstöðurnar,“ bætir Rachel við og brosir. Árstíðabreytingin boðar líka breytingu fyrir Niall og Rachel. Þau halda af landi brott í endað- an nóvember. Aðspurð segjast þau ekki vita hvað tekur við. Eftir að þau skili af sér skýrslum um rann- sóknina í Andakíl muni þau leita sér að næsta verkefni. „Við förum annað hvort til Írlands, þaðan sem ég er, eða til Englands á heima- slóðir Rachel. Það er ekki einu sinni ákveðið. Við höfum okkar sambönd á sitt hvorum staðnum og munum reyna að nýta þau í leit að næsta verkefni. Það er ekkert ákveðið en þetta reddast, eins og þið segið hérna á Íslandi,“ segja þau og brosa en hafa á orði að þau eigi eftir að sakna bæði lands og þjóðar. „Fólkið hérna er alveg dásamlegt og við höfum fundið fyrir miklum áhuga og stuðningi við okkar verkefni frá þorpsbú- um hér á Hvanneyri. Við höfum kynnst yndislegu fólki, farið með því í útreiðartúra og átt margar góðar stundir með heimamönn- um. Það hafa allir sem við höfum kynnst verið einstaklega hjálplegir og yndælir,“ segja þau. „Ég vildi að við hefðum lagt okkur meira fram við að læra íslenskuna. Það lá alltaf fyrir að við yrðum bara í tæpt ár, ef við hefðum verið lengur er enginn vafi að við hefðum sótt íslensku- námskeið og reynt að læra málið,“ segir Niall. „Svo er þetta líka bara leti,“ segir Rachel og brosir. „Vin- ir okkar í þorpinu tala óaðfinnan- lega ensku og það letur okkur við að læra íslenskuna. Ég skammast mín aðeins fyrir að hafa ekki lagt mig fram við að læra tungumálið,“ bætir hún við. Fuglarnir leiddu þau saman Blaðamanni hefur nokkra stund leikið forvitni á að vita hvar leið- ir þeirra Rachel og Niall lágu sam- an og ákveður loks að bera upp spurninguna. Sagan af fyrstu fund- um þeirra hverfist að sjálfsögðu um fuglana. „Við kynntumst á Vestur-Grænlandi árið 2014 þar sem við vorum í leiðangri þar sem fylgst var með blesgæsunum á þeirra æxlunarsvæði. Það vildi svo til að við fórum í þessa sömu ferð og þar hittumst við í fyrsta sinn,“ segir Rachel og brosir. „Það vill þannig til að þessi gæsastofn hef- ur hnignað mjög undanfarna ára- tugi. Blesgæsir dvelja í Skotlandi og Írlandi á veturna, um 35% allra blesgæsa í heiminum. Þessar sömu gæsir koma til Íslands á vorin þar sem þær fita sig eins og þær geta áður en þær fljúga að vesturströnd Grænlands þar sem þær eru yfir fengitímann. En þeim fækkar ört og við vitum ekki af hverju. Þeg- ar við sjáum þær heima á veturna eru þær vel haldnar. Hér á Íslandi er sömu sögu að segja. Þær hafa það gott á veturna og á vorin en þegar þær koma aftur til Íslands á haustin eftir veruna á Grænlandi „Fuglar eru svo aðgengilegir - þeir eru alls staðar“ Fuglafræðingarnir Rachel og Niall rannsaka fuglalífið í Andakíl Blesgæsir í stórum hópi og Skarðsheiðin í baksýn. Það voru einmitt rannsóknir á blesgæsinni sem leiddu þau Niall og Rachel saman á sínum tíma. Fuglafræðingarnir Niall Tierny og Rachel Stroud. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.