Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 08.11.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2017 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Snæfell sigraði Breiðablik á úti- velli þegar liðin mættust í Dom- ino‘s deild kvenna í körfuknatt- leik á miðvikudagskvöld. Blika- konur leiddu með 15 stigum fyr- ir lokafjórðunginn en Snæfell með magnaðri endurkomu náði Snæfell að knýja fram sigur, 85-89. Snæfellskonur höfðu heldur yf- irhöndina í fyrsta leikhluta, náðu mest sex stiga forskoti en Breiða- blik jafnaði í 24-24 áður en leik- hlutinn var úti. Jafnræði var með liðunum næstu mínútur en þá hófst góður kafli Breiðabliks. Jafnt og þétt náðu Blikar tíu stiga for- skoti áður en hálfleiksflautan gall, 47-37. Breiðablik hafði yfirhöndina í þriðja leikhluta og ekkert benti til þess að Snæfell myndi kom- ast aftur inn í leikinn. Blikakonur höfðu 15 stiga forskot fyrir loka- fjórðunginn og stóðu með pálm- ann í höndunum. Snæfell náði að minna muninn niður í tíu stig þeg- ar fjórði leikhluti var hálfnaður og leit út fyrir að heimaliðið færi með sigur af hólmi. En síðustu fimm mínúturnar settu Snæfellskonur í fluggírinn. Það gekk nánast allt upp hjá þeim í vörn og sókn, þær skoruðu 17 stig gegn þremur síð- ustu mínúturnar og tókst að vinna ótrúlegan endurkomusigur, 85-89. Kristen McCarthy og Berglind Gunnarsdóttir áttu báðar stórleik fyrir Snæfell og skoruðu samtals 75 af 89 stigum liðsins. Kristen lauk leik með 41 stig og 17 fráköst en Berglind skoraði 34 stig. Ivory Crawford var með 29 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar í liði Breiðabliks, Thelma Lind Ásgeirs- dóttir 15 stig og 6 stoðsendingar og Ísabella Ósk Sigurðardóttir 14 stig og 14 fráköst. Snæfell hefur sex stig eftir fyrstu sjö leiki deildarinnar og situr í sjöunda sæti með jafn mörg stig og Keflavík í sætinu fyrir ofan og Breiðablik í sætinu fyrir neðan. Næsti deildarleikur Snæfells fer fram miðvikudaginn 22. nóvember þegar liðið heimsækir Keflavík. kgk Mögnuð endurkoma Snæfells gegn Breiðabliki Kristen McCarthy átti stórleik fyrir Snæfell. Ljósm. úr safni/ Haukur Páll. Skallagrímur vann góðan sigur á bár- áttuglöðum Gnúpverjum, 96-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á fimmtudagskvöld. Jafnræði var með liðunum í upp- hafi leiks en eftir miðjan fyrsta leik- hluta tóku Skallagrímsmenn öll völd á vellinum. Þeir keyrðu upp hraðann í leiknum, skoruðu mikið og leiddu með 20 stigum eftir upphafsfjórð- unginn, 20-40. En Gnúpverjar voru mættir til að berjast. Þeir hittu betur úr skotum sínum í öðrum leikhluta og gáfu Skallagrími ekkert eftir. Borgnesingar voru þó alltaf sterkara liðið og leiddu með 25 stigum í hálf- leik, 42-67 og voru komnir í ákjósan- lega stöðu fyrir síðari hálfleikinn. En Gnúpverjar voru ekkert á því að gefast upp þó forysta Skallagríms væri mikil. Þeir mættu gríðarlega ákveðnir til síðari hálfleiks, börð- ust vel og létu finna fyrir sér. Þeim tókst að koma Skallagrímsmönnum úr takti og smám saman hrundi hvert stigið af fætur öðru af forskoti Borg- nesinga. Gnúpverjar skoruðu 38 stig gegn 21 í þriðja leikhluta og allt í einu var örugg forysta Skallagríms komin niður í aðeins átta stig fyrir lokafjórðunginn. En nær komust Gnúpverjar ekki. Borgnesingar hertu tökin og náðu endanlega að slíta sig frá heima- mönnum í fjórða leikhluta. Þeir náðu 20 stiga forskoti á nýjan leik um miðjan lokafjórðunginn og unnu að lokum 14 stiga sigur, 96-110. Vesturlandsslagur framundan Zac Carter var atkvæðamestur Skallagrímsmanna með 33 stig og 5 stoðsendingar. Eyjólfur Ásberg Hall- dórsson skoraði 28 stig og tók 10 frá- köst, Kristófer Gíslason var með 17 stig og 5 stoðsendingar og Hjalti Ás- berg Þorleifsson skoraði 12 stig. Everage Lee Richardson skoraði 36 stig, tók 5 fráköst og gaf 10 stoð- sendingar í liði Gnúpverja og Þórir Sigvaldason var með 23 stig. Skallagrímur hefur sigrað alla fimm leiki sína í vetur og trón- ir á toppi deildarinnar með tíu stig, tveimur stigum á undan næstu lið- um. Næsti leikur Skallagríms er Vesturlandsslagur gegn Snæfelli. Sá leikur fer fram í Borgarnesi á morg- un, fimmtudaginn 9. nóvember. kgk Skallagrímur lagði baráttuglaða Gnúpverja Leikstjórnandinn Zac Carter var stigahæstur Skallagrímsmanna í sigri á Gnúpverjum. Ljósm. jho. Snæfell valtaði yfir Þór Ak., 42-89, þegar liðin mættust í 16 liða úrslit- um Maltbikars kvenna í körfuknatt- leik. Leikurinn fór fram á Akureyri á laugardaginn. Þór leikur í 1. deild kvenna en Snæfell leikur sem kunn- ugt er í Domino‘s deildinni. Snæfellskonur byrjuðu leikinn af krafti og komust í 5-13 snemma leiks. Þá hægðist á stigaskorinu og meira jafnræðis gætti með liðunum næstu mínúturnar. Heimakonur minnkuðu muninn í 9-13 en Snæfell hafði sex stiga forstko eftir upphafsfjórðung- inn, 11-17. Það var síðan í öðrum leikhluta sem leiðir skildu. Snæfells- konur héldu Þórsliðinu stigalausu fyrstu fjórar mínúturnar en hinum megin á vellinum skoruðu þær hverja körfuna á fætur annarri. Eins og hendi væri veifað voru þær komnar með 20 stiga forystu, 12-32 og leik- hlutinn ekki hálfnaður. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks skoraði Snæfell tíu stig gegn átta stigum heimakvenna og leiddi með 22 stigum í hléinu, 20-42. Snæfell lék á als oddi eftir hléið á meðan Þórsliðið átti afar erfitt upp- dráttar. Heimakonur töpuðu bolt- anum ítrekað, hittu illa og skoruðu aðeins sex stig allan þriðja leikhluta á móti 26 stigum Snæfells. Staðan eft- ir þrjá leikhluta var 26-68 og aðeins formsatriði fyrir Snæfell að klára leik- inn. Heimakonum gekk heldur betur á lokakaflanum miðað við það sem á undan hafði gengið en töpuðu leik- hlutanum engu að síður með fimm stigum. Snæfell vann að lokum 47 stiga risasigur á 1. deildar liði Þórs, 42-89. Rebekka Rán Karlsdóttir var stiga- hæst í liði Snæfells með 24 stig en hún tók 6 fráköst að auki. Berglind Gunnarsdóttir skoraði 16 stig, tók 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar, Krist- en McCarthy var með 15 stig og 15 fráköst og Anna Soffía Lárusdóttir var með 12 stig og 6 fráköst. Heiða Hlín Björnsdóttir var stigahæst leik- manna Þórs með 17 stig og tók hún 7 fráköst að auki. Með sigrinum tryggðu Snæfells- konur sér áframhaldandi þátttöku í Maltbikarnum. Dregið var í næstu umferð bikarsins í gær og þar fær Snæfell heimaleik gegn Val. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 10. og 11. desember næstkomandi. kgk Snæfell valtaði yfir Þór Ak. í bikarnum Rebekka Rán Karlsdóttir var stigahæst leikmanna Snæfells í bikarleiknum gegn Þór Ak. Ljósm. úr safni/ sá. Snæfell heimsótti úrvalsdeildar- lið ÍR í 16 liða úrslitum Maltbik- ars karla í körfuknattleik á sunnu- dag. Máttu Hólmarar sætta sig við tap, 99-76 eftir nokkuð jafnan leik framan af. Heimamenn höfðu heldur und- irtökin í upphafi leiks en Snæfell- ingar voru ekki langt undan. Góður kafli ÍR-inga undir lok fjórðungsins tryggðu þeim þó níu stiga forskot að honum loknum, 22-13. Snæfell- ingar voru ákveðnari í öðrum leik- hluta. Með góðum leik tókst þeim að minnka forskot heimamanna í tvö stig, 30-28, um miðjan fjórð- unginn. En ÍR-ingar luku fyrri hálf- leiknum af krafti og náðu níu stiga forskoi á nýjan leik áður en flautað var til hálfleiks. Staðan í hléinu var 48-39, ÍR í vil. Jafnt var á með liðunum í upp- hafi síðari hálfleiks og hverri körfu var svarað. Snæfellingar náðu að minnka forystu ÍR-inga í fjögur stig um miðjan þriðja leikhluta en eftir það tóku heimamenn stjórn leiksins í sínar hendur. Með snörpum kafla náðu þeir 16 stiga forskoti áður en þriðji leikhluti var úti, 77-61. Þarna náðu heimamenn að slíta sig frá Snæfellingum í fyrsta sinn í leikn- um og þeir hleyptu þeim ekki inn í leikinn aftur. ÍR-ingar stjórnuðu ferðinni í lokafjórðungnum, héldu Snæfelli í skefjum og unnu að lok- um 23 stiga sigur, 99-76 og bikar- ævintýri Snæfells þar með á enda þennan veturinn. Geir Elías Úlfur Helgason var stigahæstur leikmanna Snæfells í leiknum. Hann skoraði 20 stig og tók 6 fráköst að auki. Christian Co- vile skoraði 18 stig og tók 10 frá- köst og Jón Páll Rúnarsson var með 10 stig. Ryan Taylor var atkvæðamestur ÍR-inga með 24 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar en honum næstur kom Kristinn Marinósson með 21 stig. kgk Bikarævintýri Snæfells á enda Geir Elías Úlfur Helgason var stigahæstur leikmanna Snæfells í bikarleiknum gegn ÍR. Ljósm. þe. Skallagrímur sigraði Hauka í æsi- spennandi leik í Domino‘s deild kvenna í Borgarnesi á miðviku- dag í liðinni viku. Fyrri hálfleik- ur var kaflaskiptur en leikurinn var í járnum í þeim síðari og úr- slitin réðust ekki fyrr en í blálokin. Skallagrímur sigraði með þremur stigum, 68-65. Gestirnir úr Hafnarfirði mættu ákveðnir til leiks en Skallagríms- liðið átti erfitt uppdráttar í byrj- un. Haukar komust í 0-14 áður en fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá tóku Skallagrímskonur leikhlé og í kjölfarið öll völd á vellinum. Þær minnkuðu forskot gestanna í eitt stig áður en leikhlutinn var úti, 19-20. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í öðrum fjórðungi og leiddu með fimm til sex stig- um stærstan hluta hans. Skömmu fyrir hléið náðu Haukakonur smá spretti og minnkuðu forskotið í tvö stig, en Skallagrímur átti loka- orðið í fyrri hálfleik. Staðan í hálf- leik var 31-25, Skallagrími í vil. Eftir hléið var leikurinn í járn- um og mikið jafnræði með lið- unum. Haukar komust yfir í og héldu tveggja til þriggja stiga for- ystu á upphafsmínútum síðari hálfleiksins. Skallagrímur komst síðan stigi yfir um miðjan þriðja leikhluta en það voru Haukakon- ur sem leiddu fyrir lokafjórðung- inn, 50-51. Fjórði og síðasti leik- hluti var eins og einn stór rússí- bani. Liðin skiptust á körfum og aldrei munaði meira en örfáum stigum. Haukar leiddu með þrem- ur stigum þegar tvær og hálf mín- úta lifði leiks. En Skallagrímskon- ur skoruðu næstu fjögur stig og skömmu síðar náðu þær að skella í lás í vörninni þar sem gestirn- ir brunnu á tíma og skotklukkan rann út. Haukakonum lá mikið á síðustu sekúndur leiksins en hittu ekki úr skotum sínum og niður- staðan varð því þriggja stiga sigur Skallagríms. Carmen í sérflokki Carmen Tyson-Thomas var í al- gjörum sérflokki í leiknum gegn Haukum. Hún átti stórleik, skor- aði 41 stig og reif niður 19 fráköst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með 9 stig og 10 fráköst og Heið- rún Harpa Ríkharðsdóttir skoraði 9 stig einnig. Cherise Michelle Daniel skor- aði 23 stig og tók 10 fráköst fyr- ir Hauka og Helena Sverrisdóttir var með 20 stig og 16 fráköst. Skallagrímur krækti með sigrin- um í sitt áttunda stig í vetur og sit- ur í 4. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Stjarnan í sætinu fyr- ir ofan en tveimur stigum á undan næstu liðum. Næsti leikur Skalla- gríms í deildinni fer fram mið- vikudaginn 22. nóvember næst- komandi þegar liðið mætir Njarð- vík í Borgarnesi. kgk Skallagrímur sigraði Hauka í miklum spennuleik Carmen Tyson-Thomas átti magnaðan leik í liði Skallagríms. Ljósm. Skallagrímur/ Ómar Örn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.