Skessuhorn - 08.11.2017, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 20176
Ragnar Þór
formaður KÍ
LANDIÐ: Ragnar Þór Pét-
ursson hefur verið kjörinn
formaður Kennarasambands
Íslands. Þrjú voru í framboði
til formanns KÍ og féllu at-
kvæði þannig að Guðríður
Arnardóttir hlaut 34,2% at-
kvæða, Ólafur Loftsson 6,9%
og Ragnar Þór 56,3%. Auð-
ir seðlar voru 2,6%. Á kjör-
skrá voru 10.675 og greiddu
5.691 atkvæði, eða 53,3%.
Atkvæðagreiðslan var raf-
ræn. Ragnar Þór tekur við
formennsku af Þórði Árna
Hjaltested á VII þingi Kenn-
arasambandsins sem fram fer
í apríl á næsta ári. Þórður
lætur þá af embætti en hann
hefur gegnt formennsku í KÍ
frá árinu 2011. Eiríkur Jóns-
son var fyrsti formaður KÍ,
sat frá árinu 2000 til 2011.
-mm
Málaferli vegna
uppsagnar
AKRANES: Í gærmorgun
var dómtekið í Héraðsdómi
Reykjavíkur mál sem Hafliði
Guðjónsson höfðar gegn rík-
inu vegna meintar ólögmæt-
ar uppsagnar hans við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Tildrög málsins eru
að Hafliða, sem þá var nýráð-
inn aðstoðarskólamesitari við
FVA, var sagt upp störfum
fyrirvaralaust í lok september
2015. Hann hyggst nú leita
réttar síns og réði Lúðvík
Bergvinsson hdl. til að sækja
málið. -mm
Árlegt
æskulýðsball
VESTURLAND: Hið ár-
lega Æskulýðsball fyrir
nemendur elsta stigs grunn-
skóla verður haldið í Hjálm-
akletti í Borgarnesi fimmtu-
daginn 9. nóvember frá kl.
20:00-23:00. Það er félags-
miðstöðin Óðal sem heldur
þetta ball ár hvert og koma
saman unglingar frá öllum
félagsmiðstöðvum á Vestur-
landi. -mm
Brýnir
fólk til að
flokka sorp
STYKKISH: Hlutfall
sorps sem fer til endur-
vinnslu í Stykkishólmi
hefur minnkað, samkvæmt
skráningu á vegum sveit-
arfélagsins. „Sú þróun er
ekki ásættanleg og bend-
ir til þess að bæta þurfi
sorpflokkun,“ segir Sturla
Böðvarsson bæjarstjóri í
auglýsingu sem birtist í
síðasta tölublaði Skessu-
horns. Þar ávarpar hann
íbúa bæjarins og brýnir
bæði þá sem og gesti bæj-
arins til að flokka sorp.
„Undirritaður, fyrir hönd
bæjarstjórnar, vill hvetja
íbúa Stykkishólms og gesti
okkar til þess að bæta flokk-
un á sorpi og koma þannig
til móts við þá eindregnu
stefnu Stykkishólmsbæj-
ar að vera í fremstu röð
þeirra sveitarfélaga sem
leggja áherslu á umhverf-
ismál,“ segir hann. Sturla
segir góða flokkun sorps
og aukna endurvinnslu
sýna vilja til þess að hafa
umhverfismál í hávegum.
„Tökum höndum saman
og bætum flokkun sorps-
ins sem fellur til í Stykk-
ishólmi,“ segir Sturla að
endingu.
-kgk
Hægt er að skoða nýjar 360°
götumyndir af húsum í landinu
á kortavef Já.is. Teknar voru ríf-
lega fimm milljónir mynda í sum-
ar. „Við höfum reglulega endur-
nýjað götumyndir á svæðum sem
hafa verið í uppbyggingu sem og
svæðum sem breytast ört. Okk-
ur finnst afar mikilvægt að end-
urnýja myndirnar með reglulegu
millibili til að sýna sem réttasta
mynd af götum landsins. Í ár tók-
um við ákvörðun um að endur-
nýja allan myndagrunninn okk-
ar og keyrðum um allt land. Þá
hefur tækninni einnig fleygt fram
og nýr tækjabúnaður var tekin í
notkun. Jafnframt er nú hægt að
skoða myndirnar í nýju viðmóti.
Þegar við mynduðum fyrst árið
2013 fylgdi Google í kjölfarið og
myndaði götumyndir. Þessi upp-
færsla á kortavef Já býður því upp
á fleiri og nýrri myndir,“ segir
Margrét Gunnlaugsdóttir hjá Já.
Í samræmi við persónuvernd-
arlög eru andlit og bílnúmer
skyggð á myndunum. Jafnframt
birtast eingöngu 360° myndir við
heimilisfang þeirra einstaklinga
sem hafa gefið upplýst samþykki
en hægt er að gefa samþykki fyr-
ir birtingu myndar á skraningar.
ja.is.
mm
Nýjar 360°götumyndir á kortavef Já
Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa sem
kunnugt er samþykkt að ganga til
samninga við fyrirtækið Work North
ehf. um niðurrif húsnæðis og búnað-
ar Sementsverksmiðjunnar. Útboðs-
verkinu var skipt upp í tvo þætti og
mun fyrirtækið sjá um framkvæmd á
þætti eitt. Tólf tilboð bárust í verkið
þegar það var boðið út og átti Work
North lægsta boð. Það hljóðaði upp
á rúmar 175 milljónir króna, eða um
54% af kostnaðaráætlun sem unnin
var af verkfræðistofunni Mannviti.
Eftir að ákveðið var að ganga til
samninga við lægstbjóðenda spratt
upp nokkur umræða um fyrirtækið,
bæði meðal bæjarbúa og verktaka á
Akranesi en einnig í fjölmiðlum. DV
greindi til að mynda frá því að aðil-
ar tengdir Work North tengdust slóð
gjaldþrota og væru til rannsóknar hjá
skattrannsóknarstjóra vegna ýmissa
brota.
Vegna umfjöllunar um fyrirtækið í
fjölmiðlum hefur Akranesbær sent frá
sér tilkynningu, sem birt var á heima-
síðu bæjarins á mánudag. „Vegna
málsins og til frekari upplýsingar er
rétt að taka fram að eftir að ljóst var að
Work North átti lægsta tilboðið sem
var lægra en kostnaðarmat gerði ráð
fyrir, leitaði sveitarfélagið sér upplýs-
inga um verk sem félagið hafði unnið
hjá Hafnarfjarðarbæ fyrir skemmstu.
Um var að ræða niðurrif húss í Hafn-
arfirði sem kallað var Dvergurinn.
Félaginu var borin vel sagan varð-
andi það verk. Jafnframt var upplýst
að hæfi félagsins hefði verið skoðað
og að sú skoðun hafi ekki leitt í ljós
nein atriði sem útilokuðu félagið frá
því verki,“ segir í yfirlýsingu Akra-
neskaupstaðar. Þá segir enn frem-
ur að skýringa hafi verið óskað frá
félaginu vegna þess hve lágt tilboð
þess var miðað við kostnaðaráætlun.
„Þær skýringar sem gefnar voru voru
metnar trúverðugar af sérfræðingum
sveitarfélagsins,“ segir í yfirlýsing-
unni. „Vegna ábendinga um að fé-
lagið eða forsvarsmenn þess tengdust
glæpastarfsemi eða slíkum aðilum var
jafnframt óskað eftir upplýsingum
um eigendur og eigendur þeirra fé-
laga (lögaðila) sem eiga Work North
m.a. sakarvottorðum forsvarsmanna.
Á þeim eða í þeim gögnum kom ekk-
ert þar fram, að mati lögmanns sveit-
arfélagsins, sem leitt gæti til þess að
Akraneskaupstaður gæti hafnað boði
Work North. Jafn ítarleg skoðun
á tilboðsaðila hefur ekki farið fram
áður af hálfu sveitarfélagsins og það
þrátt fyrir að félagið hafi unnið fyrir
fleiri sveitarfélög.“ kgk
„Jafn ítarleg skoðun ekki farið fram
áður af hálfu sveitarfélagsins“
Samið við Work North um niðurrif Sementsverksmiðjunnar