Skessuhorn - 08.11.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 20178
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 28. október -
3. nóvember.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 10.936 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 10.247
kg í tveimur róðrum.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 7 bátar.
Heildarlöndun: 168.563 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.305 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 9 bátar.
Heildarlöndun: 120.002 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 44.076 kg í fimm róðr-
um.
Rif: 11 bátar.
Heildarlöndun: 117.976 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
29.813 kg í fjórum löndunum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 92.841 kg.
Mestur afli: Hannes Andr-
ésson SH: 34.956 kg í fimm
róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
67.305 kg. 1. nóvember.
2. Helgi SH - GRU:
44.514 kg. 30. október.
3. Farsæll SH - GRU:
39.989 kg. 31. október.
4. Sigurborg SH - GRU:
15.465 kg. 31. október.
5. Tryggvi Eðvarðs SH - ÓLA.
11.086 kg. 31. október.
-kgk
Á ellefta tímanum síðastliðið laug-
ardagskvöld var Slökkvilið Snæ-
fellsbæjar kallað út eftir að hafnar-
verðir veittu eftirtekt að reyk lagði
frá stýrishúsi á 17 tonna stálbátnum
Neista HU sem lá í Ólafsvíkurhöfn.
Að sögn Svans Tómassonar slökkvi-
liðsstjóra var eldur í kabyssu bátsins
og var hann fljótt slökktur, en litlar
skemmdir urðu nema vegna reyks.
„Við vorum innan við eina mínútu að
fara niður að höfn þar sem slökkvi-
liðsmenn voru allir í búningum nið-
ur á slökkvistöð,“ sagði Svanur: „Við
vorum nýkomnir heim úr fræðslu-
ferð til annarra slökkviliða á Vestur-
landi þegar útkallið barst og vorum
að taka til eftir ferðina þegar útkallið
barst. Viðbragðstíminn var því með
allra stysta móti,“ sagði Svanur af
Stuttur viðbragðstími þegar
reyks varð vart í bát
Í lok síðustu viku og um helgina
seldi björgunarsveitarfólk hér
á landi hina frægu neyðarkalla.
Hagnaður af sölunni rennur beint
til björgunarsveitanna og verður
hann notaður til að efla búnað og
styrkja þjálfun björgunarsveitar-
fólks. mm
Björgunarsveitarfólk seldi
neyðarkalla um land allt
Á meðfylgjandi mynd eru þeir Ísak Máni og Sigurjón félagar í Björgunarfélagi
Akraness að selja Svanborgu Bergmannsdóttur neyðarkall í Einarsbúð. Ljósm. ki.
Félagar í Björgunarsveitininni
Ósk gengu hús úr húsi í Búðardal
á fimmtudaginn og buðu fólki að
styrkja sveitina með kaupum á
Neyðarkallinum. Jóhanna Lind Brynj-
ólfsdóttir, björgunarsveitarkona í
Búðardal, var ein þeirra sem bauð
Neyðarkall. Naut hún dyggrar
aðstoðar því Sara Rós dóttir hennar
slóst í för með móður sinni og lagði
sitt af mörkum við söluna, eins og
sést á meðfylgjandi mynd af Söru Rós
með Neyðarkallinn. Ljósm. jlb.
Samkvæmt nýrri hagspá hagdeildar
ASÍ fyrir árin 2017-2019 sýnir hag-
kerfið nú merki um að hægja muni
á umsvifum eftir kraftmikinn hag-
vöxt undanfarinna ára. „Toppi hag-
sveiflunnar hefur verið náð en áfram
verður umtalsverður hagvöxtur á spá-
tímanum sem drifinn verður af vexti
einkaneyslunnar fremur en auknum
útflutningi eða fjármunamyndun,“
segir í tilkynningu frá ASÍ.
Spáin gerir ráð fyrir að hægja muni
á vexti ferðaþjónustunnar og að gengi
krónunnar verði nokkuð stöðugt yfir
spátímann. „Þó eru margir óvissu-
þættir til staðar, ekki síst í ríkisfjár-
málum, ferðaþjónustu og húsnæðis-
málum og því gæti þróunin orðið
önnur. Þannig myndi hraðari kóln-
un í ferðaþjónustu hafa töluverð
áhrif víða, t.d. á vinnumarkaði og
fasteignamarkaði sem drægi úr vexti
einkaneyslu og fjárfestingum.“
Vöxtur einkaneyslu nær hámarki
á þessu ári en verður þó áfram tölu-
verður á næstu árum. Það hægir á
fjármunamyndun atvinnuveganna
en íbúðafjárfesting verður helsti drif-
kraftur fjárfestinga yfir spátímann.
Verðhjöðnun án hús-
næðisliðar í vísitölu
Fram kemur að húsnæðisverð er
orðið sögulega hátt í kjölfar mikilla
hækkana undanfarinna ára. Þær má
rekja til lítils framboðs af nýju hús-
næði, mannfjölgunar og aukinnar
kaupgetu heimilanna. „Aðstæður á
húsnæðismarkaði eru því varasam-
ar þeim sem hyggja á skuldsett hús-
næðiskaup. Merki eru um að hægt
hafi á umsvifum á húsnæðismark-
aði en slíkar aðstæður kunna að vera
tímabundnar þar sem svigrúm heim-
ilanna til aukinnar skuldsetningar er
enn nokkuð.“ Framangreind þróun
á húsnæðismarkaði er einnig megin-
drifkraftur verðbólgu undanfarinna
missera. Verðbólga mældist 1,4% í
ágúst en sé horft framhjá áhrifum
húsnæðisverðs hefur verðlag hjaðnað
um 3%. Verði þróun efnahagslífsins í
takt við spá okkar eru forsendur fyr-
ir því að verðbólga verði innan vik-
marka á næstu árum, 2,6% á næsta ári
og 2,9% árið 2019.
Litlar breytingar verða á vexti sam-
neyslunnar á spátímanum, eða um
2% árlega en hlutdeild samneyslunn-
ar í vergri landsframleiðslu heldur
áfram að lækka og verður lægra en að
meðaltali sl. tuttugu ár. „Að óbreyttu
munu tekjur ríkissjóðs ekki duga til
að fjármagna núverandi útgjöld þeg-
ar hægir á í efnahagslífinu og við
blasir niðurskurður eða aukin skatt-
heimta þvert á hagsveifluna. Vinnu-
markaðurinn gefur skýrar vísbend-
ingar um að hápunkti hagsveiflunnar
hafi verið náð og spáin gerir ráð fyrir
að atvinnuleysi aukist lítillega næstu
tvö ár, verði 2,5% árið 2018 og 2,9%
árið 2019. Aukin umsvif í ferðaþjón-
ustu hafa átt stóran þátt í að fjölga
störfum, en á síðustu mánuðum hef-
ur störfum tengdum henni fjölgað
hægar en síðustu ár. Vinnuaflseftir-
spurn er nú mætt með meiri innflutn-
ingi erlends vinnuafls en áður hefur
þekkst hér á landi,“ segir að endingu í
hagvaxtarspá ASÍ. mm
ASÍ spáir því að toppi hagsveiflunnar sé náð
Þróun á húsnæðismarkaði er megindrifkraftur verðbólgu undanfarinna missera. Án húsnæðisliðar sem mældur er inn í
vísitöluna hefði orðið verðhjöðnun hér á liðnum mánuðunum. Ljósm. kgk.
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað gerir þú í
þínum frístundum?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi)
Bergsveinn Logi Ríkharðsson:
Hitti vini mína.
Sólveig Þorsteinsdóttir:
Ég er með vinum mínum.
Bjarney Helga Guðjónsdóttir:
Er með vinum mínum.
Stefán Kaprasíus:
Spila langoftast körfubolta.
Þórir Halldórsson:
Spila fótbolta.