Skessuhorn - 08.11.2017, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 201722
Síðastliðinn sunnudag var hátíðar-
messa í Stafholtskirkju í Borgarfirði
þegar þess var minnst að 140 ár eru
frá vígslu kirkjunnar. „Í Stafholti
hefur kirkja verið í meira en níu
aldir, enda er helgi staðarins mik-
il. Góð kirkjusókn var af þessu til-
efni og kirkjunni voru færðar góðar
gjafir,“ segir séra Elínborg Sturlu-
dóttir sóknarprestur.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands prédikaði og rifjaði
hún m.a. upp stórviðri í Borgarfirði
þegar hún var prestur á Hvann-
eyri. Elínborg þjónaði fyrir altari
og kirkjukórinn söng við undirspil
Jónínu Ernu Arnardóttur. Brynjólf-
ur Guðmundsson í Hlöðutúni, for-
maður sóknarnefndar, fór yfir sögu
kirkjunnar. Að messu lokinni var að
vanda boðið í kaffi á prestssetrinu
þar sem margt var um manninn.
mm
Héldu upp á 140 ára afmæli
Stafholtskirkju
Sóknarprestur ásamt biskupi, öðrum prestum í héraði og organista. Stafholtskirkja í Borgarfirði.
Hjónin Auður Líndal og Baldur
Ólafsson tóku við rekstri Garða-
kaffis á Akranesi í maí 2016 og seg-
ir Auður að reksturinn hafa geng-
ið mjög vel. „Við bjóðum að sjálf-
sögðu upp á kaffi og kökur auk þess
sem hægt er að koma og fá holl-
an og léttan hádegismat fjóra daga
í viku og mætir alltaf ákveðinn
kjarni fólks. Hér tökum við gjarn-
an á móti hópum við ýmis tilefni en
þá er vinsælt að bjóða upp á tapas-
réttina okkar, sem eru fjölbreyttir
og heppilegir réttir fyrir fjölmenna
hópa,“ segir Auður í samtali við
blaðamann.
Safavikur
Á Garðakaffi eru reglulega haldn-
ar safavikur fyrir þá sem vilja taka
safahreinsun. Þá er boðið uppá að
kaupa sex safa í einu, sem er einn
dagsskammtur. „Ætlunin er að
fólk drekki eingöngu þessa safa og
borði ekkert annað, í þeim tilgangi
að hreinsa líkamann og núllstilla
meltinguna,“ segir Auður. „Það
hefur komið mér skemmtilega á
óvart hversu vinsælar safavikurn-
ar hafa verið og hversu fjölbreytt-
ur hópur fólks tekur þátt í hverri
viku. Ég held að þegar fólk finnur
hversu góð áhrif þetta hefur á lík-
amann sé ekki aftur snúið. Safarnir
eru stútfullir af næringu og vítam-
ínum og er ég viss um að einn dags-
skammtur af þeim sé næringarrík-
ari en maturinn sem flestir borða
á venjulegum degi,“ segir Auður
og bætir því við að fæstir sem taki
þátt finni fyrir hungri. „Ég held að
margir óttist hungrið á meðan þeir
taki safahreinsun, en það er venju-
lega ekki vandamál. Ég mæli með
að allir prófi og sjái hvort þetta
henti þeim. Það er ekki þörf á að
taka heila viku, hver og einn finnur
hvað hentar. Sumir taka alla vikuna
á meðan aðrir taka einn dag. Flest-
ir eru að taka um þrjá daga, sem er
mjög fínn tími,“ segir Auður.
Góður vettvangur
fyrir viðburði
Aðspurð hvort eitthvað nýtt sé í
kortunum á Garðakaffi segir Auður
svo ekki vera. „Við erum ekki að fara
út í neinar breytingar en það þýðir
ekki að allir dagar hér séu eins. Hér
er dagurinn oft brotinn upp með
skemmtilegum viðburðum og hvet
ég fólk eindregið til að hafa sam-
band ef það er í leit að húsnæði fyr-
ir sérstök tilefni, hvort sem um er að
ræða opinn viðburð eða fyrir lok-
aða hópa,“ segir Auður og bætir því
við að reglulega sé eitthvað sérstakt
í gangi á Garðakaffi. „Við vorum
með hrekkjavökugleði hér á laugar-
daginn 4. nóvember og mættu 1334
einstaklingar til okkar og skemmtu
sér mjög vel. Við lögðum mikið í að
gera þetta ógnvekjandi og var mik-
ið um öskur. Þetta er eitthvað sem
við komum örugglega til með að
endurtaka,“ segir hún. „Hér verður
vöfflubar og markaður laugardaginn
25. nóvember þar sem seldur verð-
ur ýmiss varningur. Svo þegar jól-
in nálgast fjölgar eflaust viðburð-
um hjá okkur en það á enn eftir að
skipuleggja nánar.“ arg
Mælir með safahreinsun fyrir alla
Í heimsókn á Garðakaffi á Akranesi
Auður Líndal sér um reksturinn á
Garðakaffi ásamt eiginmanni sínum
Baldri Ólafssyni
Snitturnar á Garðakaffi hafa verið mjög vinsælar fyrir hópa. Ljósm. fengin af
Facebook síðu Garðakaffis.
„Við vorum með hrekkjavökugleði hér laugardaginn 4. nóvember og mættu
1334 einstaklingar til okkar og skemmtu sér mjög vel. Við lögðum mikið í að
gera þetta ógnvekjandi og var mikið um öskur. Þetta er eitthvað sem við komum
örugglega til með að endurtaka,“ segir Auður. Hér er hún ásamt þremur öðrum
uppvakningum. Ljósm. Byggðasafnið í Görðum.
Vöffluhlaðborð er alltaf vinsælt á Garðakaffi. Ljósm. fengin af Facebook síðu
Garðakaffis.