Skessuhorn - 08.11.2017, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 201730
Snæfell og ÍA mættust í fyrsta
deildarleik liðanna svo árum
skiptir þegar þau áttust við
í Vesturlandsslag 1. deildar
karla í körfuknattleik á laug-
ardag. Leikurinn fór fram í
Stykkishólmi og var aldrei
spennandi. Snæfell hafði yfir-
höndina frá upphafi til enda og
vann að lokum öruggan sigur,
116-79.
Snæfell byrjaði betur og
Skagamenn máttu hafa sig alla
við að halda í við heimamenn
í upphafi leiks. Um miðjan
fyrsta leikhluta hafði Snæ-
fell fimm stiga forskot, 18-13,
en eftir það tóku heimamenn
mikinn sprett. Þeir náðu 15
stiga forystu, 31-16 en Skaga-
menn áttu lokaorðið í upphafs-
fjórðungnun. Með góðri rispu
síðustu mínúturnar minnk-
uðu þeir muninn í níu stig
áður en leikhlutinn var úti,
34-25. Snæfellingar tóku síð-
an öll völd á vellinum í öðrum
fjórðungi. Þeir skoruðu fyrstu
tólf stig leikhlutans, stungu
Skagamenn af og leiddu með
23 stigum í hálfleik, 63-40.
Heimamenn héldu áfram að bæta
við forystu sína jafnt og þétt í síðari
hálfleik en Skagamenn virtust heill-
um horfnir. Eftir þriðja leikhluta
var forysta Snæfells orðin 37 stig
og sá munur hélst meira og minna
óbreyttur allt til leiksloka. Sami
munur var síðan á liðunum þegar
lokaflautan gall. Snæfell sigraði ÍA
með 116 stigum gegn 79.
Christian Covile var at-
kvæðamestur í liði Snæfells
með 27 stig, 10 fráköst og 7
stoðsendingar. Nökkvi Már
Nökkvason var með 25 stig,
Geir Elías Úlfur Helgason
20 stig og 5 fráköst og Viktor
Marinó Alexandersson 19 stig.
Derek Shouse skoraði 33
stig og tók 10 fráköst í liði
Skagamanna, Björn Steinar
Brynjólfsson 12 stig og 7 frá-
köst en aðrir höfðu minna.
Eftir leikinn er Snæfell í
4. sæti deildarinnar með sex
stig, tveimur stigum minna en
Breiðablik í sætinu fyrir ofan.
Í sætinu fyrir neðan er Fjöln-
ir með sex stig einnig en hef-
ur leikið einum leik fleira en
Snæfell. Næsti deildarleik-
ur Hólmara er annar Vestur-
landsslagur, því á morgun,
fimmtudaginn 9. nóvember,
mætast Snæfell og Skalla-
grímur í Borgarnesi.
ÍA vermir botnsæti deild-
arinnar og er stigalaust, rétt
eins og lið FSu í sætinu fyr-
ir ofan, en ÍA eiga þó leik til góða.
Næst leika Skagamenn föstudaginn
10. nóvember og mæta Breiðabliki
á Akranesi.
kgk
Skallagrímskonur unnu góðan úti-
sigur á 1. deildar liði Fjölnis þegar
liðin mættust í 16 liða úrslitum Mal-
tbikarsins á föstudagskvöld. Eftir
jafnan fyrri hálfleik stungu Borgnes-
ingar af í þeim síðari og sigruðu að
lokum með 18 stigum, 69-87.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafsfjórðungnum en Skallagríms-
konur höfðu þó heldur yfirhöndina.
Liðin fylgdust að framan af fyrsta
leikhluta og það var ekki fyrr en
undir lok hans að Skallagrímskon-
ur náðu góðri rispu og leiddu með
sex stigum að honum loknu, 15-21.
Fjölnisliðið gaf ekkert eftir og
minnkaði muninn í eitt stig snemma
í öðrum leikhluta. Eftir það náðu
Skallagrímskonur aftur yfirhönd-
inni en Fjölnir var aldrei langt und-
an. Skallagrímur leiddi með fimm
stigum í hálfleik, 38-33.
Það var síðan eftir hléið að leið-
ir skildu. Skallagrímskonur gersam-
lega kafsigldu Fjölnisliðið í þriðja
leikhluta. Þær hertu tökin í vörninni
og héldu Fjölni án stiga fyrstu sjö
mínútur síðari hálfleiks og léku vel
í sókninni. Með þessum stórgóða
leikkafla náðu þær 29 stiga forskoti,
33-62 og gerðu í raun út um leik-
inn. Staðan að loknum þriðja fjórð-
ungi var 44-67 fyrir Skallagrími og
úrslit leiksins ráðin. Fjölnisliðið náði
aðeins að koma til baka í lokafjórð-
ungnum en sigur Skallagríms var
aldrei í hættu. Að lokum fór svo að
Skallagrímskonur sigruðu með 18
stigum, 89-87.
Carmen Tyson-Thomas skor-
aði 29 stig og tók 15 fráköst í liði
Skallagríms. Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir var með 26 stig, 7 fráköst og
6 stoðsendingar, Bríet Lilja Sigurð-
ardóttir 11 stig og 8 fráköst og Jó-
hanna Björk Sveinsdóttir 10 stig og
13 fráköst.
Berglind Karen Ingvarsdóttir var
stigahæst í liði Fjölnis með 20 stig
og 5 fráköst að auki en McAlle Fell-
er skoraði 19 stig og tók 7 fráköst.
Með sigrinum tryggði Skalla-
grímur sér áframhaldandi þátttöku í
bikarnum. Dregið var í átta liða úr-
slitum bikarkeppninnar í hádeginu
í gær, þriðjudag. Skallagrímskonur
voru dregnar fyrstar upp úr pott-
inum og fá því heimaleik gegn ÍR
í átta liða úrslitum. Leikirnir í átta
liða úrslitum fara fram 10. og 11.
desember næstkomandi.
kgk
Skallagrímskonur settu í
fluggírinn í síðari hálfleik
Carmen Tyson-Thomas og Jóhanna Björk Sveinsdóttir verjast hér aðgangsharðri
Fjölniskonu í bikarleiknum á föstudag. Ljósm. Fjölnir Karfa/Facebook.
Íþróttanefnd Félags aldraðra í
Mosfellsbæ stóð á sunnudaginn
fyrir móti í ringói í íþróttahúsinu
við Varmá. Keppendur voru 25 og
komu frá þremur félögum. Vegna
slæmrar veðurspár var aðeins spiluð
ein umferð þar sem spilað var í 15
stig í hverjum leik. Úrslit urðu þau
að keppendur í liði eitt frá UMSB
báru sigur úr býtum með 8 stigum,
í öðru sæti varð lið heimamanna og
HSK í þriðja. Vegna slæmrar veð-
urspár var ákveðið að stytta mótið
þannig að allir kæmust heilir heim.
Að sögn Flemmings Jessen er næsta
skipulagða ringómót fyrirhugað í
Borgarnesi í mars.
mm
Kepptu í ringói á
móti í Mosfellsbæ
Sigursveit UMSB; Þorbergur, Smári, Anna og Sveinn, með verðlaun sín en allir
þátttakendur voru leystir út með rós.
Snæfell vann öruggan sigur á ÍA
Christian Covile var atvæðamestur í liði Snæfells.
Ljósm. úr safni/ Haukur Páll.
Haustmót í stökkfimi fór fram laug-
ardaginn 4. nóvember í íþróttahús-
inu við Vesturgötu á Akranesi. Keppt
var frá 4. flokki upp í meistaraflokk
og átti Fimleikasamband Akraness,
FIMA, 100 keppendur á mótinu
en samtals voru keppendur um 250
talsins frá átta félögum. Keppendur
FIMA stóðu sig með stakri prýði að
sögn Þórdísar Þráinsdóttur yfirþjálf-
ara. „Við áttum keppendur á verð-
launapalli í öllum flokkum auk þess
sem við tókum öll verðlaun í opn-
um flokki 16 ára og eldri og opnum
flokki 15 ára og yngri,“ segir Þórdís.
Valdís Eva Ingadóttir tók sig til og
var fyrsti iðkandi FIMA til að keppa
í tvöföldu heljarstökki með beinan
líkama og hálfri skrúfu. „Við höfum
aldrei verið með svona marga kepp-
endur í tvöföldum stökkum áður, en
við höfum ekki getað æft þessi flókn-
ari stökk almennilega vegna að-
stöðuleysis. Það hafa þó orðið miklar
framfarir hjá okkur og ég held að við
séum að komast yfir þennan hjalla,“
segir Þórdís. „Þá er einnig gaman að
segja frá því að við erum að leggja
áherslu á að byggja upp strákafim-
leikana og voru fjórir strákar frá okk-
ur á mótinu, sem stóðu sig allir alveg
hrikalega vel,“ bætir hún við.
arg
Haustmót FIMA í stökkfimi
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur úr Leyni, komst ekki í gegn-
um niðurskurðinn á Fatima meist-
aramótinu í Abu Dhabi í síðustu
viku, en mótið er hluti af LET Evr-
ópumótaröðinni. Valdís lék á sam-
tals fimm höggum yfir pari eftir
fyrstu tvo hringina.
Mótið markar upphaf lokakafla
mótaraðarinnar á þessu tímabili.
Valdís er sem stendur í 108. sæti
stigalista LET Evórpumótarað-
arinnar og þarf að koma sér í hóp
80 efstu til að halda keppnisrétti
sínum á þessari sterkustu móta-
röð Evrópu. Næsta keppir Valdís í
Indlandi dagana 10.-12. nóvember
næstkomandi.
kgk
Valdís Þóra
komst ekki áfram
í Abu Dhabi
Opna írska ungmennamótið í keilu,
Irish Open Youth, var haldið í síð-
ustu viku. Ísland sendi fjóra fulltrúa
til keppni og þar af komu þrír þeirra
frá Keilufélagi Akraness. Það voru
þeir Jóhann Ársæll Atlason, Ólaf-
ur Sveinn Ólafsson og Matthías Leó
Sigurðsson en auk þeirra keppti Hin-
rik Óli Gunnarsson úr ÍR.
Jóhann og Ólafur kepptu í flokki
16-19 ára og voru meðal yngstu
keppenda flokksins. Því var á bratt-
ann að sækja fyrir Jóhann og Ólaf
sem öttu þar kappi við sér eldri og
reyndari keppendur. Jóhann komst
engu að síður í undanúrslit og hafn-
aði þar í 12. sæti, en aðeins fjórir
komust áfram í úrslitin. Ólafur hafn-
aði í 23. sæti í þessu sama flokki.
Hinrik Óli úr ÍR spilaði í flokki
12 til 16 ára og hafnaði í 27. sæti, en
geta má þess að hann keppti í dansi
áður en keilumótið hófst og vann þar
til tvennra verðlauna.
Matthías Leo lék í flokki 12 ára
og yngri og komst í undanúrslit eft-
ir að hafa verið í 2. sæti mótsins eft-
ir tólf leiki. Tólf efstu léku þrjá leiki
til viðbótar í undanúrslitum og þar
náði Matthías öruggri forystu. Í úr-
slitunum voru síðan leiknir þrír leik-
ir þar sem fjórir efstu léku maður á
mann. Matthías gerði sér lítið fyrir
og sigraði alla sína leiki og hrósaði
þar með sigri í mótinu í sínum ald-
ursflokki. Hlaut hann kúlu í verðlaun
fyrir 1. sætið. Hann átti einnig stiga-
hæsta leikinn í sínum flokki og fékk
fyrir það peningaverðlaun, 25 evrur.
Glæsilegur árangur hjá Matthíasi.
kgk
Ungur Skagamaður sigraði á Irish Open
Matthías Leó Sigurðsson úr Keilufélagi
Akraness eftir sigurinn á Opna írska
ungmennamótinu í keilu. Ljósm. KLÍ.