Hlynur - 15.12.1957, Side 4

Hlynur - 15.12.1957, Side 4
Hann þræddi nákvæmlega vörðuðu leiðina, nam staðar við hverja vörðu, tók þó eigi tíma til að hvíla sig og blása mæðinni, heldur reiddi stöngina til höggs og braut niður klakabrynjurn- ar. Seint um kvöldið kom hann til byggða, þreyttur eftir erfiðan dag. Þá risu vörðurnar afhjúpaðar í hjarn- breiðu þingeysku heiðarinnar. Þessi gamli ferðaþáttur rifjast upp, þegar þú, glókollur, ert að stíga fyrstu sporin. Sumir viðburðir halda verðgildi gegn um aldir og áratugi; — þeir leita fram í hugann, þegar ungur maður rís á legg. Vörður á vegum eru hlaðnar til að leiðbeina vegfarendum. Þeir þurfa ekki að notfæra sér slíka leiðsögn, þegar kennileiti sjást í landslagi, stjörnur leiftra og norðurljós braga. En í myrkri og dimmviðri kemst ferðalangurinn oft til mannabyggða með ])ví að þræða leiðina frá einni vörðu til annarar. Þeir, sem hlóðu vörðurnar, eru ef til vill horfnir í mold feðranna, en þeir lifa áfram í verkum sínum. Varða, sem er vafin í værðcrvoðir vetrarins, bregst á varðberginu. Hún er eins og göfug kóngsdóttir í álögum, sem greint er frá í ævintýrunum. Og’ hún bíður þess, að elskhugi hennar, þey- vindurinn, komi og leysi hana úr hlekkjunum. í dag stígur þú, glókollur, fyrstu sporin. Þú brosir, baðar út höndun- um, bjartur dreng- ur, hamingjusamur yfir unnum sigri. Bóndinn, sem gekk heiðina í hrein- viðrinu, þurfti ekki að gefa gætur að vörðunum. Hann var þaulkunnugur leiðinni. En hann vissi, að ljósum degi getur fylgt sótsvört nótt, og’ íslenzk veðrátta er hverflynd og duttlungafull. Og hann lét sig varða örlög mannsins, sem leggur á heiðina næsta morgunn. Þess vegna braut hann klakann af vörð- unum — gerðist liðsmaður sólbráðs og sunnanvinda. I dag stígur þú, glókollur, fyrstu sporin. Þú brosir, baðar út höndunum, bjartur drengur, hamingjusamur yfir unnum sigri, en jafnframt dálítið kvíð- andi að fótstyrk bresti til að standa óstuddur. Það er skylda eldri kynslóðarinnar að rétta æskunni örfandi hönd, benda henni á varðaða vegi, reyna að glæða trú hennar á það hlutverk, sem hennar bíður í landinu. Æskan fer að vísu í mörgu sinna eigin ferða, en kjölfestuna fær hún að lokum úr hollum áhrifum, sem hún verður fyrir í uppvextinum. Það er einkum eitt, sem ég* vil segja þér, glókollur, um leið og þú stígur fyrstu sporin: Landið þitt heitir IS- LANI). Sumum finnst það lítilmótlegt land, eyja með eld og ísa, norðurundir heimskauti. En þú mátt aldrei gleyma því, glókollur, að þú ert Islendingur — þér á að vera það heilagt hugðarefni, að reynast Islandi sannur sonur. Landið þitt, glókollur, er fagurt. Það er land mikilla andstæðna. Hrikaleg fjöll með gnæfandi tinda, úfin bruna- hraun, lyngheiðar og fífusund, silfur- tærar bergvatnsár í djúpum dölum, skolgrá jökulfljót á svörtum söndum, mergð tignarlegra fossa, stór stöðuvötn með eyjar og voga, þar sem endur kafa og svanur syngur. Rjúpan og þröstur- inn eiga börn í birkiskógum, en sól- skríkjan skjól milli steina. Og í sveit- unum, við fjall og fjörð, yrkir bóndinn og fjölskylda hans fögur ljóð í mold- ina. Lagboðinn við þá ljóðagerð er — trúin á landið. Hafið við strendur lands þíns, gló- kollur, er síkvikt og breytilegt, með 4 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.