Hlynur - 15.12.1957, Qupperneq 10
FRÉTTABRÉF FRÁ
STÖÐVARFIRÐh
Nýr bátur —
Nýtt verzlunarhús
Blaðinu hafa borist eftirfarandi
fréttir frá Kaupfélagi Stöðfirðinga:
Arið 1952 var byrjað á byggingu
verzlunarhúss á Breiðdalsvík, en þar
er útibú frá Kaupfélagi Stöðfirðinga
og stjórnar Pétur Sigurðsson því. I
júlí 1956 var húsið tekið í notkun og
var þá byggingarkostnaður kominn í
Sigurður Pétur
750 þúsundir. Um svipað leyti tók
fiskimjölsverksmiðja til starfa hér á
Stöðvarfirði og eru afköst hennar um
250 kg. á klst. Landsmiðjan sá um
uppsetningu hennar, og varð bygging-
Kaupfélagshúsið nýja á Breiðdalsvík.
Kambaröst við bryggju á Stöðvarfirði.
arkostnaður um 550 þúsund kr. Fram-
leiðsla hennar, það sem af er þessu ári,
eru 50 tonn af fiskimjöli, en fram-
leiðsla hraðfrystihússins er um 5300
kassar á sama tíma.
Sláturtíð er lokið á Breiðdalsvík og
hér og alls höfum við til sölumeðferð-
ar um 100 tonn af kjöti.
Nýlega er kominn hingað til Stcðvar-
fjarðar nýr bátur, sem er eign kaupfé-
lagsins og hraðfrystihússins. Hann heit-
ir m.s. Kambaröst SU — 200 og er 75
brúttólestir, lengd 23 m., breidd 5,7 m.
dýpt 2,45 m. Kambaröst er með 280
hestafla díselvél (Manheim) og búin öll-
um venjulegum siglingatækjum. Skip-
stjóri að utan og heim var Jón E. Guð-
mundsson, sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði,
en skipstjóri á bátnum hér heima verð-
ur Karl Kristjánsson. Ahöfnin er öll
héðan, alls 5 manns. Við komuna flutti
Sigurður Guðjónsson, kaupfélagsstjóri,
ræðu og bauð áhöfnina velkomna með
hinn nýja farkost til stcðarins. Því
næst var boð inni fyrir stjórn kaupfé-
10 HLYNUR