Hlynur - 15.12.1957, Qupperneq 12

Hlynur - 15.12.1957, Qupperneq 12
SOFFIU ÞATTUR B JARNADOTTU R FRÁ TÚNUM í FLÓA Svo þið fóruð um sveitir til þess að biðja ykkur konu? Þú getur sagt sem svo, en annars vor- um við ekki búnir að gefa væntanleg- um bíl okkar neitt nafn þá. Hvernig stóð á því, að þið lögðuð út í þessi bílkaup, hver var tilgangurinn? Hann var einungis sá að skapa okkur möguleika til þess að fara um landið á eigin farartæki, jafnt sumar sem vetur, og fyrst og fremst til þess að geta lagt á sjálfar óbyggðirnar. Þær eru lang skemmtilegastar. En það er ekki hrist fram úr erminni að fá þannig bíl, þeir eru hvortveggja dýrir og sjaldséðir. Fyrst fréttum við af bíl vestur í Stykk- ishólmi, sem talið var að kæmi til greina. Yið skruppum því þangað um helgi, en fórum strax aftur, bíllinn var bæði dýr og illa farinn. Næst fórum við austur undir Eyjafjöll, þar var sæmilegur skrjóður með 26 manna húsi, en verðið var ekki í neinu samræmi við pyngjur okkar og snérum við því enn frá. Loks fréttum við af bíl í Flóan- um, sem talinn var hentugur fyrir pyngjurnar en hann var þá kominn í hróf, hafði verið settur á tunnur og hjólin tekin undan honum. Eigandi hans var Bjarni sérleyfishafi í Túni. Eftir nokkra samningaumleitanir komum við honum niður í 9 þúsund krónur og keyptum hann þá. Skrúfuðum við undir hann drifskaftið, settum hann á hjólin og heldum glaðir heim. Það var stór dagur, það máttu vita. Nei, nei, við slógumst ekkert um það hver skyldi stýra, um það hefir ætíð ríkt hin bezta samvinna. Þannig hófst samtal sem ég átti við Guðmund Kjerúlf, Bílabúð SÍS í Jötni. Eg hafði fregnað að hann ásamt And- rési Péturssyni, samstarfsmanni sínum og Guðna Sigurjónssyni, vélaverkstæð- inu í Jötni, hefði fest kaup á bíl og farið á honum um landið í sumar. Einnig fylgdi það sögunni, að bílinn hefðu þeir ausið vatni og skýrt Soffíu Bjarnadóttur. Já, það er rétt hann heitir Soffía og er Bjarnadóttir. Eg segi nú helzt aldrei nokkrum manni hvernig nafnið er til-

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.