Hlynur - 15.12.1957, Side 15

Hlynur - 15.12.1957, Side 15
ingar hafa þegar verið gerðar og eru þær mjög góður. Bekkjunum verður þá komið þannig fyrir, að hægt sé að leggja bökin niður og nota þá fyrir svefnbekki. Alls munu þá 8 manns geta sofið í Soffíu. Hefir ykkur ekki dottið í hug að fara utan með Soffíu? Jú, mikil ósköp, það hefir verið marg rætt. Það er verst að geta ekki siglt henni þangað, þá þyrfti ekki eins mik- inn pening til f'arinnar, en annars er þetta nú enn á umræðustigi. Ef við færum utan vrði farið víða um Evrópu. Jæja, hvað viltu að lokum segja um þetta ævintýri ykkar og hennar Soffíu? Eg veit ekki, nema ef vera skyldi, að Soffía var keypt til þess að við gætum notið góðra stunda á fjcllum uppi. Við viljum vera glaðir og ánægðir og' engum háðir á ferðalögunum. Kjörorðið um borð í Soffíu er: Enginn úldinn, þ. e. að allir séu í góðu skapi og láti á- hyggjurnar lönd og leið. Enginn einn ræður og ákvcrðanir eru teknar saman eftir hendinni. Oft kom það fyrir í sumar, að við vorum ekki búnir að ákveða hvert halda skyldi, þegar komið var inn að Elliðaám. En það eru líka beztu ferðalögin að hafa énga ferða- áætlun. Maður veit þá ekki hvar maður lendir og allt er óákveðið en ágætt. Jú, það er munur að eiga sína Soffíu og geta farið á henni inn á örævin. Væri þetta ekki mjög vel athugandi fyrir starfsmannafélögin? Ef til vill, en það er nú enn önnur saga. Kvikmyndavélar í tveimur Fellum Nú er svo komið, að tvö samvinnu- skipanna, Hamrafell og Jökulfell, hafa bæði orðið kvikmyndasýningarvélar innanborðs. A erlendum skipum tíðkast það mjög mikið að sýna kvikmyndir fyrir áhafnirnar meðan á siglingum stendur. Þykir það gefa góða raun og vera ágætis skemmtun í tómstundum skipverja, eins og ekki er erfitt að skilja. I flestum samvinnuskipanna eru starf- andi sérstök tómstundafélög og það eru þau, sem forgöngu hafa haft á viðkom- andi skipum um öflun tækjanna. Sam- kvæmt viðtali við skipverja, þá ríkir hin mesta ánægja með vélarnar og þyk- ir þeim mikill fengur að þeim. Skip- verjar kaupa vélarnar sjálfir og afla sér fjárins með félagsgjöldum og einnig munu þeir selja aðgang að sýningum. HLYNUR 15

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.