Hlynur - 15.10.1983, Síða 3

Hlynur - 15.10.1983, Síða 3
HLYNUR 4-5. tbl. 31. árg. 1983 Ritst. og ábm.: Guðmundur R. Jóhannsson símar: 27379 og 33142 Ritnefnd: Eva Örnólfsdóttir Jóhannes BekkIngason Kr. Pálmar Arnarson Reynir Ingibjartsson Þóra Elfa Björnsson Auglýsingar og afgreiðsla: Hamragarðar Hávallagötu 24 Reykjavík sími 21944 Litgreining: Prentmyndastofan hf. Útlitsteikning, setning, umbrot filmuvinna, prentun og bókband: Prentsmiðjan Edda hf. Pökkun: Plastpökkun sf. Ljósmyndir: Skyggna hf. Prentuð eintök: 7500 Fors(ðumynd: ^eldur eru þeir stærri nýju t arnir á Þingeyri en samt Pessi oft fært björg i bú. s°mdi sér vel í fjörunni á Þin ™ eð spegilsléttan Dýrafjörðii Starfið er rétt að hefjast Fyrsta dag septembermánaðar 1973 komu allmargir samvinnu- starfsmenn víða að af landinu saman að Bifröst i Borgarfirði. Til- gangur fundarins voru hugmyndir nokkurra samvinnustarfsmanna að stofna samtök starfsmannafélaga samvinnuhreyfingarinnar. Nokkrir áhugasamir einstaklingar höfðu þá fyrr um árið unnið af kappi að myndun þessara samtaka. Stofnuð voru allmörg starfs- mannafélög þetta sumar. Þótt svo að margir efuðust mjög um til- gang þessara fyrirhuguðu samtaka, tókst frumkvöðiunum að smita fulltrúana af þeirri bjartsýni sem með þurfti svo að almennur vilji væri fyrir stofnun L.Í.S. Nú, 10 árum síðar, þegar litið er yfir farinn veg og sanngjörn út- tekt gerð á starfi samtakanna, verður það niðurstaðan að fjölda- margt hefur áunníst í hagsmunamálum samvinnustarfsmanna. Nefna má að nú eru starfsmannafélögin orðin 45 og í þeim eru u.þ.b. 5000 félagsmenn. Langflest starfsmannafélögin hafa komið sér upp orlofsaðstöðu, hæst ber þó orlofsbyggðína að Bifröst sem er kraftaverk miðað við það, að hún er reist án tilstuðlunar orlofs- sjóða stéttarfélaganna sem flestir samvinnustarfsmenn greiða í, en þeir þó nánast einskis notið til þessarar uppbyggingar. Einnig má nefna sumarbúðirnar að Bifröst og ódýrar orlofsferðir til annarra landa, sem hafa komið okkur í samband við stéttarsystkini okkar erlendis. Líka útgáfa á mjög vönduðu félagsblaði sem dreift er til allra félaga starfsmannafélaganna. Og nú síðasta kjörtímabil hefur L.Í.S. unnið mikið í lífeyrissjóðsmálum og vinnuverndarmálum. Mörgu mætti bæta hér við, en þrátt fyrir þessa upptalningu er starfið rétt að hefjast. Með öflugu starfi starfsmannafélaganna og L.Í.S. hafa starfsmenn hlotið sess sem einn þýðingarmesti hlekkur- inn í samvinnustarfinu í landinu. Annar hugsunarháttur fer nú senn að tilheyra fortíðinni. Því í langflestum tilfellum eru hagsmunir sam- vinnuhreyfingarinnar og samvinnustarfsmanna sameiginlegir. Ég sagði hér fyrr að starfið væri að hefjast, því stórhagsmunamál eru í sigtinu á næstu árum, sem ekki verða leyst nema með sam- stilltu átaki allra. Þar má nefna orlofssjóð samvinnustarfsmanna, í stað þess að greiða í orlofssjóði stéttarfélaganna sem samvinnu- starfsmenn hafa í engu notið. Það er skýlaust réttindamál. Fræðslu- mál samvinnustarfsmanna sem er orðið mjög þýðingarmikið atriði allra í nútíma þjóðfélagi. Málefni eftirlaunaþega og vinnuverndarmál o.fl. Hvert eitt þessara mála er það stórt og þýðingarmikið fyrir framtíð samvinnustarfsmanna, að bjartsýni og elja forystumanna L.Í.S. á næstu árum verður að vera fyrir hendi, ásamt samstöðu allra svo árangur megi nást. Samvinnustarfsmenn verða að gæta að því, að þessi stóru mál verði ekki til þess að menn bresti kjark og þau byrgi sólarsýn. En að loknu 6. landsþingi L.f.S. og afmælishátíðar er ekki ástæða til að óttast það. Áhugi og kraftur þingfulltrúa var slíkur að allir hlutu að hrífast með og þeir sem taka sæti í nýkjörinni stjórn hafa fyrr sýnt það í verki hvaða árangri er hægt að ná. Það er því bjart framundan þegar haldið er inní annan áratuginn. Kristinn Jónsson HLYNUR 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.