Hlynur - 15.10.1983, Page 4
6. LANDSÞING LIS
Sjötta landsþing LÍS var haldið að Bifröst dagana 3. og 4. sept s.l.
Þetta var jafnframt tíu ára afmælishátíð LÍS en eins og kunnugt er
var stofnfundur þess haldinn að Bifröst 1.-2. sept 1973. Til þessa
afmælisþings mættu 65 kjörnir fulltrúar frá 25 félögum auk stjórnar
LÍS, starfsmanna og allmargra gesta.
Starfsmenn landsþingsins f. v. fundarritarar: Kr. Pálmar Arnarsson, Carmen Bonitch,
og fundarstjórar: Gísli Gunnlaugsson og Jóhann Steinsson.
Flestir fulltrúar mættu að Bifröst
að kvöldi föstudags 2. sept. en kl. 9
á laugardagsmorgni setti formaður
Þórir Páll Guðjónsson þingið og
bauð gesti velkomna. Þá voru
starfsmenn kjörnir. Fundarstjórar
þeir Jóhann Steinsson, Reykjavík
og Gísli Gunnlaugsson, Búðardal-
Fundarritarar þau Carmen Bonitch,
Borgarnesi og Kr. Pálmar Arnarson,
Reykjavík.
Þá fluttu gestir ávörp. Fyrstur tal-
aði Bo Carlberg frá KPA. Sagði
hann þetta sína þriðju ferð til ls-
lands og ræddi um hið góða sam-
starf KPA og LÍS. Afhenti hann síð'
an klukku að gjöf sem hann óskaði
að sett yrði upp í Hamragörðum.
Hörður Zóphaníasson flutti kveðj-
ur frá stjórn SÍS. Kvað hann samtök
starfsmanna sameiningartákn sam-
vinnuhreyfingarinnar og starfsmenn
vera líftaug hennar.
Frá ASÍ flutti Jón Eggertsson
kveðjur og sagði að starfsmannafé-
lög gætu gengt mikilvægu verkefm
á vinnustað. Færði hann LÍS að gjöf
áletraðan leirskjöld.
4
HLYNUR