Hlynur - 15.10.1983, Qupperneq 11
KRISTJANA SIGURÐARDÓTTIR
HEFUR ORÐIÐ
Heilir og sælir lesendur góðir.
Hann vissi hvað hann var að fara fram á hann grj.
Þegar við kvöddumst eftir Aðalvíkur og Hesteyrarferðina
góðu, og hann bað um nokkrar línur til ykkar.
Það verður bara að koma í Ijós með árangurinn.
Já, ég nefndi strandaferð, en þangað fórum við tuttugu
°9 sjö manns. Hluti úr stjórn LÍS ásamt öðrum sam-
vinnustarfsmönnum og gestum.
Þar sem ég stóð á bryggjunni með þennan fríða og
h^essa hóp, kom til mín kunningi minn og spurði mig
hvaða fólk þetta væri. Þegar ég sagði honum það svar-
aði hann:
“Ekki vissi ég að þið þekktust svona vel allar fjöl-
skyldurnar. Farið þið oft í svona ferðir?
En ég sagði manninum, að þetta væri aðeins upphaf-
'ð; við hefðum ekki þekkst nema fá okkar, fyrir tíu mín-
útum en núna þekktust allir.
Eftir þetta samtal varð mór hugsað til LÍS. Hvort við
hefðum gert nóg af því að efna til fjölskylduferða. Jú
Þær hafa verið auglýstar svolítið en þátttaka ekki verið
n®g, en þeir sem farið hafa, hafa verið ánægðir og þeir
sem heima sátu sáróánægðir að hafa ekki farið.
Mín skoðun er sú, að við eigum að gera meira af því
að heimsækja hvort annað í starfsmannafélögunum og
koma á ýmiskonar ferðalögum eða skíðaferðum, til að
hittast og tengjast ennþá sterkari samvinnuböndum.
Hú er LÍS orðið tíu ára. Þetta afmælisbarn samvinnu-
starfsmanna er ekki hátt í loftinu frekar en önnur tíu ára
oörn, en hefur þó unnið stór afrek á tíu árum.
Við samvinnustarfsmenn erum þakklát þeim nítján
einstaklingum sem komu saman til viðræðna um stofn-
Un LIS. Því núna þegar við lítum til baka og skoðum
rnálið í því ijósi hvað hefur verið gert síðastliðin tíu ár,
lu eitt stærsta verkefnið er stofnun margra starfsmanna-
elaga og endurlífgun annarra. Þetta finnst mér vera
einn stærsti þátturinn, og halda sambandinu við þessi
e|ög, passa upp á að þau sofni ekki aftur, enda eru
Petta börn okkar sem við verðum að passa vel uppá
að lognist ekki útaf.
LlS hefur staðið fyrir byggingu orlofshúsabyggðar að
'fröst og stendur hún þar á fögrum stað okkur öllum
1 mikils sóma. Núna er í undirbúningi bygging orlofsað-
? °ðu á Norðurlandi og vonandi verður ekki langt að
'ða að sá kjarni rísi þar.
LlS hefur verið aðili að KPA síðan 1974 og staðið fyr-
!r Þæmur vináttuvikum, sem hafa verið það vinsælar að
ærri hafa komist að en vildu.
V|ð höfum haft mjög gott samband við Norðurlönoin,
°g vonandi eigum við eftir að fá fleiri lönd til að skiptast
V|náttutengslum samvinnustarfsmanna.
Kannski hefur ekki allt áunnist, sem ætlað var í upp-
hafi við stofnun þessara samtaka, en ef allir starfsmenn
standa saman í orði og verki þá vonumst við til að vel
takist.
En fyrst ég er nú farin að nefna samvinnustarfsmenn,
get ég ekki látið hjá líða að nefna aðeins okkur kven-
mennina sem erum sennilega í meirihluta í verslunum
og skrifstofum í kaupfélögunum víðsvegar um landið.
Auðvitað er það einstaklingsbundið hvað konur eru
duglegar og áhugasamar í félagsmálum, í sinni heima-
byggð, kemur þar margt til svo sem langur vinnudagur,
og síðan heimilishaldið þar ofan á.
Og ber því að fagna því hvað margar konur eru í
stjórnum hinna ýmsu starfsmannafélaga, sem kom fram
á síðasta þingi í skýrslum frá formönnum félaganna. Ég
vil hvetja konur um allt land að taka virkan þátt í félags-
málum yfirleitt auðvitað við hlið karlmannanna, því við
viljum vinna á jafnréttisgrundvelli.
Það er gaman til þess að vita að í stjórn LÍS hafa
alltaf verið ein eða tvær konur í stjórn frá upphafi, og
mega mörg landssamtök taka það sór til fyrirmyndar.
í þessu rabbi mínu, hefur kannski LÍS verið efst á baugi
hjá mér, og er það ekki að ástæðulausu þar sem 10
ára afmæli þess er einmitt núna um þessar mundir og
6. landsþingið nýafstaðið að Bifröst, þar ríkti einhugur
og gleði yfir öllu og fór þetta þing fram öllum samvinnu-
starfsmönnum til mikils sóma.
Og í tilefni afmælisins var gefinn út sérstakur afmæl-
isbæklingur, sem allir starfsmenn eru búnir að fá í
launaumslögunum sínum, þar eru einkunnarorðin:
Samvinnuvörur okkar vörur.
Því skulum við ekki gleyma, en síðustu orð mín til
ykkar að sinni eru: Norðanmenn, til hamingju með
áfangann, og LÍS, til hamingju með afmælið.
Og munum samvinnustarfsmenn: Sameinaðir stönd-
um við, sundraðir föllum við.
HLYNUR