Hlynur - 15.10.1983, Side 12

Hlynur - 15.10.1983, Side 12
F. v.: Erlendur Einarsson, forstjóri, Helga Karlsdóttir, Þórir Páll Guðjónsson og Margrét Helgadóttir. / / AFMÆLISHATIÐ Að loknu miklu starfi fyrr um daginn var laugardagskvöldið 3. sept. boð- ið til afmælishátíðar að Bifröst. Heiðursgestir voru Erlendur Einars- son, forstjóri og kona hans Mar- grét Helgadóttir Samkoman hófst með léttum veit- ingum kl. 19.00 en kl. 20.00 setti veislustjóri Jón Kristjánsson hátíð- ina. Hátíðasalur Samvinnuskólans var þéttsetinn fulltrúum og gestum. Starfsfólk að Bifröst var önnum kaf- ið og sýndi mikinn dugnað og færni í störfum. Söngtextar lágu við diska matargesta. Allir voru í sínu besta pússi og létt hátiðastemmning var í salnum. Þórir Páll Guðjónsson flutti hátið- aræðu en síðan fluttu gestir ávörp. Fyrstur talaði Erlendur Einarsson forstjóri og afhenti pakka með “grunnvöru" eins og hann orðaði það, en það voru flest þau rit um störf og stefnu samvinnuhreyfingar- innar sem gefin hafa verið út á ís- landi, sem SÍS gaf Landssambandi samvinnustarfsmanna. Júlíus Valdimarsson talaði af hálfu Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna. Jón Sigurðsson, skólastjóri gaf fundargerðarbók. Sigurður Þórhallsson, fyrrv. for- maður LÍS, afhenti stóran fél- agsfána sem hann og fyrrverandi formenn gáfu. Kári Guðmann flutti kveðjur Sf. KEA og afhenti silfurskjöld að gjöf. Júlíus Thorarensen talaði frá Sf. verksmiðjanna á Akureyri og afhenti Hörður Zophóníasson, Jón Sigurðsson, skólastjóri og Sigrún Jó- hannesdóttir. Gunnar Jónsson og kona hans Jóna Jónsdóttir.

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.