Hlynur - 15.10.1983, Síða 12
F. v.: Erlendur Einarsson, forstjóri, Helga Karlsdóttir, Þórir Páll Guðjónsson og Margrét Helgadóttir.
/ /
AFMÆLISHATIÐ
Að loknu miklu starfi fyrr um daginn
var laugardagskvöldið 3. sept. boð-
ið til afmælishátíðar að Bifröst.
Heiðursgestir voru Erlendur Einars-
son, forstjóri og kona hans Mar-
grét Helgadóttir
Samkoman hófst með léttum veit-
ingum kl. 19.00 en kl. 20.00 setti
veislustjóri Jón Kristjánsson hátíð-
ina. Hátíðasalur Samvinnuskólans
var þéttsetinn fulltrúum og gestum.
Starfsfólk að Bifröst var önnum kaf-
ið og sýndi mikinn dugnað og færni
í störfum. Söngtextar lágu við diska
matargesta. Allir voru í sínu besta
pússi og létt hátiðastemmning var í
salnum.
Þórir Páll Guðjónsson flutti hátið-
aræðu en síðan fluttu gestir ávörp.
Fyrstur talaði Erlendur Einarsson
forstjóri og afhenti pakka með
“grunnvöru" eins og hann orðaði
það, en það voru flest þau rit um
störf og stefnu samvinnuhreyfingar-
innar sem gefin hafa verið út á ís-
landi, sem SÍS gaf Landssambandi
samvinnustarfsmanna.
Júlíus Valdimarsson talaði af
hálfu Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna.
Jón Sigurðsson, skólastjóri gaf
fundargerðarbók.
Sigurður Þórhallsson, fyrrv. for-
maður LÍS, afhenti stóran fél-
agsfána sem hann og fyrrverandi
formenn gáfu.
Kári Guðmann flutti kveðjur Sf.
KEA og afhenti silfurskjöld að gjöf.
Júlíus Thorarensen talaði frá Sf.
verksmiðjanna á Akureyri og afhenti
Hörður Zophóníasson, Jón Sigurðsson, skólastjóri og Sigrún Jó-
hannesdóttir.
Gunnar Jónsson og kona hans Jóna Jónsdóttir.