Hlynur - 15.10.1983, Page 17
leysa húsnæðisþörf fólks. Þessi félög eiga húsnæðið,
en íbúarnir og félagsmennirnir búseturétt, sem er
ákveðinn hluti af verðmæti íbúðarinnar hverju sinni.
Þessi búseturéttur veitir eiganda hans tryggingu fyrir
húsnæðinu svo lengi sem hann óskar eftir að dvelja
í því.
Samvinnuhreyfingin móti tillögur í
húsnæðismálum
Þingið hvetur til þess að sem fyrst verði myndaður
starfshópur með þátttöku aðila frá LÍS, Sambandinu
og fleiri aðilum innan samvinnuhreyfingarinnar um
húsnæðisvandann og nýjar leiðir til lausnar, og þessi
starfshópur skili tillögum sínum til næsta aðalfundar
Sambandsins.
Æskilegt væri, að þetta mál gæti orðið sérmál aðal-
fundarins. Þar verði mótaðar tillögur um aðgerðir í
þessum málum næstu 3 til 5 ár.
Koma þarf á lánakerfi við Samvinnubankann sem
geri ungu fólki kleift að safna sér fyrir húsnæði, hvort
sem það er einkahúsnæði eða í eigu húsnæðissam-
vinnufélaga.
Þessi hópur fjallaði um stefnu og störf samvinnuhreyfingarinn-
ar og ný samvinnuverkefni. F.v.: Pétur Kristjónsson, Svíþjóð,
Hörður Zophóniasson, Hafnarfirði, Júlíus Valdimarsson, Reykj-
avík, Konráð Gylfason, Reykjavík og Eysteinn Sigurðsson
Reykjavík.
Starfsmannafélög og stéttarfélög
vinni sameiginlega að samningum
við Vinnumálasamband samvinnu-
félaganna
Sjötta landsþing Landssambands ísl. samvinnustarfs-
manna vill marka þá stefnu, að LÍS, starfsmannafélög
°9 stéttarfélög vinni sameiginlega að samningum um
kaup og kjör og öðrum hagsmunamálum samvinnu-
starfsmanna við Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna, og beinir því til væntanlegrar stjórnar, að hefja
vðræður við verkalýðshreyfinguna um samvinnuleiðir
' Þessu efni.
Þingið bendir á, að efla beri gagnkvæman skilning
aðila í þeim hagsmunamálum hreyfinganna, sem
haest bera hverju sinni.
Þingið hvetur samvinnustarfsmenn um land allt, að
auka virkni sína innan stéttarfélaganna og koma
þannig á framfæri hagsmunalegri þekkingu sinni.
Starfsmenn fái fulla aðild að
stjórnun samvinnufyrirtækjanna
Þingið ályktar eindregið að starfsmenn fái fulla aðild
að stjórnun samvinnufyrirtækjanna með öllum réttind-
UrT> og skyldum.
Landsþingið telur að sá áhugi og þekking sem bý'
! samvinnustarfsmönnum hafi ekki verið virkjaður sem
skyldi, og sjálfsagt og eðlilegt að starfsmenn hafi mun
rneiri áhrif á stefnu oq störf samvinnufélaqanna en nú
er í dag.
Þingið ályktar að vinnustaðafundir séu hluti af starf-
lnu og því mjög mikilvægir, ekki eingöngu starfs-
mönnum heldur fyrirtækjum líka.
í þessum hópi var rætt um orlofsmál, fræöslu- og lífeyrissjóöi.
F.v.: Birgir Marinósson, Akureyri, Geir Björnsson, Borgarnesi,
Ólafur A. Kristjánssori, Reykjavík, Gunnar Jónsson, Húsavik,
Jón Sigurðsson, Bifröst, Kristinn Jónsson, Búðardal og fremst
Páll A. Magnússon, Akureyri. Bak við Pál má sjá Þórð J. Magn-
ússon, Kópavogi og Sigtrygg Albertsson, Húsavik.
L
HLYNUR
17