Hlynur - 15.10.1983, Side 18
Yfir góðum kaffibolla er rætt um orlofsmál, fræðslu- og lífeyris-
sjóði. F.v.: Ólafur A. Kristjánsson, Reykjavík, Þórður J. Magn-
ússon, Kópavogi, Sigtryggur Albertsson, Húsavik, Páll A.
Magnússon, Akureyri, Jón Pétursson, Stykkishólmi, Jón Magn-
ússon, Reykjavík, Jóhannes Bekk Ingason, Reykjavík og Birgir
Marinósson, Akureyri.
Þessi voru að tala um samskipti starfsmanna og samvinnufé-
laga. F.v.: Sigríður Björnsdóttir, Reykjavík, Hjörtur Kristmunds-
son, Fáskrúðsfirði, Magnús Sigurðsson, Neskaupstað, Matt-
hías Pétursson, Hvolsvelli og Vilhjálmur Sigurðsson, Reykj-
avik.
18
Skipa öryggistrúnaðarmenn
Þingið hvetur starfsmannafélögin til að skipa öryggis-
trúnaðarmenn þar sem það hefur ekki þegar verið
gert. Þörf ábending að fræða starfsfólk um bætta
vinnutækni.
Auglýsa öll laus störf
Þingið ályktar að sjálfsagt og skylt sé að auglýsa öll
laus störf á vinnustöðum samvinnufyrirtækjanna.
Heildarskipulag í fræðslumáium
Þingið ályktar að komið verði á heildarskipulagi í
fræðslumálum. Fræðslunefndir starfi í öllum sam-
vinnufélögum og fræðslufulltrúi Sambandsins verði
tengiliður í fræðslumálum við félögin.
Þingið hvetur til þess að LÍS beiti sér fyrir því, að
öll starfsmannafélög eigi kost á að fá leiðbeinanda í
félagsmálastörfum.
Samvinnuvörukynningin í 1-2 ár
Þingið ályktar að nauðsynlegt sé að halda áfram því
merka starfi, sem LÍS hefur nú hafið af miklum mynd-
arbrag, þ. e. a. s. kynningu á framleiðsluvörum sam-
vinnufyrirtækja. Þingið ályktar að hér ætti að vera um
1 —2ja ára samfellt verkefni að ræða og nauðsynlegt
sé að ráða fastan starfsmann í þetta verkefni ef ár-
angur á að nást. Ættu framleiðslufyrirtæki Sambands-
ins og kaupfélaganna að greiða þeim starfsmanni
laun.
Auka þarf stórlega samvinnu á milli framleiðenda
og innkaupastjóra innan samvinnuhreyfingarinnar.
Auka þarf stórlega kynningu á framleiðsluvörum sam-
vinnufyrirtækja meðal starfsmanna. Ættu starfs-
mannafélögin í hverju umdæmi fyrir sig að sjá um þá
kynningu.
Þingið ályktar að framkvæmdastjórn LÍS skipi
þriggja manna nefnd til að sjá um framkvæmd vöru-
kynninga af sinni hálfu.
SAMVINNUVÖRUR OKKAR VÖRUR
Samræma notkunargildi félags-
skírteina samvinnustarfsmanna
Þingið ályktar að vinna beri kröftuglega að því, að
samræma notkunargildi afsláttarskírteina samvinnu-
starfsmanna um allt land. Samvinnustarfsmenn eru
ein heild og eiga alls staðar að njóta sömu réttinda.
Áframhaldandi útkoma Hlyns
Þingið leggur áherslu á áframhaldandi útkomu Hlyns
og að blaðið komi reglulega út. Áhersla verði lögð á
aukna kynningu s. s. á frístundastarfi sem KPA hefur
upp á að bjóða. Áfram verði haldið með kynningu á
starfsmannafélögunum og starfsemi þeirra.
Þingið hvetur starfsmannafélögin til að gefa út
fréttabréf reglulega sem dreift sé til allra félagsmanna
t. d. með launaumslögum.
HLYNUR