Hlynur - 15.10.1983, Page 20

Hlynur - 15.10.1983, Page 20
í þægilegum sófa í horni setustofunnar ræða þau um sam- skipti starfsmannafélaga, KPA og útgáfumál f.v.: Valdimar Guðmundsson, Reykjavik, Tryggvi Þórðarson, Reykjavík, Jón- ína Pálsdóttir, Akureyri, María Símonardóttir, Sauðárkróki, Svava Kristjánsdóttir, Húsavík, Gunnhildur Kristjánsdóttir, Reykjavík, Kári I. Guðmann, Akureyri og Guðmundur R. Jó- hannsson, Reykjavík. Sköpun atvinnutækifæra Samvinnuhreyfingin á að vera í fararbroddi í því að skapa atvinnutækifæri fyrir ýmsa hópa, s. s. konur sem vilja leita aftur út á vinnumarkaðinn og starfs- menn sem fara á eftirlaun, en vilja áfram starfa að einhverjum verkefnum við sitt hæfi. Tölvur og félagsskírteini Landsþingið vill vekja athygli á þeim miklu mögu- leikum sem tölvutækni nútímans veitir fólki og fyrir- tækjum að skrá margvísleg viðskipti. Nýta ætti félags- skírteini meira í þessu sambandi, bæði til að veita af- slætti og safna arði, og hugsanlega leggja hlut í stofn- sjóði smvinnufélaganna, sem þá yrðu að sjálfsögðu verðtryggðir. Fiskirækt kjörið samvinnuverkefni Landsþingið telur að fiskirækt sé kjörið samvinnuverk- efni, ekki síst í sveitum landsins, og beinir því til deild- arstjórna í kaupfélögum og sveitarfélaga, að mynda samvinnufélög á tilteknum svæðum um fiskirækt, sem síðan nytu viðskipta og fyrirgreiðslu af ýmsu tagi í gegn um kaupfélagið á félagssvæðinu. Hlutverk Sam- bandsins á svo að vera það að vera hér til ráðgjafar og stuðnings. Stofna fleiri framleiðslu- samvinnufélög Einnig þarf að huga meira að stofnun framleiðslusam- vinnufélaga í ýmsum smáiðnaði, þar sem félagsmenn eru eigendur og stjórnendur. Þau framleiðslusam- vinnufólög sem hér hafa starfað hafa sýnt, að þessi þáttur í samvinnustarfinu á mikla framtíð fyrir sér, sé vel að honum hlúð. Aðildargjald verði kr. 140.00 á árinu 1984 Þingið leggur til að aðildargjöld næsta árs til LÍS verði kr. 140.00. Jafnframt heimili landsþing stjórn LÍS að hækka aðildargjöld fyrir árið 1985 í samræmi við al- mennar launabreytingar. Afla framlaga frá samvinnu- fyrirtækjunum til starfsemi LÍS Unnið verði eftir mætti að því að afla framlaga frá samvinnufyrirtækjunum í landinu til starfsemi LÍS og koma þeim á fastan grundvöll. Rekstur sniðinn við stakk og meiri skilvísi Rekstur LÍS verði hverju sinni alfarið sniðinn að tekju- möguleikum. Unnið verði að skilvísari og fljótvirkari innheimtu félagsgjalda til LÍS. 20 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.