Hlynur - 15.10.1983, Page 22

Hlynur - 15.10.1983, Page 22
LANDSSAMBANDS ISL. SAMVINNUSTARFSMANNA I. KAFLI Tilgangur, nafn og varnarþing 1. gr. Sambandið heitir: Landssamband íslenskra sam- vinnustarfsmanna (skammstafað L. í. S.). Heimili þess og varnarþing er I Reykjavík. 2. gr. Tilgangur L. í. S. er: að gangast fyrir stofnun starfsmannafélaga hvar sem er á landinu og greiða fyrir upptöku slíkra félaga í L. í. S. að efla samskipti samvinnustarfsmanna á íslandi að stuðla að aukinni þekkingu á samvinnuhreyfing- unni að auka skilning á þeirri hugsjón sem samvinnuhreyf- ingin byggir á að stuðla að erlendu samstarfi samvinnustarfsmanna að skipuleggja sameiginleg frístundaáhugamál og stuðla að sem bestum starfsanda innan sam- vinnuhreyfingarinnar að hafa á hendi forystu í sameiginlegum hagsmuna- málum samvinnustarfsmanna. 3. gr. Tilgangi sínum hyggst L. í. S. ná með því að: 1. Hafa sem nánasta samvinnu við þau félög sem eru í L. Í.'S. og styðja þau eftir mætti í hagsmuna- málum þeirra, og í hvivetna að gæta hagsmuna aðildarfélaganna og tryggja réttindi þeirra. 2. Vinna að því að haida uppi fræðslustarfsemi fyrir samvinnustarfsmenn t. d. með námskeiðum, fræðslu- og námsferðum og öðru sem að gagni má koma. 3. Vinna að bættri aðstöðu á sviði orlofsmála, svo sem með byggingu orlofshúsa í öllum landshlutum. II. KAFLI Inntökuskilyrði í L. í. S. 4. gr. ( L. (. S. geta verið öll starfsmannafélög sem uppfylla skilyrði laga þessara, þó aðeins eitt starfsmannafélag frá hverju samvinnufyrirtæki. 5. gr. Umsókn um inngöngu I L. í. S. skal vera skrifleg og sendast framkvæmdastjórn L. (. S. Umsókninni skulu fylgja lög félagsins og félagaskrá. Framkvæmdastjórn getur veitt félagi aðild að L. í. S. og skal sú ákvörðun gilda til næsta landsþings sem tekur endanlega ákvörðun um aðild félagsins. III. KAFLI Landsþing L. í. S. og kosning fulltrúa 6. gr. L. í. S. heldur landsþing annað hvert ár. Landsþing skal að jafnaði halda á tímabilinu 15/8 til 15/9. Á landsþingi skal framkvæmdastjórn leggja fram skýrslu sína og reikninga í fjölrituðu formi eða prentuðu. Enn- fremur önnur þau gögn, sem nauðsynleg eru til þing- haldsins. 7. gr. Framkvæmdastjórn L. í. S. skal boða aðildarfélög til þings bréflega, með minnst eins mánaðar fyrirvara. 8. gr. Sé nauðsyn aukaþings vegna aðkallandi mála sem úrlausnar þurfa, getur framkvæmdastjórn boðað til þings með styttri fyrirvara, þó minnst einnar viku. 9. gr. Hvert félag kýs einn fulltrúa á landsþing og síðan ann- an fulltrúa fyrir félagsmannatölu frá 51-100. Síðan er einn fulltrúi fyrir hvert byrjað hundrað. Stjórn L. í. S. skal ávallt sjálfkjörin á landsþing. Landsþing úrskurðar kjörbréf fulltrúa. 10. gr. Kjörgengir á landsþing eru allir fullgildir félagsmenn. 11. gr. Landsþing hefur æðsta vald í öllum málum L. í. S. og skulu þar tekin fyrir þau mál, sem varða L. í. S. og að- ildarfélög þess. 12. gr. í þingboði skal lögð fram dagskrá ásamt reikningum, svo og allar tillögur um lagabreytingar sem leggja á fyrir næsta landsþing. Einnig skal getið þeirra mála er einstök félög hafa óskað eftir að yrðu lögð fyrir þingið. 13. gr. Landsþing er lögmætt ef til þess er löglega boðað. 14. gr. Formaður L. (. S. setur landsþing og stjórnar því, þar til forsetar hafa verið kjörnir. í upphafi þings skal kjörin þriggja manna kjörbréfa- nefnd, sem rannsakar kjörbréf fulltrúa og leggur fyrir þingfund til afgreiðslu. Einnig skal kjörin fimm manna uppstillingarnefnd til stjórnarkjörs. Kosinn skal forseti þingsins og varaforseti svo og tveir ritarar. HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.