Hlynur - 15.10.1983, Síða 23

Hlynur - 15.10.1983, Síða 23
15. gr. Aðalstjórn L. í. S. skipa 11 menn auk varamanna. Tilnefndir skulu menn í stjórn og kosið um þá skrif- lega. Kosning skal bundin við uppástungur. Kosningar fara þannig fram: Formaður L. í. S. er kosinn sérstaklega. Kosnir eru 4 aðalmenn í stjórn sem jafnframt skipa framkvæmdastjórn ásamt for- manni og 4 menn til vara. Þeir varamenn koma aðeins inn í stjórn, ef einhver framkvæmdastjórnarmanna hættir störfum eða forfall- ast til lengri tíma. Þó er heimilt að boða 1. varamann á fundi framkvæmdastjórnar. Hinir 6 skulu síðan kosnir sameiginlega og 6 til vara. Stefnt skal að því að fulltrúar komi frá sem flestum byggðarlögum. Framkvæmdastjórn skiptir með sér verkum. For- maður og varaformaður stjórnar eru jafnframt formað- ur og varaformaður framkvæmdastjórnar. Endurskoð- endur L. í. S. skuli kosnir 2 og 2 til vara. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum í öllum kosning- um. IV. KAFLI Starfssvið aðalstjórnar og framkvæmdastjórnar 16. gr. Aðalstjórn L. í. S. ræður öllum málefnum milli þinga og getur innan takmarka þeirra sem lögin setja, skuld- bundið L. í. S. með ályktunum sínum og gerðum. 17. gr. Nú rís ágreiningur milli félaga innbyrðis eða milli fé- laga og framkvæmdastjórnar eða aðalstjórnar um málefni, sem varða L. í. S., t. d. skilning á lögum eða fyrirmælum, og sker þá aðalstjórn úr slíkum ágrein- lngi, þannig að skuldbindandi er fyrir alla aðila, þar með einnig hvaða ágreiningsmál falli undir þetta ákvæði. Aðalstjórn ákveður hvernig málsmeðferð skuli hagað. Urskurði aðalstjórnar má áfrýja til landsþings. 18. gr. Eramkvæmdastjórn ræður starfsmann, sem rekur skrifstofu L. í. S. Hann ræður starfsfólk og hefur á hendi allan daglegan rekstur L. í. S. í samráði við fi'amkvæmdastjórn. 19. gr. Eramkvæmdastjórn tekur til meðferðar öll þau mál sem ekki teljast daglegur rekstur eða afgreiðslustörf skrifstofu L. í. S. Aðalstjórn getur falið framkvæmdastjórn úrlausn þeirra mála er koma fyrir á stjórnarfundum, þó eigi oiál þeirra er um ræðir í 17. grein. 20. gr. Aðalstjórn skal koma saman til fundar a. m. k. tvisvar á ári og oftar ef þörf krefur. Stjórnarfundur er löglegur, þegar meirihluti sækir fund. Ennfremur skal aðalstjórn kvödd til fundar, þegar framkvæmdastjórn telur þess þörf vegna afgreiðslu síórmála, og/eða 5 menn úr aðalstjórn krefjast þess. 21. gr. Framkvæmdastjórn heldur fundi þegar formaður kallar saman fund eða tveir úr framkvæmdastjórn óska þess. Fundur er lögmætur þegar meirihluti framkvæmda- stjórnar er mættur. Starfsmaður L. í. S. situr jafnan fundi framkvæmda- stjórnar. Þegar framkvæmdastjórn skuldbindur L. í. S. þarf undirskriftir allra framkvæmdastjórnarmanna. Framkvæmdastjórn getur falið starfsmanni allar aðrar undirskriftir. V. KAFLI Fjármál 22. gr. Fyrir lok janúar skal hvert félag senda skrifstofu L. I. S. félagatölu eins og hún var um áramót. Hvert félag greiðir aðildargjald til L. í. S. og miðast það við félagatölu eins og hún er 1. janúar ár hvert. Skal aðildargjald ákveðið á landsþingi. Gjalddagar eru þrir: 1. mars, 1. júní og 1. september ár hvert. 23. gr. Félag sem stofnað er á árinu greiðir aðildargjald eftir félagatölu við inngöngu, hlutfallslega eftir því hvenær á árinu það fær inngöngu í L. í. S. 24. gr. L. í. S. greiðir ekki kaup félagslega kosinna þingfull- trúa né ferðakostnað eða dvalarkostnað þeirra. 25. gr. Framkvæmdastjórn skal hafa lokið reikningum L. í. S. fyrir hvert almanaksár 1. mars ár hvert og skulu reikn- ingarnir liggja frammi endurskoðaðir fyrir 1. apríl ár hvert. Reikningarnir skulu síðan lagðir fram til fullnaðaraf- greiðslu á næsta landsþingi. VI. KAFLI Lagabreytingar 26. gr. Lögum L. f. S. má aðeins breyta á landsþingi. Tíl þess að lagabreyting hljóti samþykki, þarf 2/3 hluta atkvæða á þingfundum. Tillögur um lagabreytingar skulu komnar til fram- kvæmdastjórnar eigi síðar en 6 vikum fyrir landsþing. VII. KAFLI Önnur ákvæði 27. gr. Brjóti eitthvert félag í L. í. S. lög þess eða samþykktir, getur framkvæmdastjórn að fengnu samþykki aðal- stjórnar, vikið félagi úr L. í. S. Þó skal næsta lands- þing leggja fullnaðarúrskurð á það mál. 28. gr. Óski félag úrsagnar úr L. í. S. skal senda rökstudda greinargerð til framkvæmdastjórnar, en landsþing skal þó hafa úrskurðarvald í málinu, enda sé félagið skuld- laust við L. í. S. Samþykkt á stofnþingi L. í. S. 2. sept. 1973. Endur- skoðað í heild og samþykkt á landsþingi L. í. S. 3. - 4. sept. 1983. 23 HLYNUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.