Hlynur - 15.10.1983, Blaðsíða 26
Skroppið
heim
að
Skriðu-
landi
Skömmu áður en ekið er inn Gils-
fjörðinn sem næstum sker Vestfirð-
ina frá afgangnum af landinu er far-
ið um Saurbæinn. Og það þýðir
ekki að það sé neinn skítastaður.
Nafnið merkir sveit hinna ríku. Og
þegar horft er yfir þessa fallegu
sveit finnst flestum að það hljóti að
vera réttnefni. Grónara og búsæld-
arlegra land sést varla. Utar við
fjörðinn stendur Fóðuriðjan á græn-
um völlum. Þar er framleitt úr ís-
lensku grasi.
í þessari sveit er rekið Kaupfélag
Saurbæinga þar sem heitir að
Skriðulandi. Þar starfa að staðaldri
7-8 manns. Svæði kaupfélagsins er
Saurbærinn, Klofningshreppur á
Fellsströnd og nokkrir bæir i
Flvammssveit. Verslun er stunduð
frá um 70 bæjum en félagsmenn
eru um 100 talsins. Mjólkin er seld
í mjólkursamlagið í Búðardal en
sláturhús er í Skriðulandi en þar
vantar tilfinnanlega frystihús, en í
sláturtíðinni er kjötið flutt jafnóðum
til Reykjavíkur en sumt í Búðardal.
Kaupfélagsstjórinn Úlfar Reynis-
son lét vel yfir afkomunni og benti
á, að árið 1982 var velta lagers
9,81 en var fyrir sjö árum 5,09. Þar
hefur því orðið umtalsverð aukning.
Úlfar sagði að sláturhúsið væri
burðarás kaupfélagsins. Hins vegar
væri erfitt að hafa nóg vöruúrval þó
í kaupfélaginu fengist sitt lítið af
hverju. Metravöru og meiri háttar
fatnað er samt ógerlegt að hafa.
Vörur er mestanpart sóttar til
Reykjavíkur og eru vörubílar í
stöðugum ferðum þangað.
Það kostar mikla útsjónarsemi og
starf að reka kaupfélag á lands-
byggðinni. En með samhentu
starfsliði er hægt að leysa öll vand-
amál.
Starfsfólk Kf. Saurbæinga utan viS verslunina. F. v.: Gunnar Kristinsson, Dóra Her-
bertsdóttir, Guðrún Jónannesdóttir, Ingunn Jónsdóttir og Úlfar Reynisson.
Hús Kf. Saurbæinga.
Kaupfélagsstjórinn Úlfar Reynisson á skrifstofu sinni.
26
HLYNUR