Hlynur - 15.10.1983, Qupperneq 54
Á myndinni er stjórn og varastjórn starfsmannafélagsins.
Fremri röð f. v.: Halldóra Eymundsdóttir, Erla Sigurbjörnsdótt-
ir, Anna Sigriður Karlsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir. Aftari röð f.
v.: Bára Ingvadóttir, Heimir Hávarðsson, Jóhann Sveinsson,
Gunnar Hermannsson, Þorgrímur Jón Einarsson og Kári Ey-
þórsson.
Starfsmannafélag Kf.
Austur-Skaftfellinga, Höfn.
Stofnað 28. 11. 1962.
Fyrsti formaður: Halldór Halldórsson.
Núverandi stjórn: Formaður Þorgrímur
Einarsson, verslun, gjaldkeri Heimir
Hávarðsson, frystihúsi, ritari Erla Sigurbjörns-
dóttir, verslun, meðstjórnendur: Bára
Ingvadóttir, frystihúsi og Halldóra Eymunds-
dóttir, kjötvinnslu.
Fulltrúi í stjórn kaupfélagsins er Egill
Jónasson með málfrelsi og tillögurétti.
Öryggistrúnaðarmenn: Andrés Júlíusson,
Guðni Hermannsson, Jóna Sigjónsdóttir og
Sigfús Benediktsson.
Félagsmenn eru 128. Ekki eru allir
starfsmenn félagar.
Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa og verslanir
á Höfn, útibú á Fagurhólsmýri, Nesjum og
Skaftafelli, mjólkursamlag, brauðgerð,
sláturhús og hraðfrystihús.
Aðstaða fyrir fundi er í fundarherbergi
kaupfélagsins og í mötuneyti í Krossey.
Haldin er árshátíð. Einnig ýmsir fundir, farin
leikhúsferð til Reykjavíkur á veturna,
spilakvöld o. fl.
í lok júní á hverju sumri er dvalið eina helgi
í tjöldum í Skaftafelli, og haldin fjölskylduhá-
tíð.
Félagið keppir með nokkur lið í róðri á sjó-
mannadaginn.
Námskeið hafa verið haldin í samvinnu við
kaupfélagið nokkrum sinnum á ári.
Félagið gefur út Starfsmannafréttir 3-4
sinnum á ári.
Félagið á orlofsheimilið Arasel í landi
Stafafells í Lóni, húsið er 110m2 að stærð.
Stjórn Sf. Kf. Skaftfellinga f.v.: Viggó Rúnar Einarsson, Helga
Halldórsdóttir og Jón E. Einarsson.
Starfsmannafélag
Kf. Skaftfellinga,
Vík í Mýrdal.
Stofnað 13. 3. 1974.
Fyrsti formaður: Kjartan Kjartansson.
Núverandi stjórn: Formaður Viggó Rúnar
Einarsson, varahlutaverslun, gjaldkeri Helga
Halldórsdóttir, skrifstofu, ritari Jón E.
Einarsson, vörubílstjóri.
Fulltrúi í stjórn kaupfélagsins er Þórður
Sveinsson með málfrelsi og tillögurétti.
Félagsmenn eru 40. Ekki eru allir starfsmenn
félagar.
Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa verslun og
söli?skáli í Vík, útibú á Kirkjubæjarklaustri,
trésmiðja og bifreiðaverkstæði í Vík.
Félagið hefur til afnota samkomusal í
húsnæði kaupfélagsins í Vík.
Haldin er árshátíð, kvöldvökur af og til,
vormót á hverju vori og á haustin er haldið
kveðjuhóf fyrir sumarfólk.
HLYNUR