Hlynur - 15.10.1983, Page 56

Hlynur - 15.10.1983, Page 56
Núverandi stjóm. Fremri röð f. v.: Dóra Jónsdóttir, Sigurbjörg Gisladóttir og Anna Pálsdóttir. Aftari röð f. v.: Magnús Jóns- son og Gunnar Sigurgeirsson. Starfsmannafélag Kf. Árnesinga, Selfossi. Stofnað 5. 12. 1973. Fyrsti formaður: Halldór Hafsteinsson Núverandi stjórn: Formaður Þór Magnússon, hjólbarðaverkstæði, varaform. Sesselja Bjarnadóttir, Vöruhúsi, gjaldkeri Ingibjörg Gunnarsdóttir, skrifstofu, meðstj. Hjalti Sig- urðsson. Félagar eru 30. Ekki eru allir starfsmenn félagar. Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa, Vöruhús og verslanir á Selfossi, smiðjur, brauðgerð, lyfjabúð, þvottahús, útibú í Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri og Laug- arvatni. Félagið hefur aðstöðu til funda í fundarsal kaupfélagsins. Haldið er þorrablót árlega og vetrarfagnaður, spilakvöld eru af og til. Starfsmannafélag Kf. Suðurnesja, Keflavík. Stofnað 22. 10. 1945. Fyrsti formaður: Sölvi Ólafsson. Núverandi stjórn: Formaður Magnús Jónsson, Sandgerði, gjaldkeri Anna Pálsdóttir, Keflavík, ritari Dóra Jónsdóttir, Grindavík, meðstjórn- endur: Gunnar Sigurgeirsson, Grindavík og Sigurbjörg Gísladóttir, Keflavík. Fulltrúi í stjórn kaupfélagsins er Skjöldur Þorláksson með málfrelsi og tillögurétti. Öryggistrúnaðarmaður er Sigurður Björgvins- son. Félagar eru 109. Allir starfsmenn eru félagar. Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa, stórmarkað- urinn Samkaup, aðrar verslanir í Keflavík, kjötvinnsla, útibú í Sandgerði, Ytri-Njarðvík og Grindavík. Félagið hefur aðstöðu til fundahalda í veitingastofu í Samkaup. Haldin er árshátíð. Félagið hefur tekið þátt í firmakeppni í innan- og utanhúss knattspyrnu í Keflavík. Félagið á tvö orlofshús í Þrastarskógi, eldra húsið er 33m2 og var tekið í notkun um 1960, hitt er 40m2 að stærð og var tekið í notkun 1979. 56 HL YNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.