Hlynur - 15.10.1983, Síða 61
eraíarenúbl
P.A. valdi
Ef þið vitið ekki hvað framhjá-
hald er, þá er það rangur maður
á réttum stað.
Undanfarið hef ég séð fáar
kjaftakerlingar á gangi. Þær eiga
allar bíl.
Ef kona lækkar róminn þýðir
það að hún ætlar að biðja um
eitthvað. Ef kona hækkar
róminn.... þá hefur bóninni
verið neitað.
Viljið þér gera svo vel og
bíða andartak, frú.
bér komið því miður of seint
Iseknir. í morgun hafði hann
yfir fjörutíu stiga hita.
Hafið þið heyrt um konuna sem
losaði sig við 100 kg. af óþarfa
fitu? Jú, það var í gær, þegar
hún skildi.
Stórkostlegt, frábært. Þér verðið
fyrsti karlmaðurinn í heiminum
sem elur barn, sagði læknirinn
stórhrifinn við sjúklinginn.
En hvað haldið þið að nábú-
arnir segi, ég er ekki einu sinni
giftur.
Mór er fjandans sama hvað
félagsfræðikennarinn þinn
vil. Snáfaðu í rúmið strákur.
Ef þú elskar konuna þína í raun
og veru getur þú fengið hana til
að gera allt sem hana langar til.
•
Prófaðu að hrósa konunni þinni
við og við, jafnvel þó hún verði
skelfingu lostin í fyrstu.
Það þarf mikinn viljastyrk til að
snúa frá frjálsu lífi piparsveins-
ins í hjónabandið, en sem betur
fer hafa flestar konur þennan
viljastyrk.
Og, herra dómari! Hvernig
átti aumingja konan að vita,
að eiginmaður hennar hefði
ofnæmi fyrir arsenikki.
Tvíburasystir konunnar minnar
býr hjá okkur.
Þekkir þú þær í sundur?
Nei, svo vitlaus er ég ekki.
Og svo var það skotinn, sem
ætlaði til Ameríku. Hann fór til
Samvinnuferða-Landsynar að
spyrja hvað farið kostaði. Af-
greiðslustúlkan ákvað að gera
svolítið gys að skotanum og
sagði: Það eru 5000 krónur á
fyrsta farrými, 3000 krónur á
öðru farrými og 1200 krónur á
þriðja. Ef þér kjósið það frekar
getið þér synt með skipinu fyrir
300 krónur.
Já, sagði skotinn og hugsaði
sig um. Hvoru megin henda þeir
matarleyfunum?
HLYNUR
6