Hlynur - 15.10.1983, Side 84

Hlynur - 15.10.1983, Side 84
Sjón er sögu ríkari er óhætt að segja um grasgarðinn eða Botanical Garden í Kandy á Sri Lanka. 2. ÞATTUR Ferð Geiru Óladóttur og Ingibjargar Vagnsdóttur Nú segir frá batikinni á Sri Lanka, fátæku paradísinni og fljótinu 84 Með Aurie, Þóri og Shiran á Sri- Lanka í Sri Lanka þekktu þær íslenskan mann, Þóri Hinriksson, sem er kvæntur þarlendri konu og búa þau í Colombo. Ekki reyndust þau heíma þegar til átti að taka. Á flug- vellinum hittu þær innfædda menn sem buðust til að vísa þeim á af- bragðs hótel og óku þeim þangað. En væri það afbragðs hótel þá höfðu þær lítinn áhuga fyrir að sjá þau lakari. Þær fóru þá aftur að vitja um kunningja sína og þá var húsmóðir- in komin heim. Þar var þeim tekið tveim höndum og þau hjónin vildu allt fyrir þær gera og hann Shiran, litli sæti sonurinn þeirra, hafði gam- an af þessum hvítu stelpum úr norðrinu. Þau fóru öll til Kandy, sem er uppí háfjöllunum. Þar lentu þær í trúarathöfn i Búddahofinu „Temple of the Tooth.“ Þar voru barðar bumbur og leikið á flautur þegar inn var komið og síðan fóru allir uppá næstu hæð en bumbuslátturinn hélt áfram niðri. Þar uppi fór fólk inn í það heilaga, þar sem ekki mátti taka myndir, og færðu guðunum gjafir, blóm og reykelsi sem nauð- rakaðir munkar klæddir skærappel- sínugulum kuflum veittu við töku. Sri Lanka búar eru frægir fyrir batik vinnu og þær sannfærðust um að batikin þeirra væri ekkert slor. Þar hittu þær Fernando batikfram- leiðanda og skoðuðu verkstæðið og vinnubrögðin. Fátæka paradísin Sri Lanka er paradís á jörðu, nátt- úrufegurðin er meiri en orð fá lýst og gróðurinn vefur sig um allt, loftið er hlýtt og ferskt. Sri Lanka er óhugnanleg, fá- tæktin og eymdin er meiri en orð fái lýst. Þar, eins og víðar má segja að flagð sé undir fögru skinni. Flagð fá- tæktar. Karlarnir sem báru töskurnar á flugvellinum voru í lélegum skyrtum og vöfðu einhverjum tuskum um sig miðja. Þar eru engin þau þægindi sem við þekkjum, engar vélar en þar eru þjónar í staðinn. Það borgar sig ekki að hafa vélar, vinnuaflið kostar ekkert. Það þykir gott að hafa $ 20 á mánuði. Hjá þeim Þórði lagði ráðskonan á borð hvítan dúk og vandað leirtau en heima sátu fimm ung börn sem aldrei fengu fylli sína. Samt borgaði Þórir henni vel yfir meðallaun, en það má víst ekki heldur borga of mikið, þá fer allt kerfið úr skorðum. Þær fóru í göngu um borgina og komu í hverfi þar sem fótalausir beiningamenn báðu sér ölmusu og HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.