Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
sKOðun Ellen Calmon skrifar
um stimpla og mannréttindi. 12
spOrt Viðar Örn Kjartans-
son er búinn að skora tíu
mörk í Ísrael. 16
lÍfið Sagan á bak
við lagið hennar
Svölu Björgvins. 52
MarK-
aður Konum
í stjórnun
fjölgar ekki.
plús 2
sérblöð
l fólK l
MarKað-
urinn
*Samkvæmt prentmiðla-
könnun Gallup apríl-júní
2015
frÍtt
VAXTARÆKT FYRIR
LENGRA KOMNA
VERTU MEISTARI OG MASSAÐU SPARNAÐINN
heilbrigðisMál Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir vill að gripið verði
til opinberra aðgerða til að stemma
stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma á
Íslandi. Niðurstöður úr gagnabanka
embættisins sýna að smituðum
hefur fjölgað jafnt og þétt á undan-
förnum árum – einkum á það við
um sárasótt og lekanda.
Þórólfur hefur lagt til að sam-
vinna velferðarráðuneytisins og
sóttvarnalæknis við heilbrigðiskerf-
ið, skólakerfið og ýmis grasrótar-
samtök, eins og HIV-Ísland og Sam-
tökin 78, verði aukin í þessu skyni.
Eins að skipaður verði starfshópur
til að gera tillögur um aðgerðir.
Þórólfur segir margt koma til
greina sem viðbrögð við stöðunni,
og þau verði að beinast að þeim
hópum þar sem aukningin kemur
helst fram – hjá samkynhneigðum
karlmönnum.
„Það er ákveðin fræðsla sem þarf
líka að fara af stað fyrir ungmenni.
Hún er í gangi í skólum landsins, en
það þarf að skerpa á því starfi. Þetta
er þróun sem við sjáum í nálægum
löndum, sem er nákvæmlega eins
og hér,“ segir Þórólfur og bætir við
að það sé greinilegt að kynslóðirnar
sem ekki muna óttann vegna HIV-
faraldursins hegði sér samkvæmt
því. Eins þurfi að tryggja hreinar
Stjórnvöld verða að grípa inn í
Útbreiðsla kynsjúkdóma á Íslandi undanfarin ár krefst aðkomu stjórnvalda, að mati sóttvarnalæknis. Hann
vill aukna samvinnu heilbrigðisyfirvalda, skólakerfis, HIV-Íslands og Samtakanna 78 í málaflokknum.
Gylfi Þór Sigurðsson átti góðan leik með Swansea í gær. Skoraði hann sigurmarkið í 2-1 sigri liðsins gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni. Swansea heldur því sautjánda sætinu og er
tveimur stigum frá fallsæti. Gylfi er búinn að skora sjö mörk á tímabilinu. Þá hefur hann einnig lagt upp sjö mörk og því komið við sögu í helmingi marka Swansea. Nordicphotos/Getty
hvers vegna greindust
tvö þúsund manns
með klamydíu í fyrra?
Meira á síðu
8
nálar fyrir sprautufíkla og fjölga
hraðgreiningarprófum og endur-
skipuleggja hvernig hægt er að
nálgast fólk sem er smitað.
Það sé athyglisvert að einstakling-
ar eru að greinast með alnæmi, sem
er lokastig HIV-sjúkdómsins. „Það
bendir til þess að margir einstakl-
ingar geti verið lengi með sýkingu
af völdum HIV án þess að hennar
verði vart og er það áhyggjuefni.
Við verðum að bregðast við þessu,“
segir Þórólfur en bætir við að allt
kosti þetta peninga, mannafla og
mikla vinnu. „Ég er að kalla eftir því
að það verði farið ofan í alla þætti
málsins.“ svavar@frettabladid.is