Fréttablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 4
PANDA
VERÐ FRÁ
1.999.000 KR.
PANDA
4X4 CROSS
VERÐ FRÁ
2.990.000 KR.
PANDA
4x4
VERÐ FRÁ
2.890.000 KR.
ÍTALARNIR ERU MÆTTIR TIL LEIKS. PANDA MEÐ EÐA ÁN FJÓRHJÓLDRIFS!
KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM FIAT. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR, RJÚKANDI HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS
Vinnumarkaður Bændur fá til sín
hundruð sjálfboðaliða á hverju ári
frá útlöndum sem ganga í hin ýmsu
verk fyrir bændur. Alþýðusam-
bandið hefur skorið upp herör gegn
sjálfboðavinnu í landbúnaði í sam-
einingu með Starfsgreinasamband-
inu og Samtökum atvinnulífsins.
Að mati ASÍ er um klárt lögbrot að
ræða. Formaður Bændasamtakanna
tekur í sama streng.
Á síðunni Workaway má nú finna
um 180 auglýsingar þar sem Íslend-
ingar óska eftir sjálfboðaliðum til
vinnu. Langflestar auglýsingar koma
úr landbúnaði þar sem hjálpa á til
við bústörf, kaffihús í ferðaþjónustu,
sauðburð og allt mögulegt sem snýr
að störfum í landbúnaði.
Á annarri vefsíðu, Helpx, eru 76
auglýsingar frá Íslandi. Þar er óskað
eftir sjálfboðaliðum við ísfram-
leiðslu í Holtseli í Eyjafirði, sem er
ísframleiðsla í samkeppnisrekstri.
„Bændur eru að okkar mati stór-
tækir í því að fá til sín sjálfboðaliða
að utan,“ segir Dröfn Haraldsdóttir,
sérfræðingur hjá ASÍ. „En um störf
í landbúnaði gilda kjarasamningar
og því í trássi við lög og kjarasamn-
inga að ráða ólaunað vinnuafl í þessi
störf.“
Fréttablaðið hefur áður greint frá
starfsemi Umhverfisstofnunar og
umfangi sjálfboðaliða í þeirra starf-
semi en þeir sinna rúmlega 1.700
vinnudögum fyrir stofnunina.
Dröfn segir mikilvægt að bændur
hætti þessum undirboðum því að
um lögbrot sé að ræð. „Við höfum
með ýmsum leiðum reynt að
sporna við þessari þróun. Síðasta
vor sendu bæði Alþýðusambandið
og Starfsgreinasambandið út bréf
til flestallra þeirra sem þá voru með
auglýsingu á þessum vefjum. Fáir
sinntu því nokkuð og auglýsingum
fjölgaði. Við höfum einnig farið þess
á leit við Bændasamtökin að þau
skrifuðu undir svipaða yfirlýsingu
og Samtök atvinnulífsins skrifuðu
undir með okkur en því var hafnað,“
segir Dröfn.
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Bændasamtakanna, er sammála
Alþýðusambandinu og hvetur
bændur til að greiða laun eftir kjara-
samningum. „Það er alveg skýrt af
okkar hálfu. Við erum með samning
við Starfsgreinasambandið fyrir
hönd bænda. Menn skulu fara eftir
þeim samningum og við hvetjum
alla bændur til að gera það,“ segir
Sindri. „Ef menn eru að ráða starfs-
fólk þá eiga þeir að vera tilbúnir
að greiða því í samræmi við kjara-
samninga.“ sveinn@frettabladid.is
Brjóta lög með sjálfboðaliðum
„Eins og að taka
krakka í sveit“
Guðmundur Jón Guðmundsson,
bóndi í Holtseli, sem starfrækir
mjólkurbú og ísgerð á bænum, er
einn þeirra sem óska eftir starfs-
kröftum að utan. Að hans mati sé
þetta ekkert ósvipað því og þegar
krakkar fóru í sveit hér áður fyrr.
„Okkar sjónarmið er það að við
erum að gera þessum krökkum
kleift að koma og kynnast okkar
lífi eins og það er í raunveruleik-
anum. Í þessu tilfelli skiptir það
ekki máli fyrir reksturinn hvort
fólkið er hérna eða ekki,“ segir
Guðmundur Jón. „Það hefur verið
til siðs í íslenskum landbúnaði í
áratugi að taka krakka í sveit. Ég
læt krakkana til dæmis ekki í nein
verk sem ég myndi ekki vinna.“
Fjöldi auglýsinga er um aðstoð í sauðburði í vor. Fréttablaðið/SteFán
Bændur eru hvað stór-
tækasta atvinnustéttin
til að ráða til sín sjálf-
boðaliða. ASÍ og Starfs-
greinasambandið hafa
barist gegn þróuninni
síðustu ár. Formaður
Bændasamtakanna
segir bændur verða
að greiða samkvæmt
kjarasamningum.
Menn skulu fara
eftir þeim samn-
ingum og við hvetjum alla
bændur til að
gera það
Sindri Sigurgeirs-
son, formaður
Bændasamtakanna
alþingi Forsætisnefnd þingsins
ákvað á fundi sínum í gær að lækka
starfskostnað þingmanna sem
nemur um 150 þúsund krónum á
mánuði. Með því kemur forsætis-
nefnd til móts við óánægjuraddir
með hækkun launa þingmanna.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, og nefndarmaður í forsætis-
nefnd, telur að frekari skref þurfi að
taka.
Ferðakostnaður þingmanna í kjör-
dæmum var lækkaður úr tæpum 84
þúsund krónum í 30 þúsund krónur
og starfskostnaður þingmanna var
lækkaður um heilar fimmtíu þúsund
krónur, er nú 40 þúsund krónur en
var rúmar 90 þúsund krónur mán-
aðarlega. Forsætisnefndin segir þetta
jafnast á við 150 þúsund krónur að
teknu tilliti til skatta.
Hvorki er hróflað við húsnæðis- né
dvalarkostnaði þingmanna
Þessi ákvörðun forsætisnefndar
hefur í för með sér að ákvörðun kjar-
aráðs stendur óbreytt. „Þetta mun
Starfskjör þingmanna rýrð um 150 þúsund
Nú vinn ég að því að
höfða mál til þess að
fá úrskurði kjararáðs hnekkt
þar sem ég tel kjara ráð ekki
hafa farið eftir
lögum
Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata,
Fyrir breytingu Eftir breytingu
Húsnæðis- og dvalarkostnaður 134.041 kr. 134.041 kr.
Álag á húsnæðis- og dvalarkostnað 53.616 kr. 53.616 kr.
Húsnæðis- og dvalarkostn. v/heimanaksturs 44.680 kr. 44.680 kr.
Ferðakostnaður í kjördæmum 83.852 kr. 30.000 kr.
Starfskostnaður 90.636 kr. 40.000 kr.
✿ þingfararkostnaður
Frakkland François Fillon, for-
setaframbjóðandi franskra Repúbl-
ikana, segir fjölmiðla í herferð gegn
sér og sakar þá um að reyna að eyði-
leggja framboð sitt.
Í síðustu viku greindi viku-
blaðið Le Canard Enchaine frá því
að kona Fillon´s, Penelope, hefði
þegið hundruð þúsunda evra fyrir
uppdiktuð störf. Fleiri miðlar hafa
greint frá því í kjölfarið að upphæð-
irnar gætu verið mun hærri.
„Aldrei í sögu fimmta lýðveldis-
ins hefur verið farið í slíka herferð
atvinnurógburðar gegn frambjóð-
anda,“ sagði Fillon í gær. Hann sagði
konu sína ekki hafa neitt að fela.
Le Monde greindi frá því á þriðju-
dag að Penelope Fillon hefði þegið
830.000 evrur fyrir að aðstoða
eiginmann sinn á meðan hann sat á
þingi. Er sú upphæð 330.000 evrum
hærri en upphæðin sem Le Canard
Enchainé greindi frá. Börn þeirra
fengu einnig greitt fyrir aðstoðar-
störf.
Heimilt er að ráða fjölskyldu-
meðlimi sem aðstoðarmenn en Le
Canard Enchainé segir að ekki líti út
fyrir að Penelope Fillon hafi í raun
unnið fyrir eiginmann sinn.
Lögregla gerði áhlaup á skrif-
stofur þingsins í gær. Greindu
franskir fjölmiðlar frá því að hún
væri að leita að skjölum sem sýndu
fram á að Penelope Fillon hefði í
raun og veru verið aðstoðarmaður
François Fillon. – þea
Fillon ósáttur
við fjölmiðla
François Fillon. nordicphotoS/aFp
ekki hafa áhrif á laun ráðherra. Nú
vinn ég að því að höfða mál til þess
að fá úrskurði kjararáðs hnekkt. Ég
tel kjararáð ekki hafa farið að lögum
við úrskurð sinn. Því ber að halda sig
innan almennra launahækkana sem
var ekki gert að mínu mati,“ segir Jón
Þór Ólafsson. – sa
1 . F E b r ú a r 2 0 1 7 m i ð V i k u d a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð