Fréttablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 18
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18 • Dalbraut 1
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Fyrirtækið GMR Endurvinnslan ehf.
á Grundartanga var tekið til gjald-
þrotaskipta í Héraðsdómi Vestur-
lands í gær. Um 17 starfsmönnum
fyrirtækisins hafði þá verið sagt upp
störfum en það endurvann stál sem
fellur til hér á landi.
Daði Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri GMR, vildi ekki tjá sig um
málið þegar blaðamaður náði tali
af honum og vísaði á skiptastjóra
fyrirtækisins. Fréttablaðið ræddi
við Daða síðastliðinn fimmtudag
og kom þá fram að óvissa ríkti enn
um reksturinn. Verksmiðja GMR
var þá ekki lengur rafmagnslaus en
RARIK hafði nokkrum vikum áður
lokað á fyrirtækið vegna vangold-
inna reikninga. Umhverfisstofnun
hafði ítrekað gert athugasemdir við
starfsemi málmendurvinnslunnar
og skráð á yfir þriðja tug frávika frá
starfsleyfi. Fyrirtækið sætti auknu
eftirliti vegna ítrekaðra vanefnda
við að koma mengunarvörnum í
viðunandi horf.
Framkvæmdastjórinn sagði
eigendur fyrirtækisins í leit að
nýjum fjárfestum, bæði hér heima
og erlendis, en vildi ekki svara
því hversu mikil fjárþörfin væri.
Daginn eftir að fréttin birtist var
síðan öllu starfsfólki fyrirtækisins
sagt upp störfum.
„Þetta fyrirtæki var stofnað fyrir
fjórum árum og það er búinn að
vera erfiður og langur uppbygg-
ingarfasi. Erfiðari og lengri en menn
ætluðu sér og það er margt sem
spilar þar inn í. Heimsmarkaðsverð
á stáli er þar langstærsti þátturinn,“
sagði Daði í samtali við Frétta-
blaðið. – hg
Málmbræðslan
GMR var í gær
úrskurðuð
gjaldþrota
GMR hóf framleiðslu á Grundartanga árið 2013. FRéttablaðið/GVa
bjarni Ármansson fjárfestir á nú
fjórðungshlut í S4S sem á Skechers í
Kringlunni. FRéttablaðið/ERniR
Fjárfestingarfélagið Sjávarsýn í eigu
Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og
fyrrverandi forstjóra Glitnis, keypti
í október 26 prósenta hlut í heild-
versluninni S4S ehf. sem rekur skó-
verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
Eignarhluturinn var áður í eigu
Ingunnar Gyðu Wernersdóttur fjár-
festis en S4S á Steinar Waage, Ecco,
Kaupfélagið, Skór.is, Toppskóinn og
íþróttavöruverslunina Air.is í Smára-
lind.
Bjarni settist í stjórn heildversl-
unarinnar í byrjun nóvember og
tók þá sæti Bjarna Hafþórs Helga-
sonar, fyrrverandi fjárfestingarstjóra
KEA og eiginmanns Ingunnar. Helga
Sverrisdóttir, eiginkona Bjarna, fór á
sama tíma inn í varastjórn félagsins í
stað Ingunnar.
Pétur Þór Halldórsson, stærsti eig-
andi S4S, á 50 prósenta hlut í félag-
inu samkvæmt nýjasta ársreikningi
þess. Aðrir hluthafar eru Hermann
Helgason, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, og Georg Kristjánsson en
þeir eiga sín tólf prósentin hvor. S4S
var rekið með 111 milljóna króna
hagnaði árið 2015 en eignir þess
námu þá 735 milljónum króna.
Eigið fé félagsins var jákvætt um 342
milljónir og eiginfjárhlutfallið var 47
prósent.
Sjávarsýn á meðal annars úti-
vistarvöruverslunina Ellingsen,
fyrirtækið Ísmar í Síðumúla og
11,5 prósenta hlut í olíuþjónustu-
fyrirtækinu Fáfni Offshore. Í byrjun
desember í fyrra samþykktu Seðla-
banki Íslands og samkeppnisyfir-
völd á Spáni kaup Solo Seafood, í
eigu Sjávarsýnar og þriggja íslenskra
útgerðarfyrirtækja, á Icelandic Iber-
ica, fyrrverandi dótturfélagi Icelan-
dic Group á Spáni. Sjávarsýn átti í
árslok 2015 eignir upp á 3,3 milljarða
króna miðað við nýjasta ársreikning
fjárfestingarfélagsins. Ekki náðist
í Bjarna Ármannsson við vinnslu
fréttarinnar. haraldur@frettabladid.is
Bjarni Ármanns keypti
sig inn í skórisann S4S
Sjávarsýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, keypti 26 prósenta hlut í
heildversluninni S4S af Ingunni Gyðu Wernersdóttur. Rekur skóverslanirnar
Steinar Waage, Ecco, Skór.is, Kaupfélagið, Toppskórinn og Air.is í Smáralind.
Gjaldeyriskaup Seðlabanka Íslands
á fyrstu fjórum vikum nýs árs
nema aðeins um fimm milljörðum
króna. Það er um nítján prósent af
heildarveltu á gjaldeyrismarkaði. Til
samanburðar keypti Seðlabankinn
hins vegar gjaldeyri fyrir um átján
milljarða í desember og var hlutur
bankans þá í veltunni um 45 pró-
sent.
Á sama tíma og bankinn hefur
haldið aftur af sér í gjaldeyriskaup-
um samhliða minna innflæði gjald-
eyris á markað, sem stafar meðal
annars af verkfalli sjómanna, þá
hefur gengi krónunnar lækkað um
fimm prósent gagnvart evru það
sem af er ári. Seðlabanki Íslands
keypti erlendan gjaldeyri fyrir sam-
tals 386 milljarða króna 2016 og
jukust kaup bankans um 42% á milli
ára. Þrátt fyrir þessi miklu gjaldeyr-
isinngrip hækkaði gengi krónunnar
um 18,4 prósent á síðasta ári. - hae
Aðeins keypt gjaldeyri fyrir 5 milljarða
1 . f e b r Ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn