Fréttablaðið - 01.02.2017, Side 20
Keahótela nema samtals 701 milljón
króna og bókfært eigið fé félagsins
var um 273 milljónir í árslok 2015.
Fimm hótel í Reykjavík
Ekki er búið að ganga frá ársreikningi
fyrir síðasta rekstrarár en samkvæmt
upplýsingum Markaðarins jókst
EBITDA-hagnaður Keahótela umtals-
vert á árinu 2016 og var samtals um
einn milljarður. Sú aukning stafar
einkum af því að hótelherbergjum
sem heyra undir rekstur samstæð-
unnar fjölgaði mikið á tímabilinu
vegna opnunar tveggja nýrra hótela í
árslok 2015. Að sögn þeirra sem hafa
setið fjárfestingakynningu á félaginu
þá má gróflega áætla að heildarvirði
þess gæti verið um sex milljarðar.
Auk framtakssjóðsins Horns II
eru aðrir hluthafar Keahótela Trölla-
hvönn ehf., sem á 32 prósenta hlut í
hótelfélaginu, og Páll L. Sigur jónsson,
framkvæmdastjóri Keahótela, en
hann á átta prósenta hlut í gegnum
félagið Selen ehf. Þeir hluthafar
hafa einnig ákveðið að selja bréf sín
í félaginu. Eigendur Tröllahvannar
eru Andri Gunnarsson, Kristján
M. Grétarsson, Fannar Ólafsson og
Þórður Hermann Kolbeinsson. Þeir
fjórmenningar standa jafnframt að
baki félaginu Hvanna ehf. sem seldi
60 prósenta hlut í Keahótelum til
Horns II framtakssjóðs í maí 2014.
Hluthafar í sjóðnum Horn II, sem
var komið á fót í apríl 2013, eru 30
talsins og samanstanda af lífeyris-
sjóðum, fjármálafyrirtækjum og fag-
fjárfestum. Líftími sjóðsins er áætl-
aður fyrir árslok 2018 en auk þess
að hafa fjárfest í Keahótelum hefur
Horn II keypt eignarhluti í Bláa lón-
inu, Fáfni Offshore og Invent Farma.
Horn II seldi sumarið 2016 hlut sinn í
lyfjafyrirtækinu Invent Farma.
Keahótel reka sem fyrr segir átta
hótel, fimm í Reykjavík og þrjú á
Norðurlandi, en síðustu tvö ár hefur
félagið opnað tvö ný hótel í Reykja-
vík – hótelin Skugga og Storm. Önnur
hótel sem félagið starfrækir eru
Reykjavík Lights, Apótek og Borg sem
er að finna í Reykjavík. Á Akureyri eru
hótelin tvö – Hótel Norðurland og
Hótel Kea – auk þess sem Keahótel
reka hótelið Gíg í Mývatnssveit.
Hluthafar eignarhalds-félagsins Keahótela, sem rekur samtals átta hótel víðsvegar um landið, meðal annars Hótel Borg
og Apótek Hótel í Reykjavík, hafa
sett félagið í söluferli. Á meðal þeirra
sem áforma að selja hlut sinn í hótel-
keðjunni er Horn II, framtakssjóður
í rekstri Landsbréfa, en aðeins eru
tæplega þrjú ár liðin síðan sjóðurinn
festi kaup á 60 prósenta hlut í Kea-
hótelum. Það er fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka sem er ráðgjafi seljenda
við söluferlið en það hófst um miðjan
síðasta mánuð.
Hermann Már Þórisson, forstöðu-
maður sérhæfðra fjárfestinga hjá
Landsbréfum og annar framkvæmda-
stjóra Horns II, staðfestir í samtali við
Markaðinn að framtakssjóðurinn,
ásamt meðfjárfestum í Keahótelum,
ætli að selja allt hlutafé hótelkeðj-
unnar. Hann segir að sú ákvörðun að
selja á þessum tímapunkti hafi verið
tekin í ljósi áhuga sem ýmsir inn-
lendir og erlendir fjárfestar hafi sýnt á
Keahótelum að undanförnu. Ekki er
hægt að segja nákvæmlega fyrir um
hversu langan tíma söluferlið muni
taka en stefnt er að því að ljúka sölu
á félaginu á þessu ári.
Rekstur Keahótela hefur gengið
afar vel á undanförnum árum. Hagn-
aður félagsins á árinu 2015 nam 263
milljónum króna og næstum tvö-
faldaðist frá fyrra ári. Þá var velta
hótelkeðjunnar tæplega 1,7 millj-
arðar króna og jókst um liðlega
500 milljónir króna frá árinu 2014.
EBITDA-hagnaður félagsins – afkoma
fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir
– var um 372 milljónir á árinu 2015,
að því er fram kemur í síðasta birta
ársreikningi, og hækkaði um meira
en 200 milljónir á milli ára. Eignir
Ein stærsta hótelkeðja landsins til sölu
Eigendur Keahótela, sem reka meðal annars Hótel Borg og Apótek Hótel, hafa ákveðið að selja hótelkeðjuna. Félagið starfrækir samtals
átta hótel á landinu og heildarvirði þess gæti verið um 6 milljarðar. Á meðal þeirra sem áforma að selja er framtakssjóðurinn Horn II
sem á 60 prósenta hlut sem hann keypti vorið 2014. Framkvæmdastjóri Horns segir erlenda aðila hafa sýnt Keahótelum áhuga.
HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT
Í FRÉTTABLAÐINU
Kannaðu dreifileiðir í síma 5125448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Heimild: *Skv. Blaðakönnun Gallup, okt.-des. 2016.
Það er hvergi betri staður
fyrir fjölpóst en inni í
Fréttablaðinu því það
tryggir að auglýsingaefnið
lendir á eldhúsborðinu
þegar blaðið er opnað.
Um 55% íbúa á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttablaðið daglega.*
Rúmlega 85.000 manns á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttablaðið daglega.*
Hótel Borg
er eitt af átta
hótelum sem
Keahótel reka.
Samtals eru
hótelin fimm
talsins í Reykja-
vík og þrjú á
Norðurlandi,
meðal annars
Hótel Kea og
Hótel Norður-
land.
FRettaBladid/gva
Ekkert lát verður á miklum verð-
hækkunum á húsnæðismarkaði á
næstu árum samkvæmt nýrri spá
greiningardeildar Arion banka
en hún gerir ráð fyrir 14 prósenta
hækkun íbúðaverðs á þessu ári, 9,7
prósent 2018 og 7,5 prósent árið
2019. Það er því útlit fyrir að íbúða-
markaðurinn hitni enn meira gangi
spá bankans eftir en nú þegar glittir
í gul ljós á sumum svæðum, meðal
annars miðsvæðis í Reykjavík, þar
sem verð hefur hækkað sérlega
mikið að undanförnu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
greiningardeildar Arion banka um
íbúðamarkaðinn sem var kynnt á
fundi bankans í gær. Í niðurstöð-
um skýrslunnar segir að miðað við
spána séu líkur á því að húsnæðis-
verð hækki talsvert umfram flestar
undirliggjandi hagstærðir á borð
við kaupmátt og ráðstöfunartekjur.
„Til lengri tíma er því ástæða til að
vara við ofhitnun á markaðnum.“
Húsnæðisverð hefur hækkað
sífellt hraðar síðustu mánuði og
nam árshækkunin á höfuðborgar-
svæðinu í desember 15%. Í skýrsl-
unni er bent á að önnur svæði hafi
tekið við sér og þannig hefur hús-
næðisverð utan höfuðborgarsvæð-
isins hækkað um 20 prósent síðustu
tólf mánuði. Sú hækkun er að mestu
leyti drifin áfram af mikilli hækkun
húsnæðisverðs í nágrannasveitar-
félögum höfuðborgarsvæðisins.
Hagstætt efnahagsástand, fólks-
fjölgun, kaupmáttaraukning og gott
aðgengi að fjármögnun eru á meðal
Vara við ofhitnun á húsnæðismarkaði
Byggja þarf að lágmarki átta þúsund íbúðir á næstu þremur árum til að halda í við
fólksfjölgun. FRéttaBlaðið/vilHelm
1.000
milljónir er áætlaður
EBITDA-hagnaður Keahót-
ela á árinu 2016.
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
14%
er spá greiningardeildar
Arion banka um hækkun
á húsnæðisverði á árinu
2017
helstu ástæðna þess að húsnæðis-
verð hefur hækkað mikið upp á síð-
kastið – og mun líklega gera áfram.
Verðhækkunin skýrist einnig af því
að of lítið hefur verið byggt síðustu
ár og áætlanir hafa ekki staðist.
Í skýrslu greiningardeildarinnar
segir að byggja þurfi að lágmarki
átta þúsund íbúðir á næstu þremur
árum til að halda í við fólksfjölgun
og er þá ekki tekið fyllilega tillit til
uppsafnaðrar þarfar. Samkvæmt
spá bankans er ólíklegt að sá fjöldi
náist. hordur@frettabladid.is
Hermann már
Þórisson, annar
framkvæmdastjóra
Horns ii
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r4 mArKAðurInn