Fréttablaðið - 01.02.2017, Side 23
fólk
kynningarblað
Það er svo gaman
að fá að upplifa
lögin okkar í þessum nýja
búningi. Gnúsi Yones
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r
„Það er svo gaman að fá að upplifa lögin okkar í þessum nýja búningi. Við vissum í raun ekki við hverju við áttum að búast en erum afskaplega ánægð með útkomuna,“
segir Gnúsi Yones, sem hér sést á æfingu ásamt Sölku Sól og Steinunni Jónsdóttur úr Amabadama. MYND/EYÞÓR
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur áður komið fram á sambærilegum tón-
leikum við mjög góðar undirtektir. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og reggíhljómsveitin Amabadama
koma fram saman á einstökum tón
leikum í Hamraborg í Hofi á Ak
ureyri næsta laugardag. Þetta er í
fyrsta skiptið sem sinfóníuhljóm
sveit og reggísveit leiða saman
hesta sína með þessum hætti hér á
landi og vafalaust þótt víðar væri
leitað.
Það var Þorvaldur Bjarni Þor
valdsson, tónlistarstjóri Menn
ingar félags Akureyrar, sem átti
hugmyndina að þessari samvinnu
að sögn Gnúsa Yones, eins af
söngvurum Amabadama og dub
meistara sveitarinnar, og voru
meðlimir Amabadama ekki lengi að
samþykkja hana. „Þorvaldur hafði
samband við okkur síðasta haust og
bar þessa skemmtilegu hugmynd
undir okkur og við sögðum held ég
bara strax já. Þetta er náttúrulega
alveg mögnuð pæling og við erum
mjög þakklát fyrir að fá þetta tæki
færi svona upp í hendurnar.“
Skemmtileg áSkorun
Gnúsi segir tónlist þessara ólíku
sveita smellpassa saman þótt mörg
um þyki það vafalaust sérkenni
legt. „Það er svo gaman að fá að
upplifa lögin okkar í þessum nýja
búningi. Við vissum í raun ekki við
hverju við áttum að búast en erum
afskaplega ánægð með útkomuna.
Þorvaldur Bjarni og Greta Salóme
útsettu tónlistina og þau ná alveg
fullkomlega að láta allt smella
saman og bæta einhverju við lögin
án þess þó að breyta fílingnum.
Þetta er algjörlega ennþá í okkar
anda en samt eitthvað algjörlega
nýtt, a.m.k. fyrir okkur.“ Sinfón
íuhljómsveit Norðurlands hefur
áður átt í sambærilegu samstarfi
með góðum árangri og m.a. haldið
tónleika með Árstíðum, Todmobile,
Dimmu, Eivöru Pálsdóttur, Gretu
Salóme og Dúndurfréttum.
Gnúsi segir samstarfið vissu
lega hafa verið skemmtilega áskor
un. Amabadama hefur bæði spilað
sem tíu manna band auk þess sem
þau hafa einnig prófað sig áfram
að undanförnu með meira elekt
rósándi. Þar fer einmitt Gnúsi í
hlutverk dubmeistara og er með
hluta af undirspilinu á stafrænum
hljóðrásum sem hann stjórnar. „Við
ákváðum í samtali við Þorvald að
vinna með það á þessum tónleik
um og verðum við því bara þrjú,
ég, Salka og Steinunn, ásamt sin
fóníuhljómsveitinni og kammer
kór. Helsta áskorunin var kannski
að útsetja tónlistina fyrir sinfóní
una og kórinn. Þorvaldur og Greta
sáu algjörlega um það verkefni og
við erum í skýjunum með útkom
una. Lögin eru einhvern veginn öll
vel heppnuð og fara í raun langt
fram úr væntingum okkar.“
ný plata á árinu
Á dagskrá tónleikanna verða lög af
fyrstu plötu sveitarinnar, Heyrðu
mig nú, sem kom út árið 2014 auk
nýrra laga af væntanlegri plötu
sveitarinnar sem kemur út síðar
á árinu. „Við ætlum bara að njóta
þessa stórkostlega tækifæris og
hafa gaman af og við vonum auð
vitað að sem flestir komi og njóti
með okkur.“
Það er engin lognmolla kringum
bandið á næstunni. Þau hafa unnið
að tónlist fyrir farsann Úti að aka
sem verður frumsýndur í Borgar
leikhúsinu í mars og gáfu nýlega
út lag í tengslum við það verkefni.
„Lagið heitir Ganga á eftir þér og
er svona „næsí“ ástarlag. Svo erum
við bara að fara að taka upp nýja
plötu sem kemur út í vor og hlökk
um mikið til þeirrar vinnu. Síðan
fer sumarið væntanlega í að fylgja
henni eitthvað eftir.“
Tónleikarnir verða haldnir í
Hofi á Akureyri laugardaginn
4. febrúar kl. 20 og einnig í Hörpu
þann 25. febrúar.
SmellpaSSa Saman
Ólíkir straumar mætast í menningarhúsinu Hofi á Akureyri næsta laugardag þegar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og reggísveitin góðkunna Amabadama halda tónleika saman.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
Útsala
í tilefni kínverskra áramóta
Vasar · Diskar · Lampar · Pottar · Tesett · Myndir · o.m.fl.
30-60%
afsláttur
Kínverskar gjafavörur