Fréttablaðið - 01.02.2017, Page 36

Fréttablaðið - 01.02.2017, Page 36
„Ég hef horft á Super Bowl í mörg ár og maður hefur ekki séð teljandi mun á umfangi leiksins en þetta hefur tvöfaldast að stærð frá árinu 2010,“ segir Björn Berg Gunnars- son, fræðslustjóri VÍB, um nýjan pistil sinn sem birtist á vef Íslands- banka  og fjallar um  fjármálahlið 51. Ofurskálarinnar eða Super Bowl. „Kostnaðurinn við hverja aug- lýsingu, tónleikarnir í hálfleik og eyðsla almennings í kringum leik- ina hefur allt stækkað mikið að umfangi síðustu ár,“ segir Björn Berg. Auglýsa fyrir 44 milljarða New England Patriots og Atlanta Falcons mætast í úrslitaleiknum í Houston í Texas á sunnudag. Í pistli Björns er bent á að Ofurskálin er „árshátíð auglýsenda“ og að þriðj- ungur áhorfenda kjósi frekar að fara á klósettið á meðan á leik stendur en í auglýsingahléi. Fjórðungur segir auglýsingarnar mikilvægari hluta viðburðarins en leikinn sjálfan. „Heildartekjur bandarískra fjöl- miðla vegna auglýsinga í tilefni dagsins eru áætlaðar um 44 millj- arðar króna, eða um fjórum sinnum meira en allar auglýsingar á Íslandi, í öllum miðlum, á heilu ári. Þann- ig hefur kostnaður við 30 sekúndna auglýsingu ríflega tvöfaldast frá árinu 2010 og kostar í dag um 600 milljónir króna,“ skrifar Björn. „Alvöru veisla“ Í pistlinum er einnig bent á þá stað- reynd að tónlistarkonan Lady Gaga, sem tekur nokkur lög í hálfleik, fær ekki greitt fyrir vinnu sína. Það þyki nóg að vera fyrir augunum á 100 milljónum áhorfenda um allan heim enda hafi NFL-deildin reynt að fá tónlistarfólk til að borga fyrir „þennan mikla heiður“. Það hafi aftur á móti ekki gengið. „Þó Gaga fái ekki greitt kosta tón- leikarnir sitt, en reiknað er með að heildarkostnaðurinn gæti farið yfir milljarð króna í ár. Herlegheitin verða sögð í boði Pepsi, sem greiðir fyrir þau um 800 milljónir,“ segir í pistlinum og þar er bent á að eyðsla áhorfenda í leikinn hafi einnig auk- ist mikið. „Frá 2010 hafa útgjöld ein- staklinga vegna Ofurskálarinnar tæplega tvöfaldast og ekki þarf að koma á óvart að langmestu er eytt í veitingar. Áætlað er að 650 millj- ónir hænsna þurfi til að skaffa þá vængi sem þarf í maga Bandaríkja- manna meðan á leiknum stendur og þeir skoli þeim niður með yfir milljarði lítra af bjór. Þeir innbyrða fleiri kaloríur en um jólin. Þetta er alvöru veisla.“ haraldur@frettabladid.is Fjórfalt meiri tekjur vegna Ofurskálarinnar NFL-deildin stendur á sunnudag fyrir „árshátíð auglýsenda“ eða Super Bowl 51. Fræðslustjóri VÍB segir auglýsingatekjur bandarískra fjölmiðla vegna úrslita- leiksins nema 44 milljörðum króna og slátra þarf 650 milljónum hænsna. Lið Atlanta Falcons mætir New England Patriots í úrslitaleik NFL-deildarinnar á sunnudag. FréttAbLAðið/EPA Guðríður Svana Bjarnadóttir var nýverið ráðin rekstrarstjóri Mar- orku. Hún er 38 ára gömul, lög- fræðingur að mennt, með bak- grunn í fjármálum og viðskiptum, og lauk framhaldsnámi í alþjóð- legum skattarétti og viðskiptum frá New York University School af Law. Áður var hún yfirlögfræðingur hjá Advania, starfsmaður hjá slitastjórn Kaupþings, ráðgjafi hjá KPMG New York og yfirlögfræðingur hjá skatt- rannsóknarstjóra. Hvað kom þér mest á óvart í fyrra? „Það kom mér gríðarlega á óvart að Donald Trump skyldi vera kjörinn í embætti forseta Bandaríkjanna og að Bretar skyldu ákveða að ganga úr Evrópusambandinu. Það kom mér hins vegar ekki síður á óvart að íslenska þjóðin skyldi fá tækifæri til að sjá íslenska landsliðið spila í 8-liða úrslitum á EM í Frakklandi.“ Hvaða app notarðu mest? „Mest notaða appið í símanum mínum er líklegast Lunchbox Monkey, sem er mjög vinsælt hjá yngstu kyn- slóðinni. Fyrir utan hið hefðbundna app fyrir tölvupóstinn nota ég mest Skype for Business og Facebook Messenger. Það app sem ég er samt hvað ánægðust með þessa dagana er nýja Arion banka-appið.“ Hvaða land heimsóttir þú síðast og hvers vegna? „Síðasta heimsókn erlendis var til Þýskalands vegna vinnu en Marorka er með skrifstofu í Hamborg. Ég hafði ekki komið til Hamborgar áður, en þar sem ég dvaldist þar í nokkra daga hafði ég smá tíma til að skoða borgina. Mér fannst Hamborg rosalega heillandi og skemmtileg borg og ég hlakka til að fara þangað aftur.“ Hvernig heldur þú þér í formi? „Ég stunda líkamsrækt þrisvar til fjórum sinnum í viku og svo fer ég reglulega í jóga eða pilates. Þar fyrir utan á ég tvo litla drengi sem halda mér á hreyfingu og 30 kg enskan bolabít sem heimtar sinn göngutúr á hverju kvöldi (þótt ótrúlegt megi virðast).“ Ertu í þínu draumastarfi? „Ég er nýbyrjuð að vinna hjá Marorku í mjög spennandi starfi sem býður upp á bæði krefjandi og skemmtileg verkefni. Marorka framleiðir búnað í skip sem miðar að því að hámarka nýtingu orku og aðra frammistöðu skipsins, þannig stuðla vörur félags- ins að verndun umhverfisins. Það er ómetanlegt að fá tækifæri til að vinna hjá fyrirtæki með slíkan til- gang.“ Fannst frábært að heimsækja Hamborg Svipmynd Guðríður Svana bjarnadóttir Það kom mér gríðarlega á óvart að Donald Trump skyldi vera kjörinn í embætti forseta Bandaríkjanna Guðríður Svana Bjarnadóttir Herlegheitin verða sögð í boði Pepsi, sem greiðir fyrir þau um 800 milljónir. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB Það eru gríðarleg tækifæri í samvinnu innan Coca-Cola European Partners samsteypunnar í öllum þáttum fyrirtækisins, ekki síst í mannauðs- málum. Sonja M. Scott er nýr mannauðsstóri – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Róbert Wessman, forstjóri lyfjafyrir- tækisins Alvogen, segist sjá fram á að „hlutdeild líftæknilyfja haldi áfram að aukast og með uppbygg- ingu Alvotech á Íslandi teljum við okkur vel í stakk búin til að vera leiðandi í því breytingaferli sem samheitalyfjageirinn fer í gegnum um þessar mundir.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvogen í tilefni þess að árlegur fundur fyrirtækisins var haldinn á Möltu í janúar þar sem saman voru komnir 120 alþjóðlegir stjórnendur lyfjafyrirtækisins. Alvogen hóf starf- semi á Möltu 2014 en þar starfa nú um 70 manns á vegum fyrirtækisins. Róbert segir að árið 2016 hafi verið „viðburðaríkt hjá Alvogen og náð hámarki með markaðssetn- ingu samheitalyfjaútgáfu Tamiflu í desember. Við væntum þess að árið 2017 verði ár vaxtar og áfram- haldandi breytinga á mörkuðum fyrirtækisins. Ársfundur með okkar stjórnendum er mikilvægur liður í því að stilla saman strengi og tryggja eftirfylgni  við áherslur okkar og markmið fyrir komandi ár.“ Systurfyrirtækin Alvogen og Alvotech eru með starfsemi sína á Íslandi í nýjum höfuðstöðvum í Vatnsmýrinni. Þar starfa nú um 180 vísindamenn. „Hlutdeild líftæknilyfja mun aukast“ róbert Wessman, forstjóri Alvogen, á stjórnendafundi félagsins á Möltu í janúar. Sonja ráðin til Coca Cola Sonja M. Scott hefur verið ráðin mannauðsstjóri hjá Coca-Cola Euro- pean Partners Ísland ehf. (Coca-Cola á Íslandi) og hóf hún störf í byrjun árs. Samkvæmt tilkynningu fyrirtæk- isins hefur Sonja nýlokið Executive MBA-gráðu frá Stetson University í Bandaríkjum. Þar að auki hefur jún lokið MA í mannauðsstjórnun og BA í ensku frá Háskóla Íslands. Starfaði hún um níu ára skeið hjá Vodafone og þar af síðast sem starfsmannastjóri. „Það eru gríðarleg tækifæri í sam- vinnu innan Coca-Cola European Partners samsteypunnar í öllum þáttum fyrirtækisins, ekki síst í mannauðsmálum,“ segir Sonja. - hg Guðríður Svana er 38 ára gömul og tók nýverið við starfi rekstrarstjóra Marorku 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r8 Markaðurinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.