Fréttablaðið - 01.02.2017, Page 40
@stjornarmadur
Stjórnar-
maðurinn
Miðvikudagur 1. febrúar 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is Markaðurinn
En fyrir eitt má hrósa Við skipta ráði.
Það er hversu hreint og ómengað það
setur fram sitt mark aðsvæð ing ar-, græðgis-trú-
boð. Það að leggja til einka væð ingu sjálfrar
Hóla dóm kirkju gætu ein hverjir sjálf sagt kallað
kjark að, aðrir yfir gengi lega firrt eða galið.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna.
28.1.2017
Guðjón Ármann Guðjónsson, sem
lét nýlega af störfum sem forstöðu-
maður hlutabréfa hjá Stefni,
stærsta sjóðastýringarfyrirtæki
landsins, mun taka við sem
forstjóri Hópbíla, samkvæmt
heimildum Markaðarins.
Hópbílar er umsvifamikið
fyrirtæki í rekstri hóp-
bifreiða en framtaks-
sjóðurinn Horn III,
sem er í rekstri
Landsbréfa, keypti í árslok 2016 allt
hlutafé í félögunum Hagvögnum
og Hópbílum. Hagvagnar reka
strætisvagna á höfuðborgar-
svæðinu með langtímasamn-
ingum við Strætó bs. Annar
af seljendum var Gísli J. Frið-
jónsson sem var jafnframt
forstjóri fyrirtækisins. Velta
félaganna 2015 nam
um 3,2 millj-
örðum. - hae
Úr hlutabréfum í rútubransann
365.is Sími 1817
MIÐVIKUDAGA KL. 19:25Um áramót stóðu hreinar skuldir ríkissjóðs í rúmum 750 millj-
örðum króna samkvæmt tölum
frá fjármálaráðuneytinu. Heildar-
skuldastaðan var hins vegar um
1.100 milljarðar króna. Á fyrstu
níu mánuðum síðasta árs námu
vaxtagreiðslur ríkissjóðs tæpum
200 milljörðum, en mest munaði
þar um uppgreiðslu á tilteknum
lánum sem féllu á tímabilinu.
Reglulegur fjármagnskostnaður
er því væntanlega talsvert lægri.
Ísland er lítið skuldsett land í
sjálfu sér en hreinar skuldir ríkis-
sjóðs nema rétt ríflega 30% af
vergri landsframleiðslu sem telst
hóflegt í alþjóðlegu samhengi.
Engu að síður er áhugavert að
velta því fyrir sér hvernig hag-
ræða mætti í ríkisrekstrinum og
mæta þannig æ háværari og sann-
gjörnum kröfum um aukin fram-
lög til heilbrigðismála og annarra
innviða sem þurfa að þola aukinn
átroðning með sívaxandi ferða-
mannastraumi.
Í því samhengi er athyglisvert
að þær sömu raddir og krefjast
aukinna framlaga til heilbrigðis-
mála og annarrar grunnþjónustu
mega alls ekki heyra minnst á
sölu ríkiseigna og beita gjarnan
fyrir sig skammaryrðinu „einka-
væðing“. Það er aftur á móti ekki
hið sama að aðhyllast hreina
einkavæðingu annars vegar eða
skynsamlega aðkomu einkaaðila
að ríkisrekstri hins vegar.
Þannig hefur norski olíurisinn
Statoil verið skráður á markað að
hluta um áratugaskeið. Félag-
ið er 70% í eigu norska ríkisins
og afgangurinn í eigu fjárfesta á
markaði. Ekki hefur annað heyrst
en að þessi blanda hafi reynst vel.
Einkafjárfestarnir veita aðhald og
koma með sérþekkingu að borð-
inu, auk þess sem almenningur á
greiðan aðgang að félaginu sem
fjárfestingarkosti gegnum hluta-
bréfamarkaðinn. Ríkið veitir svo
kjölfestu.
Ríkið á margar seljanlegar eignir.
Má þar nefna hluti í bönkunum,
Landsvirkjun og Isavia. Einhverj-
ar þessara eigna mætti vafalaust
selja að fullu. Aðrar eignir, eins og
t.d. Landsvirkjun, mætti selja að
hluta eftir norsku leiðinni.
Þannig mætti kannski sætta
sjónarmið og finna hinn gullna
meðalveg. Greiða skuldir ríkis-
sjóðs niður að allt að því fullu,
og nota þann vaxtakostnað sem
sparast til að styrkja grunn-
stoðirnar. Það telst varla mikil
hægrimennska að vilja styrkja
velferðarkerfið. Eða hvað?
Blönduð
einkavæðing