Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 48
TónlisT
HHHHH
Verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Hauk
Tómasson, Úlf Hansson og Thomas
Ades í flutningi Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Einleikari: Þórunn Ósk Marinós-
dóttir víóluleikari.
Stjórnandi: Petri Sakari.
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 26. janúar
Sinfóníutónleikarnir á Myrkum
músíkdögum byrjuðu vel. Flutt var
tónsmíð að nafni Dolorosa eftir Atla
Heimi Sveinsson fyrir strengi. Hún
mun hafa verið samin í minningu
Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur
forsetafrúar, sem lést langt fyrir aldur
fram. Tónmálið var einfalt, hnitmið-
aðar laglínur, hefðbundnir hljómar,
mikið um sama liggjandi bassatón-
inn. Andrúmsloftið var tregafullt og
einmanalegt, byrjunin minnti á tón-
listina sem heyrist snemma í kvik-
myndinni Aliens, þegar geimfar sést
líða inn úr myrkrinu, búið að vera á
sveimi í fjölmörg ár. Slíkur var annar-
leikinn í músíkinni.
Því miður var næsta atriði á efnis-
skránni engan veginn nógu gott,
Cycles eftir Kristínu Þóru Haralds-
dóttur. Þar gerðist fátt, tónlistin var
einn samfelldur niður sem var frá-
hrindandi, grár og dimmur. Það var
engin greinanleg framvinda, enginn
hápunktur, ekki ein spennandi hug-
mynd. Að vísu var einhver gáfuleg
útskýring í tónleikaskránni, en hún
varpaði ekki neinu ljósi á óskapnað-
inn sem heyrðist.
Echo Chamber eftir Hauk Tómas-
son var næst. Sagt var í skránni að
um væri að ræða tónræna túlkun á
því þegar „… hugmyndir eru magn-
aðar með dreifingu og endurtekn-
ingu inni í „lokuðu“ kerfi, þar sem
ólíkar eða andstæðar hugmyndir
eru bannaðar.“ Í takt við þetta var
mikið um að sama hugmyndin berg-
málaði á milli ólíkra hljóðfærahópa.
Það varð fljótlega einsleitt. Heildar-
áferðin var auk þess býsna ofhlaðin.
Lítið heyrðist t.d. í einleikaranum,
Þórunni Ósk Marinósdóttur víólu-
leikara, fyrir þráhyggjukenndum
hamaganginum í hljómsveitinni.
Eiginlega var ekki fyrr en undir lokin
að hægt væri að kalla spilamennsku
hennar einleik.
Eftir hlé var fyrst Arborescence
eftir Úlf Hansson. Það var svipuðu
marki brennt og músíkin á undan,
tónavefurinn var svo þéttofinn og
þykkur allan tímann að hann varð
tilbreytingarlaus og þreytandi. Polar-
is eftir Thomas Ades kom varla betur
út, tónlistin sjálf var að vísu tignarleg
og margbrotin, en flutningurinn var
óásættanlegur. Blásararnir voru
ekki alltaf með sitt á hreinu, talsvert
var um rangar nótur og sumt virtist
hreinlega úr takti. Útkoman var fúl,
en um leið viðeigandi endir á fremur
misheppnaðri dagskrá. Jónas Sen
niðursTaða: Ómerkilegir tónleikar
þar sem fátt var um innblástur.
Digurt en innihaldslaust
Flutt var tónsmíð að nafni Dolorosa eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir strengi. Hún
mun hafa verið samin í minningu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar.
FréttAblAðið/GVA
leikhús
Gísli á uppsölum
HHHHH
Þjóðleikhúsið í samstarfi við kóm-
edíuleikhúsið
leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson
Handrit: Elfar Logi Hannesson og
Þröstur Leó Gunnarsson
leikari: Elfar Logi Hannesson
Dramatúrg: Símon Birgisson
tónlist: Svavar Knútur
lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson
Þjóðleikhúsið hýsir nú Kómedíu-
leikhúsið í Kúlunni en sýningin
Gísli á Uppsölum var frumsýnd 13.
janúar síðastliðinn. Þjóðin fékk
fyrst að kynnast Gísla í frægum
Stikluþætti Ómars Ragnarssonar
á fyrri hluta níunda áratugarins en
fyrir hafði einbúinn auðvitað verið
þekktur sveitungum sínum. Sýn-
ingin er að hluta byggð á þessum
þætti en einnig bókinni Eintal sem
er samtíningur af textum sem Gísli
skrifaði í gegnum tíðina.
Elfar Logi Hannesson hefur
verið driffjöðrin á bak við bæði
Kómedíuleikhúsið og einleikja-
hátíðina Act Alone á Suðureyri í
mörg ár. Það eru engar ýkjur að
hópurinn kallar sig leikhús lands-
byggðarinnar en þessi sýning, sem
og aðrar sýningar hópsins, hafa
ferðast landið um kring.
Gísli á Uppsölum hverfist um
þrjú lykilatriði í lífi Gísla: eineltið
sem hann varð fyrir í æsku, bón-
orðsneitun heimasætunnar Fljóðu
og samband hans við móður sína.
Helsti galli handritsins er að aldrei
er nema klórað í yfirborðið, ástæð-
unum sem Gísli telur fyrir einveru
sinni eru gefnar skýrar sálfræði-
legar ástæður og þær eru ekkert
skoðaðar nánar. Elfar Logi vinnur
ágætlega úr því efni sem hann
hefur í hlutverki Gísla en grípur
áhorfendur fastast þegar nákvæm-
lega ekkert er sagt á meðan Gísli
baks ast við að sinna sínum daglegu
verkum.
Stundum er reyndar erfitt að
að skilja sýninguna frá þeim til-
finningum sem hinn raunverulegi
Gísli vekur enda algjörlega ein-
stakur. Sýningin er í styttra lagi og
því erfitt fyrir Elfar Loga að koma
til skila þeim endalausu dimmu
vetrarkvöldum þar sem Gísli
dvaldist einn í kuldanum á Upp-
sölum, einn og nánast algjörlega
yfirgefinn af heiminum. Persóna
hans myndi sóma sér vel í verkum
Samuels Beckett þar sem tungu-
málið virðist aldrei nægja til að
koma depurðinni og endurtekn-
ingum tilverunnar til skila.
Skiljanlegt er að öll umgjörð sé
hin einfaldasta, gerð til að vera
meðfærileg enda er hér um farand-
leikhús að ræða. Um leikstjórnina
sér Þröstur Leó Gunnarsson en eft-
irtektarvert er að sjá hvernig hann
meðhöndlar tímann og stað Gísla í
tilvistinni. Atriðið þar sem Stiklu-
þátturinn er hreinlega klipptur
inn í sýninguna stendur þar upp
úr. Gísli greyið hefur ekki viðbragð
til að svara þeim fjölmörgu spurn-
ingum sem Ómar eys yfir hann og
úr verður hin kostulegasta sena.
Þarna gerir Þröstur Leó vel en þess
væri óskandi að fleiri atriði af þessu
tagi væri að finna.
Tó n l i st a r m a ð u r i n n Svava r
Knútur sér um tónlistina en hún
er blanda af einföldu gítarspili og
orgelleik. Angurværu orgeltón-
arnir virðast vera klipptir beint út
úr þætti Ómars og falla sérlega vel
inn í framvinduna, harmþrungnir
tónar og hikandi. Aftur á móti má
spyrja hvort gítarspilinu sé hrein-
lega ofaukið enda orgelið sérlega
áhrifaríkt.
Þegar öllu er á botninn hvolft
eru aðstandendur Gísla á Upp-
sölum ekki að finna upp hjólið en
sýningin er samt þeim til ágætis.
Handritið er frekar eins konar til-
brigði við ævisögu Gísla frekar en
djúp rannsókn á hugarástandi hans
og lífi.
Sigríður Jónsdóttir
niðursTaða: Hnitmiðaður ein-
leikur sem hefði mátt kafa dýpra.
Eymd og ástir einyrkjans
Fasteignafélagið
Borg ehf. til sölu
Nánari upplýsingar um sölu á eignar
hlutum Lands bank ans og Byggða stofn unar
í Fast eigna félag inu Borg ehf. má nálgast
með því að senda fyrir spurnir á
eignarhlutir@landsbankinn.is
eða petur@byggdastofnun.is.
Söluferli á eignum Landsbankans fer fram
í samræmi við stefnu um sölu eigna í eigu
bankans og nær til sölu fullnustueigna,
hvort sem slíkar eignir eru í eigu Lands
bank ans eða dóttur félaga.
Nánari upplýsingar um stefnu Lands bank
ans um sölu eigna er að finna á vef bankans
landsbankinn.is/eignirtilsolu.
Landsbankinn og Byggðastofnun auglýsa hluti
í Fasteignafélaginu Borg ehf. til sölu.
Borgarflöt 1a, Sauðárkróki í útleigu til
prentsmiðjunnar Nýprent ehf.
Höfðabraut 34, Hvammstanga í útleigu
til ullariðnaðarfyrirtækisins Kidka ehf. og
Perlunnar þvottahúss.
Fasteignafélagið Borg ehf. er fasteigna
félag um rekstur tveggja fasteigna á
Hvammstanga og Sauðárkróki.
» Eignarhlutur Landsbankans: 52,9%
» Eignarhlutur Byggðastofnunar: 29,8%
Elfar logi í gerfi Gísla í dalnum hans,
Selárdal.
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M i ð V i k u D a G u r24 M e n n i n G ∙ f r É T T a b l a ð i ð
menning