Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 3
Litli-Bergþór 3
Formannspistill
Voræfingar íþróttadeildar félagsins hófust þann 8. janúar. Í boði hefur
verið fótbolti, körfubolti, glíma, íþróttaskóli og bland og fjör. Einnig var
boðið upp á Zumba æfingar fyrir 6.-10. bekk í maí og í lok maímánaðar var
„Guggusund“ fyrir 3-6 ára börn.
Á síðasta aðalfundi var ákveðið að aðaldeild myndi gefa öllum börnum og
unglingum á grunnskólaaldri, sem vildu, íþróttabúning merktan félaginu. Vel
gekk að fá fyrirtæki til þess að styrkja þetta með okkur og um leið var boðið
uppá að kaupa buxur og peysur með.
Leikdeild sýndi leikritið Sálir Jónanna ganga aftur eftir Ingibjörgu
Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn
Gunnars Björns Guðmundssonar. Leikritið er það þrítugasta sem leikdeildin
setur upp. Fjórtán leikarar tóku þátt ásamt aðstoðarfólki. Mæting hefði mátt
vera örlítið betri en slæmt veður setti oftar en einu sinni strik í reikninginn.
Elfa Björk gaf ekki kost á sér áfram sem gjaldkeri Ungmennafélagsins á síðasta aðalfundi. Þökkum við henni
fyrir alla þá vinnu sem hún hefur unnið fyrir félagið. Í hennar stað kom Svava Theodórsdóttir.
Að lokum vil ég minna á fésbókarsíður félagsins, en þar er hægt að finna hinar ýmsu upplýsingar um starfið:
íþróttadeild umf-bisk
Litli-Bergþór. Blað ungmennafélags Biskupstungna og
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna
Með kærri kveðju,
Oddur Bjarni Bjarnason, formaður.