Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 7

Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 7
Litli-Bergþór 7 um langan veg þarf minni umbúðir. Spurning varðandi rafmagnsbílana: er búið að reikna fórnarkostnað við rafhlöðurnar. Eru ekki notaðir í þær sjaldgæfir málmar frá t.d. Afríku, sem unnir eru með barnaþrælkun? Af fyrirtækjum, sem samkvæmt fréttum skeyta lítið um hag vinnuþræla sinna eða umhverfi? Er búið að reikna út kostnað við að farga ónýtum rafhlöðum? Eða endurvinna? er búið að hugsa það til enda? Við höfum þraukað hér á kjöti og fiski og smá mjölvöru í gegnum aldirnar og sem betur fer eigum við kost á fjölbreyttari fæðu nú. En verum samt meðvituð um hvaðan maturinn okkar kemur. Hvað þarf hann að ferðast langt til að komast til okkar?, hvaða efni eru notuð til að halda honum fallegum og sölulegum á ferðalaginu til okkar? Hvaða kjör býr fólkið við sem vinnur við framleiðsluna? -Hugleiðum það. Reiknum kolefnissporið inn í kostnaðinn. Stórmarkaðarnir eru stútfullir af innfluttum mat, sósum og dósum. Jafnvel grænmetið sem selt er í sumum búðum í þessu grænmetisræktunarhéraði, Uppsveitunum, er innflutt. Reiknum kolefnissporin af flutningnum inn í verðið. Með allan þann ferðamannafjölda sem er í landinu, eiga íslenskir bændur að hafa alla möguleika á að auka framleiðslu sína og selja hana. Ég blæs á kjötfjallið sem sláturleyfishafar nota til að lækka verð til bænda. Gerum það söluvænt og seljum það! Geirþrúður Sighvatsdóttir. Er höfundurinn að meina þetta? Baunir! Grænmeti! Hrísgrjón! Korn! Heilsugæslustöðin í Laugarási - upplýsingar - Opnunartími heilsugæslunnar í Laugarási er frá kl 8:00 til 16:00 - Sími heilsugæslunnar er 432 2770 frá kl 8:00 til 16:00. - Aðalnúmer HSu á Selfossi er 432 2000 - Sími Neyðarlínu 112 - Símatímar lækna eru tveir þ.e kl 9:00-9:30 og 13.00-13.30. - Panta þarf tíma og símatíma í síma heilsugæslunnar, 432 2770. - Blóðprufur eru teknar á morgnana frá kl: 8:15 til kl: 11:00 mánud.-fimmtud. - Lyfjaendurnýjun er hjá læknariturum í síma 432 2020 milli klukkan 8:00 og 9:00 á morgnana Heilsuvera.is – hvað er það? Heilsuvera.is er öruggt vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna og nálgast eigin sjúkragögn. Vefsvæðið er hægt að nota í heimilistölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Allir hafa aðgang að lyfseðlalista, lyfjaúttektum, bólusetningaupplýsingum og upplýsingum um skráðan heimilislækni eða heilsugæslu. Foreldrar/forráðamenn hafa aðgang að sjúkraskrárgögnum barna sinna að 15 ára aldri. Þeir sem skráðir eru á þeim heilsugæslustöðvum, sem eru byrjaðar að nota Veru, geta auki þess pantað tíma hjá lækni og endurnýjað ákveðin lyf í gegnum Heilsuveru.is. (ATH. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki til að komast inn á heilsuveru. Til þess þarf snjallsíma eða kort og kortalesara við tölvuna). Með kveðju, starfsfólk Heilsugæslustöðvarinnar í Laugarási.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.