Litli Bergþór - jul. 2018, Side 10
10 Litli-Bergþór
Húsin í Laugarási
og íbúar þeirra
Páll M. Skúlason
Markmið mitt var að ekki yrði lengra gengið í birtingu á samantekt um húsin í Laugarási og íbúa
þeirra á þessum vettvangi, en til aldamóta. Þetta er því síðasti skammturinn sem birtist í þessum flokki
á síðum blaðsins.
Sú umfjöllun sem hér hefur birst frá árinu 2014 mun einnig birtast, uppfærð og með ríkulegra
myndefni, á vefnum laugaras.is í fyllingu tímans. Þar verður ennfremur að finna upplýsingar um þau
hús sem byggð hafa verið frá aldamótum.
GERÐI 1986
Jens Pétur Jóhannsson og
Matthildur Róbertsdóttur
stofnuðu Gerði 1986, en þau
bjuggu aldrei þar. Þar byggðu
þau aðstöðuhús og gróðurhús
og stunduðu einhverja ræktun,
en hugsun þeirra var aðallega að
byggja upp aðstöðu vegna reksturs sem Jens hafði
með höndum.
Ellisif Malmo Bjarnadóttir (f. 02.01.1969), sem
áður bjó á Helgastöðum, keypti Gerði síðan árið
2005 og hefur búið þar síðan og stundað garðyrkju meðfram öðrum störfum.
Börn Ellisifjar og Lofts Magnússonar (f. 08.09.1969) eru: Guðni Eydór (f.09.03.1991), Þórhildur Sif
(f. 09.12.1994) og Karen Lilja (f. 26.08.1996).
KIRKJUHOLT 1987
Kirkjuholt er iðnaðar- og þjónustubýli sem var
stofnað á landi sem áður tilheyrði Hveratúni og
er í Kirkjuholti, norðan Kvistholts. Benedikt
Skúlason frá Hveratúni (f. 11.04.1956) og Kristín
Sigurðardóttir frá Vatnsleysu (f. 1.12.1958) fluttu
í hús sitt 1990 eftir að hafa búið í Helgahúsi frá
1980. Benedikt var umsjónarmaður Hitaveitu
Laugaráss frá 1980 og einnig hafði hann umsjón með
eignum heilsugæslustöðvarinnar og Laugaráslæknishéraðs.
Hann hóf síðan störf sem veitustjóri Bláskógaveitu árið
2002. Benedikt og Kristín keyptu fjósið og hlöðuna sem
áður fylgdu Laugarási 3 (Helgahúsi) árið 1994. Börn
Kristínar og Benedikts: Bergþóra Kristín (f. 01.12.1981)
býr í Reykjavík, Valgerður Björk (f. 27.06.1985 ) býr í
Reykjavík og Sigurður Skúli (f. 22.09.1991) býr á Hellu.
Gerði.
Ellisif.
Kirkjuholt
Fjölskyldan í Kirkjuholti.