Litli Bergþór - jul. 2018, Side 11

Litli Bergþór - jul. 2018, Side 11
Litli-Bergþór 11 BRENNIGERÐI 1991 Brennigerði stendur þar sem mætast Vestur- byggðar vegur og Klettagata. Húsið byggðu þau Hólmfríður Ingólfsdóttir og Baldvin Árnason og þau bjuggu þar til ársins 2005, en þá fluttu þau í húsið sem þau byggðu í Holtagötu 15a. Það voru þau Hreinn Loftsson f. 12.01.1956) og Ingibjörg Kjartansdóttir (f. 05.08.1958) sem keyptu Brennigerði af Hólmfríði og Baldvin og nýta það sem frístundahús. STORÐ 1991 Vernharður Gunnarsson (f. 26.04.1951) og Björg Árnadóttir (f. 28.11.1951) stofnuðu Storð sem er norðan Ferjuvegar þar sem hann mætir Skálholtsvegi, árið 1986. 1991 fluttu þau í frístundahús sem þau höfðu byggt. Í framhaldinu byggðu þau gróðurhús og skemmu. Á Storð stunda þau ræktun, aðallega á trjáplöntun fyrir Gróðrarstöðina Storð, sem þau reka í Kópavogi. Einnig leggja þau stund á býflugnarækt. VESTURBYGGÐ 4 (Yleiningarhúsið) 1994 Þetta hús var byggt vegna fyrirætlana um að byggja upp íbúðaklasa fyrir aldraða á svæðinu þar sem barnaheimili RKÍ stóð áður. Það var arkitektastofan Batteríið sem teiknaði þennan fyrirhugaða klasa og húsið í Vesturbyggð var byggt sem sýningarhús fyrir áhugasama. Ekki varð af þeirri uppbyggingu sem þarna var fyrirhuguð og eru ástæður þess látnar liggja milli hluta hér. Eftir stóð húsið, en það ber þess merki að það var hannað sem einn hluti af klasanum sem átti að vera innangengt um. Þegar ljóst var orðið að ekkert yrði af þessu verkefni var húsið selt. Kaupandinn var Þuríður Hermannsdóttir (f. 05.05.1941 d. 19.01.2010). Árið 2006 keyptu þau Helgi Hálfdánarson (f. 08.03.1949) og Þuríður Ottesen (f. 01.05.57) húsið af Þuríði, en þau bjuggu ekki í húsinu. Helgi eignaðist húsið að fullu árið 2011. Húsið var leigt út og í því bjuggu Editha Kirsch um tíma og síðar Unnur Malín Sigurðardóttir og Arnar Sigurbjartsson, þar til Helgi flutti í húsið. Hann seldi það síðan í mars 2017 og flutti í Hveragerði. Kaupendur voru þau Fanney Gerða Gunnarsdóttir (f. 30.07.1960) og Hallgrímur G. Sverrisson (f. 24.02.1959). Það er ekki föst búseta í húsinu. Brennigerði. Hólmfríður og Baldvin. Storð. Yleiningarhúsið. Þuríður.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.