Litli Bergþór - jul. 2018, Side 13
Litli-Bergþór 13
Litli-Bergþór er í stöðugri þróun og í þessu tölublaði lítur myndagáta í fyrsta sinn dagsins ljós í sögu blaðsins.
Höfundur myndagátunnar er Unnur Malín Sigurðardóttir. Ekki er gerður greinarmunur á a og á, e og é eða i og í.
Ef gátan er rétt leyst er útkoman gamansöm hugleiðing höfundar um stöðu fjölmiðils.
Björg
Skuggi steinsins allur yfir féll
eina klettaþröng.
Greri þar fátt
og engar burstir þangað sneru.
Sumri hallar, haust líður,
snjór hylur
braut sem engin var.
Líður tíminn öðruvísi inni í bjarginu
en sunnan við
þar sem Góusólin sést?
Spyr enginn
hvað af okkur varð?
Hvers vegna kvöldar í ykkar heimi
þegar aðrir hafa engan
dag séð?
Ég var einn morgun
svo áttavillt og föl
við ykkar dyr og barði - barði - barði.
Sjáið skugga steinsins
við eina klettaþröng.
Gangið fram og gáið
hve fátt þar grær.
Hafið þið til þess spurt,
fólksins,
sem gengið er í björg?
Svona, svona kona.
Meira hvað hún lætur illa
útaf þessum steini.
Það var hér allt í gær!
Myndagáta
Á aftökustað
Ég þarf ekki að fyrirgefa þeim
sem iðrast ekki
en ég get aumkað þau.
Kannski er það fyrirhafnarminna
þegar til lengdar lætur
en að fyrirlíta.
Bálið svíður fætur nornarinnar,
beinin berast,
fyrst hvít, síðan svört
og hjarta hennar,
sem eitt sinn elskaði
og trúði á framtíðina,
brestur.
Reif ég sjálf hrísið
í þessa brennu?
Valdi hana
frekar en fótabað
og hlóð köstinn?
Þetta er ekki hár köstur,
bara smá baggi,
og ég sé ekki vel af honum
yfir mannskapinn.
Þess vegna fyrirlít ég enn
dálítið
og hjarta mitt er ekki alveg
brostið.
Sigríður Jónsdóttir
Ljóð