Litli Bergþór - jul. 2018, Side 15
Litli-Bergþór 15
Leifur datt í ána, hesturinn hélt reyndar áfram og
komst á bakkann. Sem betur fer strandaði Leifur
á lítilli eyju sem var í miðri ánni og lá þar í roti.
Þegar hinir komust yfir föttuðu þeir að það vantar
Leif og þeir líta á hinn bakkann og sjá hann ekki en
þeir sáu hestinn sem var kominn yfir og byrjaður
að bíta gras. Loksins komu þeir auga á hann og
einmitt þá kom ein mesta demba sem elstu menn
muna. Þegar svoleiðis gerist bráðnar jökullinn og
þá hækkar í ánni þannig að þeir þurftu að ná Leifi
strax. Pétur fór út í ána og komst á eyjuna og náði
til hans þar sem hann lá enn í roti. Pétur verður
að velja milli bakkans sem Gunnar og tjöldin eru
sem er lengra frá, eða hinu megin þar sem ekkert
er en það er einhverjum metrum frá eyjunni.
Pétur ætlaði að fara til Gunnars og svo sá hann
flóðbylgju. Hann varð að drífa sig yfir þannig að
hann skiptir um skoðun og fer hinumegin. Það
munaði litlu en það hafðist. Þegar Pétur fór af
baki fór hann úr úlpunni og vafði hana utan um
Leif. Það eina sem þeir gátu gert núna er að veiða
sér til matar. Pétur og hinir mennirnir fóru að leita
að heldur veiku lambi til að slátra í matinn, en
það eina sem þeir fundu var eldgömul rolla sem
er að minsta kosti 8 vetra gömul, og þannig kjöt
vill enginn éta. En annars urðu þeir að svelta í hel,
þannig að þeir tóku kindina og skáru hana á háls
og tóku innyflin út en geymdu gæruna fyrir Leif
ef honum yrði kalt.
Á þessum sama tíma voru Gunnar og tveir aðrir
menn á tvítugsaldri að hefta hrossin, tjalda og
finna eitthvað til að narta í, og undirbúa sig fyrir
að sofa þessa nótt.
Þegar rekstrarfólkið og smalarnir hittust aft-
ur klukkan sirka 8 voru þeir orðnir verulega
áhyggjufullir, en þeir ákváðu að þeir lentu bara í
vandræðum með féð svo þeir létu það eiga sig og
fóru að sofa.
En á meðan var Leifur að vakna úr rotinu og
man ekki neitt af því sem gerðist, en hinir sem
voru með honum sögðu alla söguna og gáfu
honum að éta, svo var farið að hátta.
Næsta dag var orðið dálítið minna í ánni þannig
að Leifur og félagar fóru yfir með nokkrar kindur,
Gunnar hafði aldrei áður verið jafn glaður að sjá
pabba sinn áður.
Þegar þeir komu til hinna voru þeir að pakka
saman fyrir daginn, og himinlifandi að sjá að allt
var í lagi með þá, en að vísu sögðu menn Leifs
alla söguna og svo hélt smalamennskan áfram.
Gunnar var farinn að hugsa að á morgun komist
hann loksins í betri hús, hann var byrjaður að
sakna mömmu og bústarfanna. Hann fór þó
ekki að væla heldur hélt áfram. Þennan dag var
Gunnar mestmegnis með rekstri alla leiðina.
Hann var orðin þreyttur þegar tjöldin voru
kominn upp og fór beint að sofa. Þetta kvöld var
kalt úti og Gunnar áti erfitt með að sofna en hann
komst loksins í draumalandið sitt eftir að hafa
farið í 2 ullarnærbækur, 3 ullarpeysur og 1 par af
ullarsokkum.
Þennan dag vaknaði Gunnar hress og spenntur
því í dag kemst hann loksins heim, en hann þurfti
aftur að að vera á eftir rekstri, allan daginn.
Gunnar var heldur fúll því það getur orðið dálítið
leiðigjarnt að þurfa að vera á eftir reksti heilan
dag, sérstaklega ef hann væri á eftir draghaltrandi
rollu. Pabbi hans hefur sagt honum sögu um að
eina fjallferðina þegar hann þurfti að elta sömu
rolluna draghalta á eftir rekstri og hann sagðist
hefði skorið hana á háls ef hann hefði þurft að
gera þetta næsta dag líka og þá sagt að hún hafi
drepist fyrir framan hann.
En sem betur fer lenti Gunnar á mjög duglegu
fé þannig að allt gekk smurt. Þegar þeir komu
auga á réttirnar var Gunnar reyndar við það að
sofna á hestinum en hann náði í réttirnar og fékk
sér smá lúr á meðan hinir fjallmennirnir voru að
syngja og tralla. Svo fóru allir heim til sín að hitta
fjölskylduna.
Gunnar sér loksins heim, eftir þessa erfiðu
ferð komst hann þetta allt. Hann sá móður sína
og hljóp til hennar og faðmaði hana. Hann sagði
henni alla söguna og honum var orðið alveg sama
um daginn sem honum fannst mikilvægastur allra,
réttardaginn sjálfan. Hann fór samt næsta dag í
réttirnar en dagarnir sem fóru í hönd lituðust af
hugsunum um fjallferðina frá byrjun og til enda.
Kvenfélag
Biskupstungna
sendir félögum
sínum og
Sunnlendingum
öllum óskir
um gott og
gjöfult sumar.