Litli Bergþór - jul. 2018, Síða 17

Litli Bergþór - jul. 2018, Síða 17
Litli-Bergþór 17 „Hvar í ósköpunum varst þú? Ég var að deyja úr áhyggjum“ sagði hún ákveðin og horfir í bláu augun hans. „Viðja mín“sagði hann og knúsaði hana „ég má nú alveg aðeins fara út án þess að þú sért að deyja úr áhyggjum“. „Jú auðvitað, en þú hefðir alveg mátt segja mér að þú værir að fara“sagði hún. „Já en ég ætlaði bara að koma þér á óvart“ sagði hann glottandi. Hann tekur upp kápuna hennar sem hangir á snaganum við hliðin á henni og byrjar að klæða hana í. „Hvað ertu að gera?“ spyr hún hlægjandi. Hann svarar henni ekki og rennir upp kápunni sem var orðin þröng um magann. Hann tekur í hönd hennar og leiðir hana út og í átt að bílnum. Kuldinn tekur á móti þeim og hún heldur föstu taki um hönd hans. Hún finnur hvítu stóru snjókornin festast í dökka hárinu á henni og hún reynir að greiða þau burtu með smágerðu puttunum sínum. Þau koma að bílnum og hann hendir sér upp á pallinn. Hann tekur upp svarta ruslapoka sem eru þaktir snjó. Undir ruslapokunum var lítið perluhvítt barnarúm með útskornum viðarfótum. Það sást að það væri búið að gera við það því einn fóturinn var aðeins örðuvísi. Viðja fyllist af hamingju þegar hún sér það. Hún hugsar um mömmu sína og þegar pabbi hennar sagði henni frá því þegar mamma hennar lagði hana þar þegar hún var ungabarn. Hún sér líka fyrir sér litla fallega ófædda krílið þeirra Frosta liggja í þessu fallega barnarúmi. „Lagaðirðu barnarúmið hennar mömmu?“ spyr hún glöð og kát. „Já ég vildi koma þér á óvart“ svarar hann henni glaður á svip. „Æ, elskan, en fórstu alla leið á Akranes til að ná í það og laga það?“ spyr hún glöð. „Já það var það minnsta sem ég gat gert til að gleðja þig“ sagði hann. Hún hendist í fangið á honum og kyssir hann létt á kinnina. Hann tekur laust um hana til að meiða ekki ófædda barnið í maganum hennar og kyssir hana á ennið. Innbrotið Höfundur: Karl Jóhann Einarsson Gormur og Danni hoppuðu yfir girðinguna sem umkringdi skólann. Þeir sáu að það voru ennþá kennarar og húsverðir í skólanum, þeir ákváðu að halda áfram þrátt fyrir það. Það var kvöld en það átti eftir að rökkva. Gormur var myrkfælinn og vildi hann þá að þetta gengi hratt fyrir sig áður en það yrði alltof dimmt. Þegar þeir komu að skólanum sáu þeir að það var einn gluggi á skólastofunni sem þeir þurftu að komast inní opinn. Danni fór fyrstur inn og Gormur dreif sig strax á eftir því hann var svo hræddur við að vera einn. Þegar inn var komið sáu þeir í skápinn og í efstu hillunni var það sem þeir vour að sækjast eftir. Akkurat þegar Gormur teigði sig í fenginn labbaði kennarinn þeirra, Katrín Guðmundsdóttir inn. Þeir stukku undir borð á meðan Katrín var að ná í einhverja pappíra. Það var ekki fyrr en hún fór út úr stofunni að þeir gátu andað léttar. Þeir flýttu sér út og tróðu sér út um gluggann eins hratt og þeir gátu með fenginn undir hendinni.Þar sem Gormur er svo myrkfælin þá fylgdi Danni honum heim og þar skildu leiðir þeirra þetta örlagaríka kvöld. Daginn eftir hittust þeir áður en skólinn byrjaði og voru samferða í skólann. Þeir héldu að þetta yrði bara hinn eðlilegasti skóladagur en það átti fljótt eftir að breytast. Katrín og mjög svo myndarleg lögreglukona tók á móti þeim í andyrinu á skólanum og bað þá að fylgja sér inní skólastofu. Gormur og Danni byrjuðu strax að svitna en voru þó ekki vissir um hvort eða hvernig hefði komist upp um þá. Úr andlitum þeirra mátti lesa ótta. Lögreglukonan og Katrín settust niður og spurðu samtímis „Vitiði af hverju þið sitjið hérna“ Gormur lét einsog að hann hefði ekki heyrt spurninguna, en Danni sagði strax án þess að hika „nei“ Gormur leit á hann eins og hann þekkti hann ekki því Danni lýgur ekki og hefur aldrei sagt ósatt. Katrín virtist vonsvikin því hún vissi að bæði Danni og Gormur væru frekar góðir og heiðarlegir strákar. Þær útskýrðu afhverju þeir væru í þessum aðstæðum og að upp hefði komist um þá . Katrín sagði „ Þegar vaktarstjórinn var að fara yfir myndbands upptökur af skólalóðinni þá sá hann eitt skrýtið, hann sagði að það hefðu verið tveir strákar sem

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.