Litli Bergþór - Jul 2018, Page 19

Litli Bergþór - Jul 2018, Page 19
Litli-Bergþór 19 Ég hafði einhvernveginn aldrei verið sáttur við það, að talað væri um Litla Bergþór í þágufalli sem: „Litla Berþóri“. Hef alltaf talið eðlilegt að þetta nafn beygðist eins og Þór: Hér er Þór, um Þór, frá Þór til Þórs. Ég er þannig, þegar íslenskt mál er annarsvegar, að ég vil halda mig við það sem mér finnst rökrétt, en ekki bara einhverja tilfinningu eða venju. Þetta mál kom til tals á fundi ritstjórnar og þar komst ég að því, að ég væri í minnihluta með þessa skoðun mína. Þar með taldi ég rétt að leita til Árnastofnunar til að fá úrlausn. Öfugt við það, sem ég átti von á fékk ég ítarlegt svar við fyrirspurn minni, þó vissulega hafi það ekki verið mér að skapi. Sá sem svaraði var Ari Páll Kristinsson, sonur Rannveigar Pálsdóttur og Kristins Kristmunds- sonar, fyrrum skólameistarahjóna á Laugarvatni. Hér fylgir svar hans: Helstu heimildum okkar ber öllum saman um beyginguna Bergþór, Bergþór, Bergþóri, Bergþórs. Með „heimildum“ á ég hér við ritið Nöfn Íslendinga og enn fremur Staf- setningarorðabókina, Málfarsbankann og Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls en þrjár síðastnefndu heimildirnar koma fram undir vefgáttinni málið.is. Beygingin með Bergþóri í þágufalli er einnig í samræmi við mína máltilfinningu og annarra sem ég hef borið málið undir. Það er auðvitað rétt sem þú segir að liðir nafnsins eru Berg- og -þór. Staðreyndin er samt sú að -þór beygist öðruvísi sem seinni liður tveggja atkvæða samsettra karlmannsnafna heldur en sem sjálfstæða eigin-nafnið Þór. Þar má t.d. benda á að algenga nafnið Steinþór er í þágufalli Steinþóri. Sambærilegt er svo reyndar líka þgf. Halldóri enda er -dór sögulega til orðið úr sama efni og -þór. Á hinn bóginn er bæði til í dæminu -i og ekki -i í þágufalli samsettra karlmannsnafna með -þór ef nafnið er fleiri en tvö atkvæði. Þannig er nafnið Sigurþór til dæmis í heimildum ýmist Sigurþór eða Sigurþóri í þágufalli. En reglan er sem sagt skýrari a.m.k. í þessum tveggja atkvæða nöfnum; þágufallið er: Bergþóri, Steinþóri o.fl. Það er alls ekki einsdæmi í nöfnunum með -þór að tilteknir nafnliðir hegði sér öðruvísi í tvíkvæðum samsetningum en sem sjálfstæð nöfn eða sjálfstæð orð. Sambærilegt er t.d. að finna í liðnum -geir og nafninu Geir. Nafnið Ásgeir (og fleiri slík) er alltaf í þágufalli Ásgeiri enda þótt Geir sé í þágufalli endingarlaust (landsdómur réttaði yfir Geir). Skylt þessu, en ekki alveg sambærilegt, er að það er ekki svo sjaldan í íslensku að orð hafi tiltekna beygingu í almenna orðaforðanum (t.d. björg, fá enga björg sér veitt ) en aðra sem eiginnöfn (Björg, hjá henni Björgu). Þótt það skipti ekki máli í sambandi við spurninguna þá má nefna til gamans varðandi Þór í þágufalli (hjá Þór Jónssyni) að endingarleysið í kerfinu fær þarna líklega frekari stuðning af því að til er nafnið Þórir (hjá Þóri Jónssyni) og þannig má greina milli manna þegar rætt er um hann Þór en ekki hann Þóri. Svarið er sannarlega þakkarvert og þarft að fá þetta mál einhvernveginn á hreint. Hvað mig varðar breytir það hinsvegar litlu, þar sem ég er ráðinn í því, hér eftir sem hingað til að tala um Bergþór í þágufalli. Ég verð ef til vill eitthvað mýkri gagnvart fólki sem vill bæta i-inu við. Páll M. Skúlason: Frá Litla Bergþór -i

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.